Vísir - 14.10.1969, Blaðsíða 13
VI S IR . Þriðjudagur 14. október 1969.
13
Þrír bflar í aftaná-
akstri, þegar sá
fremsti vék fyrir
sjúkrabílnum.
• Þrír bílar, sem óku í sömu
stefnu eftir Reykjanesbraut á
laugardagsmorgun, lentu i árekstri,
þegar sá fremsti stöðvaði snögg-
lcga vegna sjúkrabíls, sem ók út
frá slökkvistöðinni.
Sá, sem næst kom, ók aftan
á þann fremsta, og sá síðasti ók
aftan á miðbílinn, en í honum var
lftil telpa, tveggja ára, sem meidd-
ist lítillega og var flutt á slysa-
varðstofu.
Frá Háskóla íslands
ÁRLEG SKRÁNING allra stúdenta Háskól-
ans fer fram frá 16. til 23. október n.k. Skrán-
ingin nær til allra stúdenta Háskólans, ann-
arra en þeirra, sem voru skrásettir sem ný-
stúdentar á s.l. sumri. Við skráningu skulu
stúdentar afhenda stúdentaskírteini frá síð-
asta ári, svo og ljósmynd, að stærð 35 x 45
mm. Skráningargjald er kr. 1000.—.
Hárgreiðslustofa
í fullum gangi til leigu vegna frekara náms eiganda
erlendis. Stofan er vel staðsett við miðborgina. —
Tilboð sendist augld. Vísis merkt „Hárgreiðslustofa 10“
Iðnskólinn í Reykjavík.
Námskeið i tækniteiknun
1. og 3. bekkur Teiknaraskóla Iðnskólans í
Reykjavík verða starfræktir í vetur, ef næg
þátttaka fæst.
Innritun fer fram í skrifstofu skólans, á
venjulegum skrifstofutíma, og lýkur laugar-
daginn 18. október n.k.
Námskeiðsgjald kr. 700 fyrir 1. bekk og kr.
2.000 fyrir 3. bekk, greiðast við innritun.
Skólastjóri.
Sjúkrabíllinn hafði verið á leið-
inni til þess að sinna slysakalli af
Skólavörðustíg, en þar hafði kona
stigið út úr bifreið og gengið út á
götuna, beint í veg fyrir aðra bif-
reið, sem kom aðvífandi. Hún
meiddist þó ekki alvarlega.
Meö svipuðum hætti varð enn
eitt slys í umferðinni á laugardag,
þegar maður yfirgaf bifreið sína á
Langholtsvegi á móts við hús nr.
3, og hljóp frá henni út á götuna,
en varð þá fyrir bifreið, sem ók
hjá einmitt í því.
Slasaðist á skautum.
• 9 ára telpa slasaðist í Skauta-
höllinni á sunnudag. Hafði
skauti rekizt í annan fót hennar
fyrir ofan hné, og hlaut hún af því
nokkurt sár. Varð að flytja hana á
slysavarðstofuna til læknismeð-
ferðar.
2 milljón króna kröfur
— en engar eignir
fundust.
• Engar eignir fengust á móti
2 milljón króna kröfu skuldar-
eigenda þegar skipti fóru fram í
búi Handbóka hf., sem gaf út
kvennablaöið Hrund á sínum tíma
og seldi mönnum alfræðibækur frá
Ameríku.
• Alls voru forgangskröfur upp
á 768.691.50 kr. en almennar
kröfur voru að upphæð 1.262.247.-
97 kr. Forgangskröfur eru kröfur
starfsmanna um laun, sem voru um
185 þús., 553 þús. í skatta og gjöld
til borgarinnar og 29 þús. krónur
í húsaleigu.
9
Áfengi fyrir 492
milljónir
9 Áfengissalan fyrstu níu mánuöi
þessa árs varð tæpar 492
milljónir króna. Á sama tíma í
fyrra varð salan tæpl. 425 milljónir
króna og haföi því aukizt í krón-
um um 15%. Hæpið er að um
magnaukningu hafi verið að
ræða, þar sem veröhækkun á áfengi
varð nokkur á þessu tímabili.
MkþS&iGotnr
i Merk og nytsöm
félagsstarfsemi.
