Vísir - 14.10.1969, Page 5
V í Srf R . Þriðjudagur 14. október 1969.
5
Heimatilbúnir síldarréttir
„JTftirspurnin hefur aukizt eft-
ir því sern síldin hefur orð
ið dýrari", varsvar.sem Kvenna
siðan fékk, þegar hún forvitnað-
ist am framboö og eftirspurn
eftir síld, fyrir skömmu.
Eftir þessu aö dæma ætti aö
koma mikiTl fjörkippur í síld-
arsödu — ef síldin veröur þá á
markaöinum fyrir íslendinga.
Þaö getur nefnilega hent, að viö
verðum aö bíta í þaö súra epli
að standa uppi síldarlaus vegna
þess, að aörir þjóöir, sem vilja
fá sild hvað sem þaö kostar
hióða þaö mikiö í hana, aö sild-
in veröi eingöngu útflutnings-
vara, eða þá að hún fari ein-
faldlega í beitu.
„Ööruvísi mér áöur brá“, seg-
ir orðtækiö. Árum saman hefur
veriö fussaö og sveiaö yfir síld-
inni og hún varla talin boöleg
á matarboröíö, þótt aörar ná-
grannaþjóöir hafi notfært sér
hana sem lostæti á meöan. Þá
var hægt að fá sildina ödýra.
Til skamms tíma hefur Ora
selt 'frá sér saitsild í 15 lítra
plastfötum á 600 krónur. Nú
má búast við aö veröiö hækki
nokkuö. Kvennasiðan hafði einn
ig tal af einum fisksala og var
hann með saltsíld á boðstólum
á 11 kr. stykkið.
Ef hægt veröur aö fá síld og
þótt hún hækki eitthvað, má
gera góö kaup á síld með þvi aö
kaupa meira magn af henni. —
„Síld á morgunveröarboröið,“
segja nágrannar okkar á Norður
löndunum, sem þekkja bezt til
þess hvaö hægt er að gera úr
síld. Sildarborö einu sinni í viku
ætti að vera vel þegið af fjöl-
skyldunrri, þegar hún kemst á
bragðið.
Hér koma nokkrar uppskrift-
ir að síklarréttum, og er miðað
við saltsíki.
Eyrst eru uppskri'ftir aó sihiar-
salötum.
Síldai'salatrð
hennar ömmu
Ein sild eöa tvö flök, 5 dl sax-
aðar rauðrófur, 2 dl saxaöar soön
ar gulrætur, 1 dl, saxaöar, soðn
ar kartöflur, 1—2 söxuð epli, 1
sultuö og söxuö agúrka, 2 msk
sykur, rauðrófusafi, pipar. —
Skreytt meö 2—3 harðsoðnum
eggjum, 2 dl rjóma.
Flökin afvötnuð yfir nóttina.
Sneiöiö niöur sild, rauörófur, gul
rætur, kartöflur epli og gúrkuna
í smáa teninga. Blandiö vel sam-
an. Bragöbætiö með sykri, pipar
nokkrum matsk. rauörófusafa.
Setjiö salatið í skál, skreytið
meö eggjabátum og þeyttum
rjóma. Beriö afganginn af rjóm
anum fram í annarri skál.
Síld í tómat
2 sildar eöa 4 flök, lögur:
4 msk. tómatkraftur, 1 /2 dl mat
arolía og 1 msk edik blandaö
saman, 1 msk sykur, 1 saxaöur
laukur, 2-3 msk söxuð stein-
selja, pipar.
Afvatniö sildina i 8—12 klst.
Þurrkið flökin vel og skerið niö
ur í tveggja cm breiöa bita. —
Blandiö saman öllu, sem á aö
fara í löginn og hellið yfir eöa
kringum síldina. Látið standa yf-
ir nóttina. Skreytið meó litlum
steinseljugreinum.
Síldarkokkteiil
Uppskriftin er ætluð fjórum.
Ein sild eða tvö flök, 1 salat-
höfuð, 2 msk saxaðar rauörófur,
2 msk kapers, 2 msk saxaður
Iaukur, 2 msk saðaöur graslauk
ur, 4 eggjarauður. Sósa: 2 msk
tómatsósa, 1 msk rjómi, rifin
piparrót.
Hreinsið síldina og afvatnið
í um það bil 12 tíma. Flakið síld
ina og skerið i mjög litla bita.
Rífiö salatiö f ræmur og skiptið
því í litlar skálar. Skiptiö síldinni
rauðrófunum, kapes, lauk og
graslauk á skálarnar og setjið
eina eggjarauöu í hverja skáí.
Blandið sósuna og hellið oftir-
litlu af henni yfir hvern skammt.
