Vísir - 19.01.1970, Blaðsíða 15
V 1 S I R . Mánudagur 19. janúar 1970.
Tungumál — Hraðritun. Kenni
ensku, frönsku, norskn spænsku,
þýzku. Talmál, þý*;ngar, verzlunar
bréf. Bý námsfólk undir próf og
dvöl erlendis. Auðskilin hraðritun
á 7 málum. Arnór Hinriksson. —
Símj
Kenni íslenzku í íeinkatímum,
hentugt fyrir landsfrófsnemendur
og aðra skólanemendur. — Jóhann
Sveinsson cand.mag. Smiðjustíg
12. Smi 2-18-28 (einkum kl.4-5).
Þú lærir málið í Mími. — Sími
lO?''1 kl. 1-7.
Matreiösla, sýnikennsla. — Ný
námskeið byrja 2., 3., 4. og 5febr.
3 klst., 4 kvöld eftir vali. — Sya
Thorláksson. Sími 34101.
Einkatímar á 130 krónur: Is-
lenzka, danska, enska reikningur,
eðlisfræð. og efnafræði. Nánari
upplýsingar í síma 84588.
’ M YNDFLOSNÁMSKEIÐ
‘ INNRITUN DAGLEGA
HANDAVINNUBÚÐIN, LAUGAVEGI 63._______
MÁLASKÓLINN MÍMIR
1 Lifandi tungumálakennsla. Enska, danska, þýzka, franska,
• spánska, ítalska, norska, sænska, rússneska, fslenzka fyrir
, útlendinga. Innritun kl. 1—7 e. h. Símar 10004 og 11109.
KAUP—SALA
MÁLVERK — MÁLVERK
1 Nokkur góö málverk eftir þekkta listamenn til sölir. —
1 Lysthafendur sendi nafn og símanúmer í pósthólf 1089
, Reykjavík .
KJÖRGRIPIR GAMLA TÍMANS
Klukkur, 6 gerðir. Ruggustólar, 5 geröir. Borðstofusett,
4 gerðir. Svefnherbergissett, 2 gerðir. Úrval sérstæðra
1 hluta af ýmsu tagi. Opið frá kl. 14—18 og laugardaga kl.
14—17. ANTIK-HÚSGÖGN, Síöumúla 14, Rvík. Sími
• 83160.
„Indversk undraveröld“
Nýjar vörur komnar
Langar yður til aö eignast fáséðan
hlut? í Jasmin er alltaf eitthvað fágætt
aö finna Mikiö úrval fallegra og sér-
kennilegra muna til tækifærisgjafa. —
Austurlenzkir skrautmunir handunnir úr margvíslegum
efniviði. m.a. útskorin borð, hillur, vasar, ská!ac. bjöllur,
stjakar, alsilki, kjólefni, siæöur, herð-sjöl o. fl. Margar
tegundir af reykelsi. Gjöfina, sem veitir varanlega ánægju
fáið þér í JASMIN, Snorrabraut 22.
Kápusalan Skúlagötu 51, auglýsir
Kvenkápur úr camelull, þrír litir, terylenesvampkápur
loðfóöraðar, terylenejakkar, terylenekápur og herra-
frakkar. Teryleneefni í metratali og bútum, einnig margs
konar efnavara á mjög hagstæðu verði
Nýkomin íslenzk dagatöl, verð kr. 30.
Ullarjafi í mörgum litum. Alltaf eitthvað nýtt, úrval af
hannyrðavörum. Handavinnubúðin Laugavegi 63.
BIFREIDAVIDGERDIR
ALSPRAUTUM OG BLETTUM BÍLA
úr hinum heimsþekktu VIEDULUX-bnalökkum. Bfllinn
fær háan varanlegan gljáa, Bflasprautun Kópavogshálsi.
