Vísir - 29.11.1969, Page 8
8
Kt&m
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent h.t.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aöstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannwsson
Augiysingar: Aðalstræti 8. Símar 15610, 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Askriftargjald kr. 165.00 á mánuði innanlands
í iausasöla kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðja Visis — Edda h.f.
Sameiginlegir hagsmunir
§tór meirihluti íslenzku þjóðarinnar mun telja að
nauðsyn beri til að nú verði komið í veg fyrir kjara-
deilur, sem gætu lamað framleiðsluna og atvinnu-
lífið um lengri eða skemmri tíma. Þjóðarheill krefst
þess, að reynt sé að afstýra þeirri ógæfu. Hins vegar
er vitað að til eru öfl innan þjóðfélagsins, sem ávallt
reyna af fremsta megni að spilla fyrir friðsamlegu
samkomulagi um kjaramál. Þeir menn láta sig það
aldrei neinu skipta, hverjar afleiðingar langra og ill-
vígra kjaradeilna verða fyrir þjóðarbúið og þá, sem
att er út í verkföllin.
Nú hefur sjómannasamningum, sem kunnugt er,
verið sagt upp frá næstu áramótum. Það væri mikil
ógæfa, ef þá kæmi til verkfalla og ef til vill langrar
stöðvunar veiðiflotans. Munu margir vilja taka undir
þau orð Sverris Júlíussonar, formanns L.Í.Ú., er hann
mælti nú á aðalfundi samtakanna, að hann tryði því
ekki fyrr en hann tæki á,_ að til átaka kæmi að þessu
sinni út af kjaramálunum, enda væri það upplýst, að
útgerðin gæti ekki risið undir auknum útgjöldum um-
fram þær kjarabætur sjómanna, sem samið var um í
byrjun ársins og koma til framkvæmda nú um ára-
mótin.
Eins og formaður L.Í.Ú. benti á, væri mjög æski-
legt, að fiskverðið væri ákveðið nú sem allra fyrst,
og gæti sú ákvörðun Verðlagsráðs ef til vill komið í
veg fyrir að deilur risu um áramótin. Því er oft haldið
fram manna á meðal, að of seint sé brugðið við til þess
að reyna að afstýra kjaradeilum þegar þær séu í að-
sigi. Þess kunna að vera dæmi, en hitt mun þó algeng-
ara, einkum á seinni árum, að byrjað sé að þreifa
fyrir sér um samkomulagsgrundvöll miklu fyrr en al-
menningur veit. Það er staðreynd, hvort sem ófriðar-
öflum þjóðfélagsins líkar betur eða verr, að verkföll
eru orðin úrelt vopn í kjaradeilum, enda tap þeirra,
sem láta telja sér trú um að þeir hagnist á þeim, oft-
ast meira en ávinningurinn, sem kallaður er.
Svo enn sé vitnað í ræðu formanns L.Í.Ú. er það
brýnasta hagsmunaatriði íslenzks sjávarútvegs nú,
að bæta meðferð aflans og gera ráðstafanir til þess,
„að hver fiskur, sem til manneldis getur farið, sé
þannig meðhöndlaður, frá því að hann kemur inn fyr-
fr borðsí okkinn og þar til að hann er kominn til neyt-
andans, að allir aðilar geri sér grein fyrir því, að ver-
ið sé að meðhöndla viðkvæma matvöru, sem neyt-
endur gera kröfu til að sé fyrsta flokks “
Til þess að svo megi verða þarf samvinnu sjómann-
anna og þeirra, sem við aflanum taka þegar að landi
kemur. ’Takist þetta verður aflinn verðmeiri og hlut-
ur sjómanna um leið hærri. Það eru æskilegustu kjara-
bæturnar af því að þær koma af aukinni getu fram-
leiðslunnar, sem vitaskuld er hér eins og endranær
hinn eini raunhæfi grundvöllur kjarabótæ
VIS IR . Laugardagur 29. nóvember 1969.
rnnr i i i i mn iinriii iii iiwi—nr——■mhihm M i i m .
Fugl fellur fyrir olíunni og barizt gegn olíupestinni — þegar ,Torrey Canyon* strandaði '
við Bretlandsstrendur.
ER MAÐURINN AÐ TOR-
TÍMA SJÁLFUM SÉR?
V'isindamenn óttast
□ 123 000 tonn af olíu
runnu út í sjóinn,
þegar olíuskipið „Torr-
ey Canyon“ brotnaði við
Bretlandsstrendur árið
1967. Útgerðarfélagið
hefur nú boðið nær sex
milljónir króna í skaða-
bætur ríkjum þeim, sem
biðu tjón af þessu,
Frakklandi og Bretlandi.
10 000 sjófuglar urðu
hungurmorða fyrir
nokkrum vikum í ír-
landshafi. Eiturgas, sem
sökkt var eftir seinni
heimsstyrjöldina, er tal-
ið hafa mengað sjóinn.
Fjórum milljónum tonna
af skordýraeitri með
klóri er dreift yfir jörð-
ina ár hvert.
Mikiö magn af skordýraeitr-
inu DDT hefur safnazt í manns-
líkamann, segja vísindamenn i
Bandaríkjunum. Kjöt af dýrum
með svipuöu eiturmagni yrði tal
ið óætt. DDT orsakaði krabba-
mein í lungum og lifur músa,
samkvæmt rannsóknum í Banda
ríkjunum. Unnið er að því víöa
að minnka þessa daglegu og
„lúmsku“ hættu, sem mannkyn-
inu er búin.
