Vísir - 10.01.1970, Page 16
VISIR
Laugardagur 10. janúar 1970.
Líkur
i»
Bíða veðurs til
að nó í sjúkling
tsl Grænlands
Hjálparbeiíjni barst í fyrradag
til Reykjavíkur vegna manns í
Uanneborg í Grænlandi. Mun mafi-
urinn vera með sprunginn botn-
langa og þarf að komast undir
Iæknishendur sem fyrst. Var Flug-
þjónusta Bjöms Pálssonar beðin
um flugvél, en Bjöm sneri sér til
Flugfélagsins, sem hafði í gær til-
búna flugvél af DC-3 gerð, ef hægt
yrði að fljúga norður til Grænlands.
Þar var þá enn versta veður,
snjókoma og hvassviðri, þannig að
ekki var útlit fyrir að hægt yröi
að fljúga fyrr en e. t. v. í dag, ef
véður breytist til batnaðar.
Með flugvélinni mun verða send
ur íslenzkur læknir, þegar farið
verður. 1 Danneborg, sem er norð-
arlega í Grænlandi er tarfrækt
veðurathugunarstöð, en læknir er
þar enginn.
Flugvöllurinn í
Eyjum lokaðist
vegna snjókomu
S ■ Líkurnar til þess að
• hæsti vinningur í Há-
2 skólahappdrættinu falli
• tvisvar sinnum á eitt-
2 hvert númer á 8 ára
j tímabili eru alls eklci
1 eins litlar og ótölfróður
j maður kynni að álíta.
• Tölvísindin segja, aö líkindi til
2 þess að það geti gerzt, séu 1 á *
• móti 12 eða um 8%. Á einu ári •
• eru líkindin hins vegar aðeins •
• tíundi hluti af einu prósenti, eða J
• einn á móti þúsund. — Félagarn •
1 ir á Selfossi, sem tvisvar hafaS
• unnið hæsta vinning á sama J
• númer eins og skýrt var frá»
J hér i blaðinu gátu hins vegarj
• ekki reiknað með þessum lík- •
2 um, þegar þeir keyptu miðann2
J fyrir 10 árum. Það kemur nefni-J
• lega í ljós, þegar tölfræöin er»
J könnuð. að líkindi þess, að á-J
•••••■•••••••••••••••••••
kveðinn miði fái hæsta vinning
á 10 áia mill’"'ili er aðeins 7
móti 10 milljónum. Líkindi þess,
að þeir fengju tvisvar hæsta
vinning á sama númerið voru
því afar litlar, þó að forráða-
menn Háskólahappdrættisin'
megi . ikna með þv: að 8% lík-
indi séu til þess á 8 ára tíma-
bili, að einhver miði fái tvisvar
hæsta vinninginn.
Reiknisjöfnur sem gilda fyrir
þessi dæmi eru þessar, ef ein-
hver skyldi vilja fá að reikna
nánar út, hvernig dæmið lítur
út: Líkur á því að einhver miði
fái tvisvar hæsta vinning eru
reiknaðar út eftir formúlunni:
n (n —1)
2 (fjöldj miða)
Þarna þýðir n fjöldi útdrátta,
en fjöldi miðanúmera er 60.000.
Til að reikna út líkindi þess að
ákveðinn miðj fái tvisvar hæsta
vinning á ákveðnu tímabili verð
ur að nota eftirfarandi formúlu:
n (n—1)
2 (fjöldi miðaj*
Þessar formúlur hafa þann
annmarka, að fjöldi útdrátta má
ekki vera meiri en 24f íða 20
ár. Ef reiknað er út úr dæminu
sést, að líkindi þess að þetta
gerist eru um 50% á 20 ára
tímabili.
Fremur er það óvenjulegt að
Vestmannaeyjaflugvöllur lokist
vegna snjókomu, en þó hefur
þetta verið að gerast undan-
Einróma dómar —
en dræm aðsókn
GAGNRÝNENDUR dagblaðanna
hafa allir með tölu lokið lofsorði
á sýningu Leikfélags Reykjavíkur
á Antigónu eftir gríska fomskáldið
Sófókles, en það hefur ekki gerzt
um langt skeið, að leikrit fengi svo
einróma góöa dóma. Þrátt fyrir
þetta hefur aðsókn að leiknum ver-
ið fremur dræm til þessa og yfir,-
leitt hefur dregið mjög úr aðsókn
að leikhúsunum núna eftir tilstand-
ið, en aðsókn var mjög góð í
haust hjá báðum húsunum. Næsta
sýning á Antigónu verður annað
kvöld. Leikstjóri að sýningunni er
Sveinn Einarsson, en með stærstu
hlutverkin fara Jón Sigurbjörns-
son og Helga Bachmann.
Sildveiði við
SV-land bömuð
frá 15. febrúar
• Á þessu ári er óheimilt að
veiða meirj síld en 50 þúsund
lestir á svæðinu við S-V-land og
veiði á síld á þessu svæði er bönn-
uís á. timabilinu. frá 15. febrúar
trr 15. september, nema hvað und-
anþága verður veitt til veiða til
niðursuðu eða annarrar vinnslu til
manneldis aö fengnu áliti Haf-
rannsóknarstofnunarlnnar.