Sfmi 40677.__________________________
BÍLASTILLING DUGGUVOGI 17
Kænuvogsmegin. Bifreiðaeigendur. Framkvæmum mótor-
stillingar, Ijósastillingar, hjólastillingar og balanceringar
fyrir allar gerðir bifreiða. Sími 83422.
ÞJÓNUSTA
SILFURHUÐUN
Tökum að okkur að silfurhúða gamla muni. Sækjum —
sendum. Símar 15072 og 82542,
Bólstrunin Strandgötu 50 Hafnarfirði
Klæðum og gerum við bólstruð húsgögn. — Sími 50020.
Kvöldsfmi 52872.
HU S A VIÐGERÐIR — 21696.
Tökum að okkur viðgerðir á húsum úti sem inni. Setjum
f einfalt og tvöfalt gler. Skiptum um og lögum þök,
einnig þéttum við sprungur og steyptar rennur. Útvegum
allt efni. Upplýsingar í sfma 21696.
______________________
11111111 .mMammuiMmiamaEBSsíBeBaanmm
Radíóþjónusta Bjarna, Síðumúla 7, sími
83433
önnumst viðgerðir á útvörpum og sjónvörpum. Leggjum ■
sérstaka áherzlu á bifreiöaviötæki og allt sem þeim við'
kemur. .
Húsbyggjendur — tréverk — tilboð
Framleiöum eldhúsinnréttingar, svefnherbergisskápa o.fl.,
Höfum allar tegundir haröplasts. Harðviö: álm, eik, tekk,,
palisander. Teiknum og leiöbeinum um tilhögun. Gerum
fast verðtilboö. Greiðslufrestur. Uppl. á verkstæöinu. —
Hringbraut 121 III hæð og 1 sfma 22594 eftir kl. 7.
Ný þjónusta: INNRÉTTINGAR — SMÍÐI
Tökum að okkur smíði á eldhúsinnréttingum, svefnher-
bergisskápum, þiljuveggjum, baðskápum o.fl. tréverki. —!
Vönduð vinna mælum upp og teiknum, föst tilboð eða :
tfmavinna. Greiðsluskilmálar. — S.Ó. Innréttingar að 1
Súðarvogi 20, gengið inn frá Kænuvogi. Uppl. f heimasím I
um 14807, 84293 og 10014. ___________________,
PÍPULAGNIR .
Skipti hitakerfum. Nýlagnir, viðgerðir, breytingar á vatns ,
leiðslum og hitakerfum. Hitaveitutengingar. Þétti heita,
og kalda krana. Geri við w.c. kassa. Sími 17041 Hilmar '
J H. Lúthersson, pfpulagningameistari.
SVEFNBEKKJAIÐJAN
Klæðum og gerum upp
W BÖLSTRUN11 bólstruð húsgögn.
i
Dugguvogi 23. sími 15581. ■
Fljótt og vel unnið. Komum meö áklæöissýnishom. Ger- >
um kostnaðaráætlun ef óskað er. Sækjum — sendum. >
ER LAUST EÐA STÍLFAÐ?
Festí laus hreinlætistæki. Þétti krana og WC-kassa. —,
Hreinsa stffiuð frárennslisrör með lofti og hverfibörkum.,
Geri við og legg ný frárennsli. Set niður brunna. — Alls
konar viðgerðir og breytingar. Þjónusta allan sólarhring-
inn Sími 25692 Hreiðar Asmundsson.
■■■ ' ■■.1 I
ER STÍFLAÐ?
Fjarlægi stfflur úr vöskum, baökerum, WC rörum og >
niðúrföllum. Nota til þess loftþrýstitæki, rafmagnssnfgla >
og fleiri áhöld. Þétti krana set niöur brunna, geri viö biluð ,
rör og m. fL Vanir menn. Valur Helgason. Sfmi 13647 og ,
33075. Geymiö auglýsinguna.
VERZL. SILKIBORG AUGLÝSIR
Höfum fengiö hið margeftirspurða hvíta terylene aftur.