Endalok fuglalífs við
Kaliforníustrendur
Bandaríska visindaritið „Sci-
ence“ upplýsti í stuttri grein ár-
!ð 1968, aö DDT tálmaöi plönt-
unum f vinnslu þeirra á blað-
grænu úr orku sólar. Vísinda-
maður í Kaliforníu smíðaði árið
eyðingu jurta og dýra
1969 orðið „Ökohrun", sem tákn
ar það, að maðurinn eyöileggur
sjálfan sig. Veldi hans hrynur í
rúst vegna hans eigin aðgerða,
svo sem að eitra fyrir sjálfum
sér náttúruna, sem hann lifir af,
deyða fugla sína og fiska. Kali-
fomíumanni þessum rann til
rifja, þegar fuglar dóu unnvörp-
um við strönd Santa Barbara
og hann boöaði endalok alls
fuglalífs við Kaliforníustrendur,
vegna þess að kolvetnin (til
,dæmis í, skpr^ýraeitrj) hindfa
viðkomu þeirra.
Main.
Pessi kenning var svo útfærð
af líffræðingnum dr. Erlich, einn
ig frá Kaliforníu. Hann spáði
endalokum alis lífs í sjó fyrir
árið 1979. Orsakirnar voru þær
sömu, maðurinn eitrar fyrir sjálf
um sér. Mengunin í lofti dregur
úr sólarljósi og eiturefni smjúga
jafnframt inn í jurtimar. Hvort
tveggja vinnur saman að útrým-
ingu jurtalífsins, einkum í sjón-
um.
Hörmulegast fyrir
fiskveiðiþjóðir
Lifverurnar lifa hver á ann-
arri. Dýr merkurinnar og gróður
f eitrun og mengun
jarðar eru fæða mannsins. Bili
hinn minnsti hlekkur í keðjunni,
rofnar hún. Öll þekkjum viö ö.r-
lög geirfuglsins og vandann að
halda lífi í islenzka erninum.
Einn mesti voðinn er búinn þjóð
um, sem lifa af sjónum. Emil '
Jónsson, utanríkisráðherra, hef-
ur lagt þunga áherzlu á vanda- •
málið af vaxandi mengun sjáv- ,
ar, er hann hefur talaö á þingi ,
Sameinuðu þjóðanna. Þau sam- '
tök hafa einnig tekið vandamálið '
til meöferðar. >'
Ómældir skammtar af eitur- •
efnum streyma frá iðjuverum t
út í sjó og vötn og ár og er ,
blásið í loft upp. Fréttir berast
stöðugt af hörmulegum afleið-
ingum þessa fyrir dýr og jurtir. •
Til dæmis eru stöðuvötn í Banda f
ríkjunum víða svo menguð við f
strendur, að veiði er þar nær,
engin lengur, þar sem fyrir ör- f
fáum árum var gnótt fiskjar. — '
Rannsóknir hafa leitt í ljós, aö ’
fólk veikist af mengun í lofti, /
einkum í stórborgum með sinn,
mikla fjölda bifreiða.
Miklir hagsmunir
Víöa er reynt aö sporna við
þessari óheillaþróun. — Menn
segja þó í Bandaríkjunum, að
sektir, er fyrirtæki greiði vegna
eitrunar andrúmslofts og vatna
séu lægri en kostnaðurinn yrði
við að koma upp varnarkerfi viö
menguninni. Fyrirtækin greiði 1
þvi heldur sektina, og flytji eft-1
ir megni ýfir 1 verðlagið, heldur ,
en að gera úrbætur.
Miklir fjárhagslegir hagsmun--
ir koma hér við sö,gu. Það er-
ekkert smáræðisátak, þegar ráð-
izt er gegn skordýraeitrinu DDT'
eða cyklamat eöa til dæmis'
vindlingum, þar sem milljaröa,
fyrirtæki og samsteypur eiga í
hlut. Þó benda þessi atriði til'
þess, aö einhver skriður sé að '
komast á andófið gegn því, sem,
sumir vísindamenn kalla „sjálfs-
morð mannkynsins". •
Þeir segfa...
„Gleymið ekki
Niirnberg“
„Bapdarjkjamönnum ber að
segja heimipum sannleikann,
bæði sem þjóð og sem einstaki-
ingar innan heildarinnar, Gera
verður grein fyrir málinu f smá
atriðum og gera það opinbert..
Út úr þessu kynni að skapast ró
samari íhugun og ný byrjun,
sem er Bandaríkjunum mikilvæg
ara en það, hversu margir her-
menn falla og særast í Víetnam.
Segja ætti í hreinskilni, að um
þjoðamiorð sé að ræða. Fjölda
morðum í þorpum í Suður-Víet-
nam má aöeins samlikja við
glæpi fasista í Evrópu og fjölda-
morð á myrkustu tímum nv-
lenduveidanna.
Bandaríkjamenn höfðu for-
vstu í Niirnberg-réttarhöldun-
um. Þeir vita, hvers vegna þau .
voru haldin.
Allur heimurinn er nú að
minna þá á þetta og aövara, og
gerir þaö í góðum tilgangi."
Borba (Júgöslavíu)