Vísir - 19.01.1970, Side 3

Vísir - 19.01.1970, Side 3
k VTSI R . IVKnudagur W. janúar 1970. 3 Hallur Símonarson skrifar um ensku knattspyrnuna: Southampton skoraði sigur- markið ísíðasta upphlaupiau — og Everton missti jbó forustuna i 1. deildinni L deild. ^ Loksins eftir árangurslausa bið í fjóra mánuði og reyndar hálfum betur virtust aðdáendur „dýrlinganna“ í Sout- hampton geta fagnað sigri í deildakeppninni og það gegn efsta liðinu, Everton. Aðeins fjórar mínútur voru til leiksloka og Sout- hampton hafði forustu með marki, sem Mike Channon skoraði á 74 mín. „Oh, when the Saints“, hljómaði um allan völlinn — en skyndilega sló dauðaþögn á fjöldann. Vörn Iiðsins riðlaðist — vinstri útherji Everton, John Morrissey fékk knöttinn og lék á tvo vamarleikmenn og skoraði óverjandi fyrir Eric, jöfnunar- mark Everton. Leikurinn hófst að nýju, en það var engin stemmn- ing lengur á áhorfendapöllunum. Áhorfendur voru sem lamaðir — hinn sæti sigur virtist horfinn út í veður og vind, og enn eitt 'jafnteflið blasti við. Mínútumar liðu, tvær og þrjár og leikmenn Everton sóttu og reyndu að færa sér í nyt þetta óvænta mark — en skyndilega breytti Southampton vöm í sókn. Hvað var að ske? — Nýi leikmaðurinn frá Reading, Roy Jenkins (70 þús. sterlings- ' pund) lék með miklum hraða upp hægri kantinn, fram hjá enska ' landsliðsbakverðinum, Keith Newton, og gaf vel fyrir markið. . Og þar var „dýrlingur dagsins“ Mike Channon og hann stökk hærra en allir aðrir og skallaði knöttinn í mark, óverjandi fyrir Gordon West. Það mátti ekki tæpara standa — rétt á eftir flaut- aði dómarinn leikinn af. En 141 sólarhrings blð var lokið — Sout- ' hampton hafði unnið sinn fyrsta sigur í deildakeppninni sfðan 27. ágúst. Og áhorfendur voru fljótir að taka gleði sína aftur — gleði, sem ríkti langt fram á nótt í hafnar- borginni frægu á suðurströnd Eng- lands, þótt frægðarljóminn verði aldrei hinn sami og áður, eftir að „drottningar hafsins", Mary og Elizabet skildu þaðan úr höfn f síð- asta sinn. En „The Saints" eru þó 'að rétta við fölnaða frægð borgar- ■ innar og það eru aðeins fjögur ár síöan Southampt. eignaðist í fyrsta skipti lið í 1. deild. Árangur liösins var það góður s.l. vor, að Sout- hampton var eitt af fjórum liöum •Englands í borgakeppni Evrópu — og vakti þar verðskuldaöa aöiygli, þar tH gæfan sneri enn einu sinni baki við liöinu á keppnist ímab ilinu, og það féíl út eftir tvo jafntefhs- leiki við Newcastle. Mörk á útivelli gilda tvöfalt, og Newcastle skoraöi eitt mark í Southampton, rétt fyrir leikslok. Leikurinn í Southampton var dæmigeröur fyrir ensku knattspym una, einmitt þetta atriði, sem er svo heillandi. Efsta liðið tapaði fyr- ir „botnliði“, og tapið var ekki til- viljun, þvi Southampton var betra liðið. Mike Channon hefði vel getað komiö í veg fyrir angist áhorfenda lokamínútumar, því hann fór illa . meö tvö opin tækifæri í fyrri hálf- leik, þótt hann bætti það vel upp f hinum síðari. Hjá Everton vantaði Alan Ball, sem er í keppnisbanni, og ótrúlegt hvað lið getur breytzt við fjarveru eins manns. Að vísu lék Colin Harway, enskur landsliðs- maður, f hans stað — fyrsti leikur hans í rúma tvo mánuði vegna ■ augnsjúkdóms — en fyllti ekki sæti Balls. Það vantaði þann neista, sem Ball tendrar svo oft f leik liðsins. Við þetta óvænta tap Everton skauzt Leeds í annaö skipti