Utsalan hófst á mánud. M.a. á útsölunni: Brjóstahaldarar
frá 125 kr. alls kyns nærfatnaður, efnisbútar peysur barna
buxur o. fl. — Verzl. Silkiborg, Dalbraut 1 v/Kleppsveg.
Sfmi 34151.
Bólstrun — klæðning
Þeir sem eiga bólstruð húsgögn, sem þarfnast viðgerðar
og vilja nýta vinnu mfna, það yrði vel þegið að þeir
heföu samband við vinnustofu mína Njörvasundi 24 var
áður á Langholtsvegi 82). Sigsteinn Sigurbergsson, hús-
gagnabólstrari. Sími 34160.
Glertækni hf. Ingólfsstræti 4, sími 26395.
Ný þjónusta. Framleiðum, tvöfalt einangrunargler og sjá- ’
um um fsetningar og einnig breytingar á gluggum og við-'
hald á húsum, skiptum um járn og þök o.m.fl. Afborgunar-1
skilmálar. Vanir menn. Glertækni h.f. Ingólfsstræti 4, sfmi :
26395 Heimasímar 38569 og 81571. ;
JO
Douglas ýtti glasinu frá sér,
reiðilaust, enda þótt honum gæt-
ist ekki að drykknum eftir það,
sem á undan var gengið. Hann
snerj sér að Leech, sem hafði nú
ekki lengur fluguna dauðu til aö
fylgjast með, en beindi athygl-
inni að sínu eigin glasi, sem hann
bar að vörum sér. Barþjónninn
og hinir Arabamir, sem inni vora
staddir störðu allir á Douglas
þótt þeir létu lítiö á bera.
Leech drakk í botn í einum
teyg, setti glasið sfðan aftur á
borðið, en lukti þó um það hönd
siimi og Douglas fannst helzt að
hann handléki það eins og vopn.
Hann sneri sér að Douglas, og
hélt enn um glasiö.
„Þú varst að spyrja eftir Mast-
ers höfuðsmanni?“
„Hvert ert þú?“ Douglas geröi
það með vilja að spyrja eins og
maður af brezkri miðstétt; ætti
hann tal við broddborgaralegan
hermann, mundi hann móögast
við og Douglas leizt þaö jafn
gott.
En hann þurfti ekki að vera
neitt að íhuga áhrifin, þegar
Leech var annars vegar; hann virt-
ist ekki taka neitt tillit til þess.
„Leech heiti ég“.
„í brezka hemum?“
Leech dró svarið nógu lengi til
þess að hinn kæmist ekki hjá að
sjá fyrirlitninguna í svip hans.
„Nei,“ svaraöi hann og sleppti
tökum á glasinu. „Komdu með
mér“.
Douglas, sem enn var staðráð-
inn í aö láta ráðast hvað úr yröi,
svaraði engu, en tók föggur sfnar
og fylgdi Leech eftir gegnum
hliöardyr á veitingastofunni og
síðan um langan og þröngan gang.
Leech nam staöar við dyr, og
Douglas hafði naumast tíma til
að lesa nafnið „Masters höfuðs-
maður“ á spjaldi á huröinni og
endurtekningu þess á arabfsku
letrj fyrir neöan, áður en hann
stóö inni f stóra og heldur óvist-
legu herbergi. Leech benti á hann
með þumalfingrinum.
„Einhvers konar hermaður,
sem spyr eftir yður, höfuðsmaö-
ur“.
Maðurinn, sem sat fyrir innan
skrifborðið, leit hikandi upp, djúpt
hugsj og utan við sig, og þegar
Douglas virti fyrir sér sólbrennt,
órakað andlit hans, datt honurn
helzt í hug fomfræðingur, sem
staðið hefði í erfiðum uppgrefti
einhvers staðar inni á sandauðn-
inni.
„Masters höfuðsmaður?“ spurði
hann hæversklega.