• Þessi friðunarákvæði voru sett
af sjávarútvegsmálaráðuneyt-
inu í gær. Jafnframt var ákveöiö
með reglngerð að lágmarksstærð
sildar, sem veiða má viö S-V-lamS l
skal vera 25 cm. Veiði hefur sem
kunnugt er verið mjög dræm á
þessu svæðj að undanförnu og það
sem veiözt hefur upp á síðkastið
mest smásíld, sem naumast nær
þessari lágmarksstærð.
Kviknar \
Þjóðviljanum
© Slökkviliöið var í gærdag kl.
14.30 kvatt að Skólavörðustíg 19,
þar sem Þjóðviljinn er til húsa,
en þar hafði kviknað í rusli við
timburþil og hafði eldurinn Iæst
sig í þilið. Fljótlega tókst þó að
ráða niðurlögum eldsins og varð
tjón lítiö sem ekkert.
Gistiaðstaðan á Egilsstöðum
mun batna að miklum mun
næsta sumar, — en þar hefur
fyrsta „mótelið“ væntanlega
göngu sína í vor. Þangað fluttu
Fosskraftbílar alls 21 hús í júlí
í fyrrasumar og hefur húsun-
um nú verið komið upp að nýju
rétt sunnan við héraðsheimilið
Valaskjálf.
Hús þessi stóðu áður austur við
Búrfell, en Austfirðingar sáu leik
á borði og keyptu húsin eftir að
Fosskraft haföi notað þau. Á nú
aðeins eftir að mála húsin og snur-
fusa áður en hægt verður að opna
þau sumardvalargestum, sem leita
austur á ’and í sumarleyfi, en í
fyrrasumar var talsvert um að fólk
leitaði af rigningarsvæðunu3» j
ina á Austuriandi.
1 hverju húsi er eitt herbergi og
sagði Ásdís Sveinsdóttir, forstöðu-
kona í Valaskjálf í gærkvöldi, að
húsin létu tiltölulega lítið yfir sér
í Egilsstaðabyggö.
farrta vetur, einkum í janúar og
febrúar að sögn Bjarna Herj-
ólfssonar, flugumferðarstjóra í
Eyjum. í fyrradag lokaðist völl-
urinn vegna snjókomu og var
unnið í gær að því að ýta af vell
inum, en þar var 10 sentimetra
snjólag og nokkuð barið í skafla
í 6 vindstiga norðanátt, sem var
að skella á um miðjan dag.
Farþegaflug hefur ekki verið til
Eyja í 3 daga, en vonazt var til að
úr rættist, er ýta flugvallarins lyki
verkinu. Tvær ýtur eru á vellinum,
en önnur bilaði, en svo illa vildi til
að ýta bæjarins og veghefiil voru
einnig í lamasessi, þegar þeirra
varð svona skyndilega þörf.
í fyrra kom talsverður snjór í
Eyjum, á flugbrautum mældist
snjór a. m. k. 25 sentimetrar þegar
hvað mest var.
Ein flugvél lenti þó í Eyjum í
gær, það var sjúkraflugvél Björns
Pálssonar, sem sótti 7 ára barn,
sem þurfti að komast undir hendur
sérfræðings í Reykjavík vegna
meiðsla.
Fjörutíu fyrstu íbúðirnar
verða afhentar næsta sumar
• Fyrstu fjögur stigahúsin
með alls 40 íbúðum í 2. áfanga
byggingaráætlunarinnar í Breið
holti eiga að verða tilbúin til
afhendingar í sumar. Er þessa
dagana verið að steypa upp
fyrstu hæðina í þessum fjórum
stigagöngum, en alls verður
gengið frá grunni undir 100 af
180 íbúðum í vetur.
Það var Breiðholt hf. sem varð
hlutskarpast í tilboðum í uppsteyp-
ingu þessara 180 íbúða, en tilboð
Breiðholts hlióðaði upp á um 62
milljónir, en hæsta tilboð var um
86 milliónir. í þessu verði er inni-
falin lokun húsanna, frágangur á
sameign og frágangur lóða, þannig
að kostnaður á hverja íbúð verður
um 345 þúsund krónur. í þessu
verði er ekki innifalin raflögn eða
hitalögn, en aftur á móti allt múr-
verk.
Erfitt er að bera saman þetta
verð við verð á hinum almenna
markaði, þar sem einstaklingar
skila íbúðunum yfirleitt í öðru
formi, þ. e. fokheldum eöa tilbúnum
undir tréverk, en húsin eins og
Breiðholt skilar þeim falla undir
hvoruga skilgrsininguna. Forráða-
menn Breiðholts hf. teJia þó, að
verð þessara íbúða verði um
20% undir markaðsverði.
21 smáhýsi sett
upp við Valaskjálf
á Egilsstöðum
Fyrsti visirinn að „móteli" á Islandi
l