Vísir - 14.10.1969, Qupperneq 7
V í S I R . Þriðjudagur 14. október 1969.
I MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTL.ÖND í MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND
„M-dagur"
á morgun
Á þessari óvenjulegu mynd sjást
forsprakkar ,M-dagsins‘ í Banda-
ríkjunum, þeir Sam Brown og
David Hawk, sem hafa helgað
morgundaginn andstöðu við VI-
etnamstríðið. Brown vonast til,
að í næsta mánuði verði tveir
slíkir „M-dagar“ og þrír í des-
ember. Búizt er við tíðindum
víða um landió.
Dr. Ota Sik vikiö
úr kommúnistaflokknum
Forsætisnefnd slóvakíska kommúnistaflokksins til kynnti
í morgun, að dr. Ota Sik hefði vikið úr flokknum. Sik
stýrði efnahagsmálum í Tékkóslóvakíu á valdadögum
Dubceks og leitaðist við að auka frelsi einstaklinganna.
Flokkurinn segir nú, að starfsemi Siks erlendis sé brot
gegn stefnu flokksins, en Ota Sik hefur dvalið í Sviss í
eitt ár.
Forskot
Iholdsflokksins
minnkar í 4%
© Skoöanakönnun í Bretlandi í síð-
ustu viku sýndi aöeins 4% for-
skot íhaldsflokksins fram yfir
Verkamannaflokkinn. Hefur aldr
ei munað minna, frá því að
stjórn Wilsons laekkaöi gengi
pundsins áriö 1967.
• Munur þessi var 25% íhalds-
mönnum í vil fyrir sjö mánuð-
um.
© Heath, formanni íhaldsflokks-
ins, vegnar ekki vel í skoðana-
könnunum. Aöeins 27 af hundr-
aði fólks telja, að hann yröi
„góður forsætisráðherra". 50 áf
hundraöi segja, aö Wilson
„standi sig vel í stöðu sinni“.
Soiusarnir hafa
farið 45, 29
og 13 hringi
® Geimfararnir í Sojusar-
förunum vöknuðu um sjö-
leytið í morgun. Þá hafði Soj-
us 6. farið 45 ferðir umhverf-
is jörðu, Sojus 7. 29, og hið
síöasta, er skotið var upp í
gær, hafði lokið við 13 ferðir.
# Vladimir Sjatalov, foringi
þessarar ferðar, sagði í
morgun, að öllum hinum sjö
mönnum liði vel, og heföu
þeir tekið til við verkefni sín,
eins og ætlað var. Ekki var
nánar skýrt frá tilgangi ferð-
arinnar, fremur en fyrr.
,Ekki aðgerðir gegn Svíum'
— Nilsson til fundar við Rogers og Fulbright. — Fær SAS 30 milljarða?
• TalsmaÖur bandarísku
stjórnarinnar gaf í skyn í
gærkvöldi, aö ólíklegt sé,
að gripið verði til nokkurra
efnahagslegra gagnað-
gerða gegn Svíum, þótt
þeir hyggist styrkja Norð-
ur-Víetnam.
Bent er á það í Washington, að
mjög sé ljóst, hvernig Svíar hugsa
sér aöstoð þessa. Norömenn og
Danir revna nú aö fá Svía til að
gangast ásamt þeim fyrir aðstoð
við báða hiuta Víetnam, en ekki
fyrr en stríðinu er lokið.
Málið mun væntanlega skýrast í
næstu viku, þegar utanríkisnefnd
sænska. þingsins kemijr til Wash-
ington. Nefndin ferðast um Ba-nda-
ríkin, fyrst til New York og síðan
Kanada og dvelst loks nokkra daga
í Washington. Torsten Nilsson, ut-
anrjkisráðherra, mun ræða við
William Fulbright, formann utan-
ríkisnefndar öldungadeildarinnar,
og reynt er að stofna
til viðræðna milli Nilssons og Willi-
am Rogers utanríkisráðherra Banda
ríkjanna.
Mál þetta er einkum mikilvægt
fyrir flugfélagið SAS, sem hyggst
kaupa nýjar Boeing 747 flugvélar.
Var í ráði að lán yrði tekið til
kaupanna hjá Export-Import bank-
anum í Bandaríkjunum að upphæð
á mijli 20 og 30 milljarðar ísl. kr.
Bankinn athugar nú, hvort af slíku
láni geti oröið.
„Stríðið í Norður-írlandi
mun standa í mörg ár
— segir Dennis Healey
Hermálaráðherra Breta,
Dennis Healey, sagði í gær
kvöldi, að Bretar yröu að
minnka herafla sinn hjá
Atlantshafsbandalaginu,
yrði framhald á átökunum
í Norður-írlandi. — Hann
taldi, að stríðið þar mundi
standa „ekki aðeins í
marga mánuði heldur i
mörg ár.“
Torsten Nilsson.
KÍNVERJAR SLEPPA
3JA BLAÐAMANNINUM
Gordonfjölskyldan tvö ár i stofufangelsi
Brezki blaðamaðurinn Eric Gordon,
kona hans og þrettán ára sonur
voru látin laus í Kína í niorgun
eftír nær tveggja ára stofufangelsi.
Hcldu þau strax yfir landamærin
til Hongkong.
Gordon er þriðji brezki blaða-
maðurinn, sem leystur er úr haldi i
Kína í þessum mánuði. Hinir fyrri
voru Ánthony Grey og hinn 69 ára
Norman Barrymaine. Grey var
sleppt hinn 4. október og Barry-
maine síðastliðinn laugardag. Barry
maine liggur þungt haldinn á sjúkra
húsi í Hongkong.
Gordon-fjölskyldan var við góða
liðan í morgun. Hún hafði komið
til Kína árið 1965, og starfaöi Gord-
on við fréttamennsku. Þau voru
handtekin í nóvember 1967, og ekk-
ert spurðist til þeirra þar til í
febrúar í velur. Aldrei varð upp-
skátt uni ákærur á hendur þeim.
Voru þau í stofufangelsi á „vinar-
heimilinu", sem var matstofa út-
lendinga í Peking.
Séra Paisley svaraöi í morgun
gagnrýni brezka innanríkisráöherr-
ans . Callaghans, og kallaði hann
„mann, sem skriði fyrir kaþólsku
kirkjunni". Callaghan hafði sagt, að
Paisley „notaði sér orðalag Biblí-
unnar til aö æsa upp fölk og hylja
hin eiginlegu vandamál, félagsleg
og efnahagsleg", sem við væri að
stríða í Norður-Irlandi.
Nokkuð kyrrt var í Belfast í
nótt, enda hefur rignt þar mikið
og það dregið úr æstu skapi. Þó
var slegizt í gærkvöldi á nokkrum
stöðum, en fólk hélt heim til sín
undír miðnættið. Kona særöist í
morgun af slysaskoti úr byssu
brezks hermanns. Hermenn stóðu
á Verði uppi. á húsþökum í nótt,
viða um Belfastborg.