Maöurinn fyrir innan skrifborö-
ið kinkaði kolli. „Rétt er það“,
sagði hann.
Douglas rétti úr sér og skellti
saman hælunum um leið og hann
bar höndina aö húfuskyggninu.
Masters virðist bregöa við og
svipur hans varð dálítið vand-
ræðalegur.
„Þetta er öldungis óþarft“,
sagði hann. „Þú munt vera
Douglas liðsforingi. Leggðu frá
þér farangurinn og fáðu þér sæti
...“ Hann leit til hliðar, þangað
sem Leech hafði hlammað sér
niður á stól. „Lecch liðsforingi og
aðstoðarmaður minn“, sagði hann
næstum kæruleysislega.
Douglas, > sem var ekki seztur
enn, vildi reyna að vera vingjam-
legur. „Komið þér sælir, liðsfor-
ingi, sagði hann. „Við hvaða her-
fylki?“
„Fjórða brynvaröa herfylkið,
sem einu sinni var“.
Douglas reyndi að dylja vand-
ræði sín, vildi ekki láta á því bera
að hann skildi að sér hefði veriö
svarað út í hött. Masters höfuðs-
maður lét sem hann heyrði ekki
orðaskipti þeirra.
„Þér vitið til hvers þér eruð
hingað kominn, Douglas?“ spurði
hann.
„Mér skilst að ég eigi að stjóma
einni af sveitum yðar í sérstök-
mn leiðangri“.
Það var aö sjá og heyra að
Leech þætti þetta ótrúlega fynd-
ið, þvi að hann hallaði sér aftur á
bak f stólnum og rak upp hrossa-
legan hlátur, svo að skein í hvítar
tennumar.
Masters höfuösmaöur leit á
hann með vanþóknun — að svo
miklu leyti, sem svipur hans gat
lýst þeim geðhrifum. „Þakka
yður fyrir, Leech“, mælti hann
rólega. „Þér megið fara“.
Leech reis úr sæti sinu, hélt á
brott og hló enn, gerði hvorki að
kveðja að hermannasiö, biðjast af-
sökunar eöa sýna nein merki þess
að honum þættj fyrir því að vera
vísað út. En þegar hann gekk
fram hjá Douglas, leit hann á
EFTIR ZENO
i
hann stutt andartak. „Sjáumst 1
seinna,“ sagöi hann — og hló. )
Douglas haföi ekki hugmynd ,
um hvort hann átti að taka þessi!
orð hans sem einskonar hótun, •
eða einungis í venjulegum skiln- )
ingi. Þeir Masters höfuðsmaður j
og Douglas biðu þess hljóðir að ,
hlátur hans og fótatak fjarlægð-
ist frammi á ganginum og dæi út. )
Masters varð til að rjúfa þögn- .
ina.
„Afbragðs maður“, sagði hann.
Douglas þótti sem höfuðsmað- I
urinn mundi hafa notað sömu ,
orðin og sama málróminn, ef ‘t
hann hefði .verið að lýsa einhverj- ■
um sjaldgæfum fomgrip. Hann ■
virtist einmitt líta á Leech sem .
einkar sjaldgæfa manngerð.
„Hagar hann sér oft þannig?" ’
spurði Douglas.
Enn lét Masters sem hann
heyrði ekki hvers spurt var. Þess
í stað vék hann málinu að á- >
stæðunni fyrir því, að Douglas,
var kominn á fund hans.
„Nú skulum við ræða væntan- •
legt hlutverk yðar nánar“, sagði,
hann um leið og hann reis úr sæti
sínu fyrir innan skrifborðið og
gekk yfir að veggnum, þar sem
hékk landabréf mikið. Douglas
gekk þangaö til hans.
Masters höfuðsmaður benti á
stað á landabréfinu, sem þegar
haföi verið auðkenndur sérstak-
lega með skákrossi.