Vísir - 07.11.1969, Qupperneq 4
DANIR OG MATARÁSTIN.
Danir hafa ávallt veriö taldir
einstakir mathákar, sérstaklega
eru þeir frægir fyrir sitt mikla
svínakjötsát. Nú hefur einhver
duglegur og reikningsglöggur
Dani reiknað út, hvað hann
og hans matgráðugu landar
eyða í matvörur á ári hverju. Út-
koman var 13 milljaröar danskar
krónur um árið. Einnig kom fram
hjá þessum ágæta manni, að sal-
an á ávöxtum og grænmeti hefði
vaxið, og grjóna- og hveitisát
minnkað að sama skapi — en
enn halda Danir þó fast við sitt
mikla sætindaát. Nota þeir ár-
lega 12 milljónir til kaupa á búð-
ingsdufti einu saman og 90 millj-
ónii þamba þeir í alis kyns
appelsínu- og megrunardrykkj-
um. Svínasteik er enn þá vinsæl-
asti sunnudagsmaturinn á fle-st-
um dönskum heimilum.
Fituprósentan ekki reiknuð með.
Þegar Daninn kaupir sér kjöt
hugsar hann fremur um verðið
heldur en fituprósentu kjötsins
sérstaklega er salan mikil í alls
kyns hökkuðu kjöti en verðið fer
eftir fitumagni þess og er því
ódýrara sem það er feitara.
Selst því mun meira af feita 1
inu heldur en því magra,
uði, eða krónur 96 þús. á ári.
ifcá: ■: m- : : < : ís
Josephina Baker hefur veriö
eins konar goðsögn vegna ást-
ar sinnar á börnum og þá eink-
um einstæðingum, og allir kann-
ast við frásagnir af hennar alþjóð
lega 11 meðlima bamahópi, sem
hún hefur tekið að sér sem fóst
urböm.
í þau skipti, sem hún hefur
komið fram, hefur henni jafnan
tekizt að undirstrika þá umsögn
sem oftast hefur verið höfð um
hana, að hún sé einstæður per-
sónuleiki og frábær skemmti-
kraftur.
Nú sem stendur hefur nætur-
któí.(b eimim í Psurls, s«ns „Olym-
pia- nefnist, tekizt að fá hana
til að skemmta nokkmm sinnum,
en hún hefur gert mjög lítið að
því að koma fram undanfarin ár.
Syngur hún þar meöal annars
mörg af sínum frægustu lögum
frá því í gamla daga.
Sameinkenni forseta-
morðingja í Bandaríkjunum
í Bandarikjunum var nefnd sett
á laggimar fyrir 1 y2 ári til að
rannsaka, hvaða helztu orsakir
lægju á bak viö glæpasamlegt at
John Wilkes Booth — morðingi
Lincolns forseta.
hæfi fólks. Meðal annars hefur
orðið sá árangur af starfi þess-
arar nefndar, að hún hefur nú
sent frá sér álit sitt á því, hver
séu helztu sameinkenni þeirra
manna, er kjósa helzt að drepa
forseta Bandaríkjanna og hefur
nefndin kallað þá manngerö „for
setamorðingjann". Niðurstöður
sínar fékk nefndin eftir að hafa
rannsakað 81 morð á amerískum
forvígismönnum og þá einkum<s-
stjórnmálamönnum og þar á með
al 4 forsetamorð síðan árið 1835.
Komst nefndin að þeirri niður-
stöðu, að ávallt fremur „forseta-
morðinginn" verknaðinn upp á
eigin spýtur, hann er utanveltu í
þjóðfélaginu, og aldrei verkfæri
samtaka eða einstaklinga.
Hann er annaðhvort erlendur
eða fæddur af erlendu foreldri.
Hann hefur haft allt of lítið, og
í sumum tilfellum ekkert sam-
band eða samneyti við fööur
sinn. Hann hefur hvorki getað
haldið stöðugu sambandi við eina
einstaka konu, né haldið fastri
atvinnu. Þannig hefur hann auð-
veldlega orðið ofstækisfullur
fylgjandi öfgastefna í stjómmál-
um og þjóðfélagslegum málum,
án þess þó að tilheyra nokkurri
ákveðinni stefnu í þeim málum.
Hann er þar að auki lágvaxinn
og grannur aö líkamsbyggingu.
Hann velur gjarnan skotfæri til
að fremja glæp sinn með, sem
hann kýs að framkvæma er fórn-
ardýrið er statt í fjölmenni.
Lee Harvey Oswald — morðingi
Kennedys forseta.
m BaS l i her be rgið
! notað til að
• jmync • la 1 3ei ginál
The Band er hljómsveitin, sem
varð fræg á því að leika „á bak
við“ hjá Bob Dylan á mörgum
hans plötum, en meðlimir hljóm-
sveitarinnar bjuggu einmitt í
sömu borg og Bob Dylan, Wood-
stock, sem er í nágrenni Nev
York borgar. Nú hafa þeir félag-
ar gefið út sína eigin LP-plötu,
og er hún nú þegar búin að skipa
sér í álitlegan sess á vinsælda-
listum. Þetta er önnur platan,
sem þeir senda frá sér og varö
sú fyrri einnig mjög vinsæl. Nýja
platan þeirra er tekin upp í bú-
stað þeirra í Hollywood, sem þeir
keyptu nýlega og fluttu inn í með
konur sínar og börn og eina
ömmu að auki. Innréttuðu þeir
sjálfir húsið með tilliti til að þar
yrði auk samastaðar fyrir fjöl-
skylduna, einnig aðstaöa til hljóm
plötuupptöku. Þeir félagar nota
lítið af tæknilegum brögöum við
upptökur sínar, til að flutning-
urinn á lögunum verði sem eöli-
legastur. — Vilja þeir umfram
allt varast það, er þeir segja, að
margir starfsfélagar þeirra hafi
brennt sig á, að nota tæknina of
mikið sér í hag á hljómplötum,
en geta svo ekki staðið undir .
þeirri glæstu mynd, er þeir koma
fram fyrir aðdáendur sína í hljóm
leikasal. Aðeins í einstaka iögum
hafa þeir notfært sér baðherberg-
ið á heimilinu til að mynda berg-
mál.
Donovan. Hann nýtur þess gjarnan að slappa af úti I náttúrunni.
DONOVAN Á HLJÓM
LEIKAFERÐALAGI
Donovan, sem hefur verið
þekkt nafn á vinsældalistum und-
anfarin þrjú ár, enda þótt hann
sendi ekki frá sér ýkja mikið af
plötum, hyggst nú gera víðreist
um heimsins lönd 'og halda hljóm
leika og meðal annars i Dan-
mörku í þessum mánuði. Dono-
van kom fram í sviösljósið fyrir
fimm árum og þá eingöngu sem
þjóðlagasöngvari, sem lék sjálfur
undir söng sinn á gítar, og á
munnhörpu spilaði hann einnig
svona til að krydda réttina eins
og hann sagði sjálfur. Seinna
sneri hann sér að pop-hljómlist
og þá fór að komast skriður á
frægðarferilinn sem óðum stefndi
upp á við og á toppinn komst
hann á vinsældalistum, sem er
mælikvarði frægðarferilsins í
þessum málum, og allir kannast
við lögin hans „Sunshine Sup-
erman“, „Jennifer Juniper",
„Hurdy Gurdy Man“, svo ein-
hver af hans vinsælustu lögum
síðastliðin þrjú ár séu nefnd.
The Band fluttu frá Woodstock og keyptu sér hús í Hollywood, þar sem þeir tóku upp nýju plöt-
una sína og búa þar að auki ásamt fjölskyldum sínum.