Síld á brauðl
Fjórir fjóra. Tvö vel afvötmtð
sildarflök, 4 ristaöar brauösneið
ar, 1 msk smjör, 1 harösoöiö
egg, 1. msk saxaöur laukur, 50-
75 gr majones, 2 msk rifinn
ostur.
Smyrjiö brauðsneiöarnar og
setjið í ofnfast fat. Skerið síld-
ina í litla bita. Stappiöeggiðmeð
gaffli, deilið niður sild, egginu
og lauknum á brauösneiðarnar.
Smyrjiö majonesinu yfir brauö-
sneiöarnar, stráið ostinum yfir
og bakiö í heitum ofni.
Síldin er ennþá holl fæða, þótt hún kunni að vera dýrari nú
en áður, og eftirsótt er hún af nágrannaþjóðunum, sem gætu
kennt íslendingum heilmikið um meðferð síldarinnar og hvern
ig eigi að borða þennan lúxusmat.
KVÍMNASffiÁ
Kvöldverðarsíld
Tvær síldar eöa 4 flök, 1 stór
laukur, 3 dl súr rjómi, 3 msk
kavíar, 2 harösoðin egg, 1 tómat
graslaukur,-
Hreinsið og flakið sildina, af-
vatnið í 8 klst. Skerið laukinn i
þunnar sneiðar, setjið hann í
botninn á fati. Þerrið síldarfiök-
in, skerið i breiða bita og leggiö
í röð ofan á laukinn. Blandið
saman súra rjómanum og kaví-
arnum og setjið yfir. Skerið egg
og tómata niður í báta. Skreyt
ið fatiö meö bátunum og með
miklu af klípptum graslauk. —
Berið síldina fram vel kalda meö
soðnum kartöflum.
Síldarbúðingur
meö karrý.
Tvær síldar eöa 4 flök, 1—2
meðalstórir laukar, 1—2 epli, 1
—2 tsk karrý, 1 dl rjómi, 2 msk
smjör eða smjörlíki, 2 msk
rasp.
Hreinsið og flakið síldina. Af-
vatniö yfir nóttina. Skerið iauk-
inn í þunnar sneiöar. FlysjiÖ epl
in og takiö kjarnann úr og rífió
eða skerið í smáa teninga. —
Smyrjið ofnfast fat eða form
meö smjörlíkinu, stráiö raspinu
yfir. Setjið eplin í botninn, látið
renna af sildinni og setjiö hana
í röð vfir eplin, stingið lauksneiö
unum niöur milli sildarflakanna.
Blandið saman karrý og rjóma
og hellið yfir. Stráiö raspi yfir
og afganginum af smjörlikinu. —
Bakió í ofninum í um það bil
20 min. við 225 gráða htóa.
BORÐKRÓKSHUSGOGN
ELDAVÉLAR
SKOLAVORÐUSTIG 16 SÍMI 14275
n Einum sthð
FáiS
ELDHUSVIFTUR
ELDAVELASETT
KÆLISKÁPA
FRYSTISKÁPA
1
I
I
I
I
1
| VEKKTAKAR! — HÚSBYGGJENDUK!|
MAGNUS
FBAMKVÆMU.M ALLS-
KONAR JARÐÍTUVINNU
utanboRGAR SEM INNAN
2005-82972
ARINÓ SF
I
1
I
I
Seljum bruna- og annað fyllingarefni & mjög hagstæðu veröi.
Gerum tilboö i jarðvegsskiptingar og alla flutninga.
ÞUNGAFLUTNINGAR h/f . Sími 34635 . Pósthólf 741
:------------ . J
® Notaðir bílar til sölu ®
Höfum kaupendur að Volkswagen og
Land-Rover bifreiðum gegn staðgreiðslu.
Til söiu í dag:
Volkswagen 1200 ’58 ’59 ’61 ’65 ’68
Volkswagen 1300 ’66 ’67 ’68
Volkswagen 1500 ’67 ’68
Volkswagen Fastback ’66 ’68
Volkswagen sendiferðabifr. ’63 ’65 ’68
Volkswagen station ’63 ’64
Land-Rover bensín ’62 ’64 ’65 ’66 ’67
Land-Rover dísil ’65
Saab ’65 ’67.
Willys ’42 ’66 ’67
Fiat 600 T sendiferðabifr. ’67
Toyota Crown De Luxe ’66
Volvo station ’55
Chevy-van ’66
Vauxhall 2000 station ’69
Volga ’65
Við bjóðum seljendum endurgjaldslaust afnot
af rúmgóðum og giæsilegum sýningarsal okkar.
Stmi
21240
HEKLA hf
Laugaveqi
170-172