Mosfellsblaðið - 01.07.2000, Qupperneq 3
I
llmbyltíng á skípula,
skólahaldsins í Mosfelísbæ
Kennarav ekki hafðir með í ráðum
Á fundi bæjarráðs þann 30. maí
síðasliðinn var kynnt skýrsla fyrirtæk-
isisns Rekstrar og ráðgjafar urn stjóm-
sýsluúttekt á fræðslu- og menningar-
sviði Mosfellsbæjar. Úttektin sem unn-
in er sem liður í að móta heildstæða
skólastefnu fyrir bæinn, en því verk-
efni skal lokið í nóvember á þessu ári
og er þessi hluti skýrslunnar aðeins
fyrsti áfangi. I verklýsingu segir m.a.
um markmið úttektarinnar sé "að gera
tillögur að stjómskipulagi fræðslu og
menningarsviðs með það að leiðarljósi
að skilvirkni og nýting fjármuna verði
sem best, ásamt því að tryggja faglega
starfsemi sviðsins. Skipulagið á að
gera sviðið hæfara til að takast á við
þau verkefni sem því eru falin af bæj-
arstjóm þannig að þjónusta þess verði
sem öflugust innan þeirra ijárveitinga
sem til málaflokksins er ætlað.
I skýrslunni kemur fram að verkefn-
ið hafi verið unnið með þeim hætli að
tekin vom viðtöl við kjöma fulltrúa,
starfsmenn og stjómendur bæjarins til
að kynnast viðhorfum þeirra til núver-
andi skipulags og kanna hvernig
stjómsýslunni verði best fyrir komið.
Yfírlýsing kennara
Það undarlega við þessa skýrslu
virðist vera það að kennararnir sjálfir
hafa lítið verið hafðir með í ráðum.
Þannig virðist skýrslunni vera slengt
fram í lok skólaársins og þeim ekki
gefinn kostur á að fjalla unt þetta mik-
illvæga málefni, sem snýr að þeim og
þeirra vinnustað. Á kennarafundi þann
30. maí samþykktu kennarar og starfs-
menn Varmárskóla einróma að lýsa
undrun sinni á þessari stjómsýsluúttekt
og því að hún sé kynnt á síðasta degi
skólans og þá aðeins örfáum hluta
starfsmanna. I yfirlýsingunni kemur
fram að starfsmenn skólans munu ekki
hafa nokkra aðstöðu né tækifæri til að
kynna sér skýrsluna og gera athuga-
semdir við hana áður en endanleg
ákvörðun er tekin. Þá lýsti fundurinn
Kjósin
í Kjósinni voraði ekki afleitlega, en
stundum verið betra. Sauðburður gekk
vel og margarjarðir em með sauðfé. -
Það sumraði vel seinni part júní og lít-
ið kal, sláttur er þegar hafinn á
nokkmm bæjum nú í endaðan júní,
enda sprettur vel í 20 stiga hita.
Farið er að veiðast nokkuð vel í
Laxá. Aðalfundur veiðifélagsins sam-
þykkti ekki byggingu veiðihúss að svo
komnu máli. - Refur hefur sést og
greni hafa verið unnin. Að öðm leyti
er fagurt mannlíf og góð framtíð í
Kjósinni, sagði Magnús Sæmundsson
að Eyjum í Kjós að lokum.
yfir áhyggjum sínum yfir því að starfs-
menn skólans geti ekki komið skoðun-
um sínum á framfæri.
Tillögur
Tillögur sem byggðar em á úttekt-
inni gera ráð fyrir að skipurit fræðslu
og menningarsviðs greinist í þrjár
megin einingar, líkt og verið hefur þ.e.
fræðslumál, menningarmál og íþrótta-
og æskulýðsmál. Þá er lagt til að ráð-
inn verði aðstoðarmaður forstöðu-
manns fræðslu-og menningarsviðs.
Lagt er til að tveir heildstæðir skólar
verði í Mosfellsbæ, annar á vestur-
svæðinu og hinn á austursvæðinu.
Þetta þýðir að skólarnir á austursvæð-
inu þ.e. Varmárskóli og Gagnfræða-
skólinn verði sameinaðir í einn skóla,
eina skipulagsheild. Þá verður skólun-
um stigskipt til að koma til móts við
stigskiptingu aðalnámsskrár, en með
því að færa skólana saman í eina
skipulagsheild er komið til móts við
heildstætt nám og þannig dregið úr til-
búnum skilum á milli skólastiganna.
Lagt er til að að skipurit gmnnskólans
verði skipt í þrjár megin einingar:
fageiningu, stigstjómun og rekstar-
þjónustu. Fleiri tillögur em gerðar.
Nemendafjöldi
Nemendafjöldi í Varmárskóla var á
síðasta áji 594 nemendur, auk 107
nemenda í útibúinu á vestursvæðinu. í
Gagnfræðaskólanum vom síðastliðinn
vetur 389 nemendur. Gert er ráð fyrir
að nýji skólinn á vestursvæðinu verði
tekinn í notkun haustið 2001. Þá er
gert ráð fyrir að nemendafjöldinn verði
um 1150 böm á gmnnskólaaldri, en á
síðustu tveim ámm hefur gmnnskóla-
nemendum fjölgað um 7 % á ári, en
spá Mosfellsbæjar byggir hins vegar á
að nokkuð hægi á fjölgun milli ára og
verði um 2.5 % að jafnaði til 2003.
Með samþykkt tillögunnar um einn
heildstæðan skóla á austursvæðinu
yrði til mjög stór skóli með yfir 1000
nemendum.
Umfjöllun
Fjallað hefur verið um þessa skýrslu
í bæjarstjóm og í fræðslunefnd. Á
fundi fræðslunefndar þann ló.júní síð-
astliðinn var fjallað ítarlega um úttekt-
ina og samþykkt einróma að mæla
með því við bæjarstjóm að unnið verði
áfram í anda þessarar úttektar og þeg-
ar nánari útfærslur liggja fyrir í ein-
stökum þáttum komi þeir til umsagn-
ar nefndarinnar. Þá gerði Ásta Björg
Bjömsdóttir fyrirvara um tillögu um
tvö skólasvæði með tilliti til þeirra
kosta og galla sem koma fram í skýrsl-
unni.
Minnihlutinn hefur lagt til að gildis-
töku væntanlegra breytinga verði
frestað til haustsins 2001 þegar nýr
skóli tekur til starfa þannig að eyða
megi óvissu starfsmanna varðandi
stöðu sína, en erfitt getur reynst fyrir
bæjarfélagið að auglýsa eftir kennur-
um á miðju skólaári. Þessu hafnaði
meirihlutinn.
Þrír góðir
§aman
Þessi mynd er tekin í kaffistofu Gróðrarstöðv-
arinnar að Dalsgarði í Mosfellsdal fyrr í vor.
Þama eru bræðumir Fróði Jóhannsson og Gísli
Jóhannsson, en á veggnum er faðir þeirra, Jó-
hann Jónsson, hýr á svip. Hann er látinn.
Jóhann setti gróðrarstöðina á fót á sínum tíma,
Fróði rak hana síðan um árabil og nú hefur Gísli
tekið við. Tilefnið að þessari mynd er stuðning-
ur Dalsgarðs ásamt fleiri fyrirtækja við vígsluhá-
tíð Kiwanisklúbbsins Mosfells og eru hér með
sendar þakkir frá Kiwanismönnum til allra þeir-
ra sem studdu klúbbinn í sínum fyrstu skrefum .
til samfélagsins hér.
MoslrllMblaðið Q