Þó félögin á íslandi séu bæði
mörg oh stór, sem hafa ótrúleg
t ustu fjölbreytni í stefnumarki,
7 þá er óhætt aö fullyrða, að fá
1 félög hafa göfugra og nytsam-
( ara verkefni í sínum verkahring
Í’ en Ferðafélag íslands. Félag
þetta á drjúgan þátt í aö kynna
landið, og veitir örugga leið-
sögu í ferðum sínum. Ferðir
Ferðafélagsins eru hvatning til
útivistar og útiveru, sem hverj-
um er hollt og heilsusamlegt,
og veitir einstaka ánægju, hverj
um þeim sem njóta kann fagurs
lands og könnunar þess.
Mörg félög veita slíka þjón-
ustu, en ekkert þeirra hefur svo
umfangsmikla starfsemi sem
Ferðafélag íslands. Eitt hundrað
og níu ferðir í sumar bera vott
um gróskumikið starf, og telst
til undantekninga, ef nokkurn
tfma falla niður ferðir, hvemig
sem viðrar.
Auk hins beina starfs, þá
njóta margir ferðalangar húsa-
skjóls í skálum Ferðafélagsins,
sem standa víða um landið, þar
sem annars er lengst til byggða.
Þrátt fyrir öfluga starfsemi ger-
ir Ferðafélagið of Iítið að því að
auglýsa starfsemi sfna og hvetja
almenning til þátttöku. Starf-
!semi þessi er þó af því tagi, að
almenningur ætti að gera meira
af því að gerast beinir þátttak-
endur í ferðum Ferðafél. Þó
margir bileigendur telji sig full-
færa til að flytja sjálfa sig þang
að, sem hugur þeirra girnist, þá
er oft áhyggjuminna að fara f
hópferð, þar sem séð er fyrir
öllum þörfum. Leiðsagan gefur
einnig feröum gildi, bæði í sögu-
legu og náttúrufræðilegu tilliti.
Þó hugur margra hafi opnazt
fyrir þvi, að hverjum manni er
mikil nauðsyn á hæfilegri hreyf-
ingu, þá vantar mikið á, að al-
mennt sé stunduð útivera eða
einhvers konar íþróttir til holl-
ustu. Ferðafélagið kemur gjam-
an til móts við þá, sem langar
til að gera beinir þátttakendur
í hæfilega erfiöum ferðum tll
skemmtunar og hressingar.
En þó flestar ferðir séu ein-
ungis miðaðar við sumarferöir,
þá er það mesti misskilningur,
að ekki sé hægt að ferðast þó
á haustdegi sé eða á vetrum.
Gönguferðir um helgar í ná-
grenni höfuðborgarsvæðisins
væri flestum nýnæmi, og mörg-
um er það hulið, hve sögustaðir
eru margir og merkir hér á
næstu grösum. Það hefur nefni-
lega margan hent að ferðast
Iangt yfir skammt. Ferðafélagið
mun hafa einhverjar ráðagerðir
um að hefja vetrarferðir um
nágrennið og er vonandi að af
þvi veröi. Einniv er vonandi að
almenningur virði hið merka og
nytsama starf Ferðafélagsins
með því að gerast beinir þátt-
takendur, sjálfum sér til hress-
ingar og fróðleiks.
Þrándur í Götu.
STALHUSGÖGK
húSuS meS hinu sterka og
áferSarfallega RILSAN
(NYLON 11)
FramleÍSandi:
STÁLIÐN HF„ Akureyri
01
bi
B1
51
51
51
51
30435
Vélaleiga Steindórs, Þormóðsstöð-
um. — Loftpressur, kranar, gröfur
sprengivinna. Önnumst hvers konar
múrbrot, sprengivinnu í húsgnmn-
um og ræsum. Tökum að okkur
lagningu skolpröra o.fl. Tímavinna — ákvæðisvinna.
sími 10544, 30435, 84461.
ÁHALDALEIGAN
SÍMI13728 LElGœ YÐUR múrhamra með borum og fleyg j
um, víbratora fyrir steypu, vatnsdælur, steypuhrærivél
ar, hitablásara, borvélar, slípirokka, rafsuðuvélar. Sent og
sótt ef óskað er. — Áhaldaleigan Skaftafelli viö Nesveg, ;
Seltjarnamesi. Flytur fsskápa og pfanó. Sími 13728.