á keppnistímabilinu upp í efsta sæt- ið. Leeds var efst nokkra daga um miðjan desember — og nú er eftir að vita hvort Everton getur komið í veg fyrir sigur Leeds, önnur liö gera það ekki. Leeds sigraöi Cov- entry 3—1, en það var ekki léttur sigur og Coventry sýndi aö liöið er að veröa eitt hið bezta á Eng- landi. Vörn Leeds átti oft í miklum brösum með sókndjarfa framherja Coventry— en Garry Sprake átti enn einn stórleikinn í marki Leeds og varði allt, nema sjálfsmark fé- laga síns Poul Madeley. 1 hálfleik var staöan 2—0 og skoruðu Alan Clarke og Jackie Charlton mörk Leeds. Charlton lék ekki síðari hálf leikinn vegna meiðsla — og eftir sjálfsmark Madeley varö leikurinn aftur mjög „opinn“. En 10 mfn. fyrir leikslok tryggði Clarke sigur Leeds — en þrátt fyrir tvö mörk átti Clarke slakan leik. En við skulum nú líta á úrslitin á laugar- dag; Mike Channon — dýrlingur dagsnis Arsenal—Chelsea 0—3 C. Palace—Nottm. For. 1—1 Derby—Sheff. Wed. 1—0 Ipswich—Bumley 0—1 Leeds—Coventtry 3—1 Liverpool—W.B.A 1—1 Manch. City—Stoke 0—1 Southampton—Everton 2—1 Sunderland—Tottenham 2—1 West Ham—Manch. Utd. 0—0 Wolves—Newcastle 1—1 Það er lftill glæsibragur á leik Arsenal, og leikmenn liðsins voru nánast eins og skemmtiatriði fvrir Chelsea, nema markvörðurinn Bob Wilson, sem var „maður leiksins" og bjargaði liöi sínu frá miklu verra tapi. En þetta var lfka þriðji leikur Arsenal á fimm dögum — og þrátt fyrir sigur gegn franska liðinu Rou- en f borgakeppni Evrópu, veröur þó tapleikurinn gegn Blackpool f bikarkeppninni ensku sár, sem seint grær. Og ekki var leikurinn gegn Chelsea smyrsl á það sár, heSdur eins og brennisteinn, þvi Chelsea sigraði einnig f fyrri leikn- um meö 3—0. Það hafa orðið mikil hlutverkaskipti f knattspymu Lund únaborgar — og Arsenal ekki unn- ið keppni f 17 ár. John Hollings skoraði eina mark Chelsea f fyrri hálfleik, en f þeim síöari skoruðu Ian Hutchinson og Tommy Bald- win. Liverpool, sem tapað hafði sfö- ustu heimaleikjum sfnum, „átti“ all an leikinn gegn WBA, en komst þó í taphættu. WBA var með 8—9 menn í vöm, en náði svo af og til snöggum upphlaupum. Og á 66. mfn. skoraði Tony Brown fyrir WBA úr einu slfku — og eftir það var sókn Liverpool örvæntingar- full, en bakverðinum Chris Lawler tókst þó að jafna. Nýtt áhorfendamet var sett í West Ham, eða rúmlega 41 þúsund svo Manch. Utd. trekkir þótt Ge- orge Best sé ekki með. Þetta var frábær leikur, þótt svo ekkert mark væri skorað og eftir leikinn sagði framkvæmdastjóri West Ham, Ron Greenwood, að það hefði verið synd ef annaðhvort liðið hefði tapað. Einna mesta athygli vakti Clyde Best hjá West Ham, og liðið hefur sannarlega verið heppiö meö þenn- an 18 ára svertingja frá Bermuda, sem hafði ekki séð snjó fyrr en hann kom tii Englands f fyrra! Honum er spáð miklum frama i ensku knattspymunni, og var nærri því að skora, en Carlo Sartori bjargaði á marklínu fyrir United. Leiknum var Iýst f BBC og sagði þulurinn, að það væri furðulegt, að þessi lið skuli ekki blanda sér í keppnina um efstu sætin, jafn glæsi lega knattspyrnu og þau leika. Sunderland er nú í fyrsta skipti á leiktímabilinu ekki f fallsæti, og sigraði Tottenham í annan sinn í vetur. Willy Hughes og Gordon Harris skoruðu gegn Tottenham, er lék án tveggja sinna beztu manna, Pat Jennings og Mike England. En Sheff. Wed, er enn neðst og tap- aði