Vísir - 07.01.1970, Blaðsíða 3

Vísir - 07.01.1970, Blaðsíða 3
VISIR . Miðvikudagur 7. janúar 1970. 3 7 V : . . . ■ •: • . Eigendaskipti aö frysti- húsi á Ólafsvík @ Kirkjusandur hf. á Ólafsvík hefur selt hraöfrystihús sitt i Ólafsvík ásamt öðrum eign- um þar til HraÖfrystihússins Hólavalla hf., en þaö félag var stofnaö 1 því skyni aö annast rekstur frystihúss á staönum. Hólavellir hafa þegar hafiö starf semi sína. Blankir ballgestir • Eftir rúmlega árslanga reynslu virðist mega draga þá ályktun af rekstri Tónabæjar, félagsheimilis yngri og eldri borgara Reykjavikur að félags- lega sé hún mjög góö, — en fjárhagurinn er í molum að sögn Geirs Hallgrímssonar, borgar- stjóra. Um 60 þúsund gestir sóttu húsið fyrsta starfsáriö og hefur komið í ljós aö ungling- amir eiga yfirleitt ekki peninga nema fyrir aögangseyri og einni gosflösku. Jafnvel hefur borið á því að þeir skipti á milli sín innihaldi flöskunnar. Mörg kvöld kom í ljós að aðeiös hafði veriö keypt fyrir 10 krónur að meðaltali á gest. Eitt hænufet á dag! • Nú er sólin farin að hækka á lofti, — þaö er sagt að þaö sé eitt hænufet á dag og sann- arlega munu menn verða varir viö, aö hænufet þetta lengir dag inn í báða enda og fyrr en var- ir er komið vor. Og vonandi er hægt að reikna með sólríkara sumri en því, sem við fengum hér sunnanlands í fyrra. 1 von um þaö setjum viö þessa mynd meö til aö minna menn á hvem ig sumar getur verið. Þessa mynd tók Lennart Carlén á Ba- hama þar sem Loftleiðir hafa talsvert umleikis. Stúlkan vinn ur hjá Loftleiöum (Air Bahama) og er sænsk flugfreyja og reynir hér klifurtækni í pálmatrjánum. 64 létust. — 83 bjargað • Alls biðu 64 bana á síöasta ári í ýmsum slysum á Islandi, — en 83 voru hrifnir úr greipum dauðans. Eru þessar tölur fengn ar frá Slysavarnafélagi íslands nú um áramótin. Þúsund króna skuld — uppboð á fasteigninni • Lögtaksaögeröum fylgir jafnan talsvert umstang. Lög- lærðir menn þurfa að eyöa dýr- mætum tíma sínum til aö inn heimta það, sem lánardrottni ber. Ekki em þó feitir bitar alls staðar, t.d. má sjá í síðasta Lög- birtingarblaði uppboöstilkynn- ingu vegna skuldar að upphæö 970 krónur og 30 aurar, en þessu fylgja raunar vextir og kostnaður. Heiðraðir fyrir snyrtimennsku • Fegrunamefnd Reykjavikur borgar hefur starfað að margvfs legum málum á nýliðnu ári, gekkst t.d. fyrir fegrunarviku og teiknisamkeppni í skölum borg arinnar. Mörgum einstaklingum og fyTÍrtækjum var skrifað og farið fram á úrbætur í mörgu sem nefndin taldi að betur mætti fara. Öllum slíkum beiðn um var vel tekið og jafnan lag- fært það sem beðið var um. Nú fyrir áramótin heiöraöi nefndin fimm verzlanir fyrir jafnbeztar gluggaskreytingar: Parlsartízk- una, Silla og Valda, Austur- stræti, Rímu, Skartgripaverzl. Guðlaugs Magnússonar og Ol- ympíu. Þá fengu 4 fyrirtæki verölaun fyrir snyrtilegan frá- gang lóöa: Opal, Vifilfelí (Coca Cola), Osta og smjörsalan og Gefjun Snorrabraut (þar eru og til húsa ÁTVR, Kjöt og græn- meti og Dráttarvélar). Átti sjálfur hugmyndina að skrifborðinu 0 Það er mikils virði fyrir þá, sem við skrifborð starfa, að borðin séu að öllu leyti þann ig gerð aö gott sé að starfa við þau. Ein tégund skrifborða kann að passa fyrir einn en ekki ann an. Einar Ölafur Sveinsson, for- stööumaður Handritastofnunar- innar fékk smlðaö fyrir sig ný- stárlegt skrifborð, sem hann átti sjálfur hugmyndina að, og sést hann á myndinni sitja við borð sitt. Á boröinu er skrifplata, en sé henni lyft, þá er þar ágæt- asta ritvélarborð undir, en rit- vélar þurfa að sitja lægra en á skrifborösplötu svo vel sé. E.t.v. er þarna góö hugmynd fyrir framtakssama húsgagnafram- leiðendur? Ef eg ætti miiijón Biddi baddi baddi Ekki bara draumur í leikhúsi. Vinningsmiði í happdrætti SÍBS getur breytt draumnum í' gleðilegan veruleika. íbúð, bíil. ferðalag. Vandalaust að koma vinningnum í lóg. Hæsti vinningur í happ- drætti SÍBS er ein milljón króna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.