Vísir - 07.01.1970, Síða 2
2
V í S IR . Miðvikudagur 7. janúar 1970.
Sundstúlka með krafta bjarnarins
Það verður erfitt fyrir nokkra
þjóð að þoka Bandaríkjamönn-
um um set í sundinu. Þar gnæfa
Bandaríkjamenn yfir alla aðra
og eiga 22 af 32 viðurkennd-
um heimsmetum.
Debbie Meyer, hin 16 ára sund-
%efur fyrir löngu skráð nafn
iyflt
kona
sitt gyHtu letri í sögu sundíþróttar-
innar. Það gerði hún raunar í sund-
laug Olympíuleikanna í Mexíkó. Nú
á hún 4 heimsmetanna. Þá var ljóst
aö hún var bezt í heiminum í skrið-
sundi. Og það er hún enn og hefur
Getraunir vikulega
Fyrsti seðillinn kominn í umferð.
Skilafrestur til fimmtudagskvölds.
Ath. 10 vikna fastir seðlar hjá íþróttafélögunum eða frá
GETRAUNIR
íþróttamiðstöðinni, Laugardal
jafnframt bætt sig á síðasta ári í
þrem greinum skriðsundsins.
Sundstjömur verða sjaldnast
lengi á toppnum. Þannig varð Don
Shcollander heimsfrægur 18
ára gamall, vann 4 OL-gull í Tokyo,
en þegar haldið var til Mexíkó 4
árum síðar, — þá var hann of gam-
all. Annar maður var setztur í há-
sætið, Mark Spitz að nafni, einnig
Bandaríkjamaður.
Debbie er enn á toppnum. En
hversu lengi varir það?
„Ég get ekkj svarað þvi,“ segir
hrtn, „ég syndi fyrir ánægjuna og
það getur hent að næsta ár langi
mig ekki lengur til að synda ...“
Heimsmet hennar eru þessi:
200 m skriösund 2.06.7 mín.
400 - — 4.24.5 —
800 - — 9.10.5 —
1500 - — 17.31.2 —
Fyrir Debbie þýöir sumarfríið frá
skó’lanum lítið annað en bláar sund-
laugar, klórlitað hár og sólbrennda
handleggi og fætur. Þegar Debbie
hitti hinn fræga Þjálfara sinn,
Sherm Chavoer fyrst, þá sagði hann
henni að synda 20 laugarlengdir, —
Debbie gat synt 3 og með naumind-
um klifrað upp úr aö því loknu.
Þetta gerðist fyrir 5 árum og nú
á hún 4 heimsmet og syndir 15
kflómetra á dag.
Það era víst fæstir, sem trúa því
hversu mikill kraftur og hraöi er í
grönnum handleggjum þessarar
ungu stúlku með engilsásjónuna og
uppbretta nefið, en það sjá menn
fyrst, þegar þeir sjá hana synda.
En hver er leyndardómurinn að
baki svo góðs árangurs: Chavoer,
þjálfari segir um það: „... að hún
veit ekki almennilega, hversu góð
hún er í raun réttri ...“
Fengu beztu
dóma fyrir dóma
sína / Noregi
• Tveir íslenzkir handknatt-
leiksdómarar, Magnús V.
Pétursson og Valur Bene-
diktsson, áttu heldur en ekki
góða ferð til Noregs á dögun-
um, en þar dæmdu þeir lands
leik í kvennaflokki milli Nor-
egs og Svíþjóðar. Samkvæmt
blaðaúrklippum, sem okkur
hafa borizt, er það einróma
álit að þeir hafi verið ís-
lenzkri dómarastétt til mikils
sóma.
Það er nokkuö umliöið síðan
leikirnir fóru fram, en full á-
stæða til aö benda á það sem vel
er gert, ekki síður en það sem
mönnum kann að finnast ámæl-
isvert og því segjum við frá
þessu nú.
Stærsta blað Noregs, Aften-
posten, segir þá Val og Magnús
hafa komið alveg óaðfinnanlega
út frá fyrri leiknum, og eftir
síðari leikinn að þeir fái enn
góða einkunn fyrir störf sín. 1
sama streng tekur Moss Avis
og Frederiksstad Blad hælir
þeim á hvert reipi. Moss Avis
hefur iafnvel svo mikið við að
myndskreyta síöur sínar með
myndum af dómurunum, sem er
fremur sjaldgæft, a.m.k. hér á
landi, og segir blaðið að dómar-
amir að þessu sinni komi frá
Sögueynni og beri hin hljóm-
fögra nöfn Valur og Magnús!
Eyleifur nú aftur
með fyrrí félögum
Eyleif.ar skorar fyrir landsliðið í leiknum á sunnudaginn var.
Þetta var fyrsti leikur Eyleifs sem Akurnesings s.l. 4 ár.
■ Sókndjarfasta fram-
línan í 1. deild fær góð-
an kraft með sér í vetur
og sumar, Eyleifur Haf-
steinsson hefur nú skipt
um liti, kastar KR-peys-
unni, svarthvítu, en tek-
ur upp aftur gula bún-
inginn sinn, búning
Akranessliðsins. Eflaust
verður hann góður upp-
byggjari sem tengiliður
með liðinu, en búast má
við að hann verði eink-
um í þeirri stöðu með
liði sínu.
Eyleifur hóf að leika meö
Akurnesingum kornungur, að-
eins tæpra 17 ára gamall. Eftir
að hann hóf nám í rafvirkjun
settist hann aö í Reykjavík og
undanfarin 4 ár hefur hann ver-
ið hér og leikið með KR. Er
vart nokkur vafi á að KR hefur
notið mjög góðs af vist hans hér
f borginni, en að sama skapi
hafa Akumesingar saknað góðs
krafts.
Það vakti mikla athygli, þegar
Ríkharður Jónsson tefldi fram
hinu unga liði sínu s.l. vor, —
en liðinu vegnaði betur en nokk-
urn óraði fyrir. Næsta sumarætti
að verða gott ár fy.'ir Akurnes-
inga, — ekki sízt nú, þegar Ey-
leifur hefur aftur snúið heim.