BÓLSTRUN — SÍMI 83513 í
Klæði og geri við bólstruð húsgögn, læt gera viö póler-
ingu ef óskað er. Bólstrun Jóns Amasonar, Skaftahlíð 28.
Simi 83513.
BÓLSTRUNIN BARMAHLÍÐ 14
Klæði og geri við bólstruð húsgögn. Fljót og vönduð
vinna. Úrval áklæða. — Svefnsófar og sófasett til sölu á
verkstæðisveröi. Bólstrunin Barmahlíð 14, simar 10255
og 12331.
Hafnfirðingar — íbúar Garðahrepps
Hreinsum fljótt og vel allan fatnað einnig gluggatjöld,
teppi o. fl. Leggjum áherzlu á vandaða þjónustu. Revniö
viðskiptin. Þurrhreinsunin Flýtir, Reykjavíkurvegi 16.
LOFTPRESSUR TRAKTORSGRÖFUR
Tökum að okkur allt múrbrot, sprengingar f húsgrunn-
um og holræsum. Gröfum fyrir skolpi og leggjum. ÖIl
vinna f tfma- eðá ákvæðisvinnu. Vélaleiga Símonar Sírn-
onarsonar, sími 33544.
PÍPULAGNIR - —
Skipti hitakerfum. Nýlagnir, viðgerðir, breytingar á vatns-
leiðslum og hitákerfum. Hitaveitutengingar, Þétti heita
og kalda krana. Geri við wc-kassa. Sími 17041. — Hilmar
J. H. Lúthersson, pípulagningameistari. ‘ i
FLUTNINGAÞJÓNUSTAN
Við tökum að okkur alls konar flutninga. Innanbæjar og
utan. Búslóðir, skrifstofuútbúnað, vélar, píanó, peninga-
skápa o.fl. Leitið upplýsinga. Vanir menn. Reynið við-
skiptin. Sími 25822. ___________
ER STÍFLAÐ?
Fjarlægi stíflur úr vöskum, baðkerum, WC rörum og
niöurföllum. Nota til þess loftþrýstitæki, rafmagnssnfgla
og fleiri áhöld. Þétti krana set niður brunna. geri við biluö
rör og m.fl. Vanir menn. Valur Helgason. Sími 13647.
RADÍÓVIÐGERÐIR s.f.
Grensásvegi 50 -- Sími 35450. — Við önnumst allar við-
gerðir á útvarps-, sjónvarps-, segulbandstækjum og plötú-
spilurum. Komum heim ef óskaö er. Næg bílastæði. —
Sækjum, — Sendum. — Reynið viðskiptin.
LOFTPRESSUR TIL LEIGU
Geymið auglýsinguna.
GLUGGA OG DYRAÞÉTTINGAR
Tökum aö okkur að þétta opnanlega glugga, útihurðir og
svalarhurðir með „Slottslisten" innfræstum varanlegum
þéttilistum, nær 100% bétting gegn vatni, ryki og drag-
súg. Ölafur Kr. Sigurðsson og Co. Sími 83215 frá kl.
í öll minni og.stærri verk. Vanir menn. Jakob Jakobsson,
sími 17604.
9—12 f.h. og eftir kl. 19 e.h.
NÝSMÍÐI OG BREYTINGAR
Smíða eldhúsinnréttingar og skápa, bæði í gömul og ný
hús. Verkið er tekiö hvort heldur er f tfmavinnu eða fyrir
ákveöiö verð. Einnig breyti ég gömlum innréttingum eftir
samkomulagi. Góðir greiðsluskilmálar. Fljót afgreiösla.
Símar 24613 og 38734.
ER LAUST EÐA STÍFLAÐ?
Festi laus hreinlætistæki. Þétti krane og WC kassa. —
Hreinsa stífluð frárennslisrör með loft og hverfibörkum.
Geri viö og legg ný frárennsli. Set utöu brunna. — Alls
konar viðgeröir og breytingar. Þjónusta allan sólarhring-
inn. Sími 25692. Hreiðar Ásmundsson.
LÉTTIR VINNUPALLAR TIL LEIGU,
hentugir við viðgeröir á húsum o. fl. úti eöa inni. —
Sími 84-555.
VERKFÆRALEIGAN HITI S/F
Kársnesbraut 139, sími 41839. Leigir hitablásara, máln-
ingarsprautur og kíttissprautur.
KSBS