fyrir Derby, þrátt fyrir að liðið hefði verðskuldaö sigur. John O’- Hare skoraði sigurmark Derby rétt fyrir leikslok — og til marks um óheppni Sheffield má geta þess, að Steve Downes tókst aö spvrna yfir næstum á marklfnu, þegar miklu léttara var að skora. Manch. City Staðan í 1. deild er nú þannig: Leeds 29 17 10 2 62-27 44 Everton 28 20 3 5 51-26 43' Chelsea 28 13 10 5 46-31 36 Liverpooi 27 13 9 5 49-30 35 Derby 29 14 5 10 38-26 33, Volves 28 10 11 7 41-33 33 Stoke 28 12 9 7 40-35 33 Manch. Utd. 28 10 11 7 40-38 31 Manch. City 28 11 8 9 41-30 30, Coventry 26 12 6 8 36-28 30. Newcastle 27 11 6 10 32 23 28 Arsenal 28 7 14 8 32-33 28. Tottenham 28 11 6 11 36-40 28. Nott Forr. 28 7 14 7 36-41 28. W.B.A. 27 9 6 12 34-36 24, West Ham 29 8 8 13 34-43 24 Burnley 28 6 10 12 31-43 22. Ipswich 29 6 7 16 27-49 19 South’pton 28 3 12 12 34-49 18, Sunderland 28 4 9 15 19-48 17 . C. Palace 28 3 10 15 25-51 16 . Sheff. Wed. 27 4 6 17 24-48 14 , 1 2. deild er Sheff. Utd. aftur ■ komið í fyrsta sætið, en annað i Yorkshirelið stendur þó langbezt \ að vígi, Huddersfield Town. Orslit \ í 2. deild urðu þessi: \ Aston Villa—Portsmouth 3—5 Blackburn—Watford 1—0 Blackpool—Middlesbro 1—1 Bolton—Huddersfield 1—1 Bristol City—Millvall 1—1 Carlisle—Birminghom 4—3 Charlton—Hull City 1—4 Leichester—Swindon 0—2 Oxford—Norwich 1—0 Q.P.R.—Cardiff 2—1 Sheff. Utd.—Preston 2—0 Efstu og neðstu lið f deildinni eru nú þessi: 29 15 26 14 28 15 27 14 28 14 5 7 5 6 6 9 54-25 35 ; 5 44-27 35 ; 8 39-31 35 ■ 7 45-27 34 I 8 49-36 34 I Cardiff Q.PJL Clyde Best — spáð miklum frama. Preston 27 7 Watford 28 6 Aston Villa 26 4 7 13 29-38 21 / 7 15 30-36 19 ,' 9 13 22-41 17 ) tapaði enn einu sinni og hefur nú ekki unniö leik í deildakeppninni sfðan um miðjan nóvember. Liðið lék þó sæmilega gegn Stoke, en leik menn þess virtust þó vera meö hugann við bikarleikinn næsta laug ardag gegn Manch. Utd. — og Gord on Banks í marki Stoke var þeim einnig erfiður. Tvívegis bjargaði Banks á ótrúlegan hátt frá Oakes og Lee — og Conroy skoraöi svo sigurmark Stoke á 76. mínútu. í 3. deild tapaði Luton f fjórða , sinn í röð — og við það komst Lundúnaliöið Orient í efsta sæti ; með 34 stig. Luton hefur 33 og ‘ Barnsley og Reading 33. í 4. deild ; er Chesterfield efst með 36 stig, , Port Val hefur 35, Wrexham 34 og Brentford og Swansea 33. — Á Skotlandi sigraði Celtic Hibernian ’ f Edinborg 2—1 og keppnin þar , stendur nú aðeins milli Celtic og Rangers. Celtic hefur 36 stig, Rang- ' ers 34 og Hibernian 29. — hsfm. ! Akureyri vann 13:6 í bæja- keppninni — Gerðu út um leikinn i fyrsta kvarteli með 7:1, en leikurinn jafn úr jbvi • Eftir að hafa komizt í 7:1 gegn Reykvíkingum f fyrsta kvartili bæja keppninnar í Skautahöllinni . á laugardagskvöldlð voru úrslit ráðin. — Akureyri gat vart tapað úr því. Hins vegar gerðist leikurinn mun skemmtilegri eftir því sem á leið. Leikurinn var jafn úr þessu og lauk svo, að Akureyri fór með sig- ur af hólmi, skoraði 13 mörk gegn 6. Eru þau úrslit mun betri en oft- ast áður. Reykvíkingar hafa nú fengið fasta æfingatíma f fyrsta sinn í höllinni og gera sér vonir um að ná upp nægilega góöu llði innan skarems til að sigra Akureyringa. Akureyr- ingar hafa haftgóðaaðstöðuívetur ágætan ís utanhúss, og magnið ó- takmarkað að því er frétzt hefur.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.