Mosfellsblaðið - 01.10.2000, Page 5
Aðsent bréf, Bókabúðin Namaste.
sniðgengur heimabyggð
Aðalfiindur
Foreldra-
félags
Varmárskóla var haldinn 5 okt.sl. í sal
skólans. Farið var yfir starf síðasta skóla-
árs, bæði hjá foreldrafél. og foreldraráði.
Kynning var á sálfræðiþjónustu við skól-
ann, nýr skólafulltrúi Birgir Einarsson
kynnti sig og sitt starf og Þórdís Ásgeirs-
dóttir djákni, kynnti sitt starf við Vina-
leiðina og er ljóst að hún er að vinna
mikið og þarft starf í þágu bama okkar.
Á hún skilið þakkir okkar allra.
Undanfarin ár hefur foreldrafélagið
staðið fyrir ýmsum uppákomum og þeir
peningar sem safnast notaðir til að bæta
aðstöðu nemenda. Hefur upphæðin farið
ört vaxandi milli ára og var að þessu
sinni 300.000 kr. og er það mjög gott
mál. Að þessu sinni ákvað stjómin að af-
henda ekki gjafabréf heldur sjá sjálf um
innkaupin.
Það kom því fundargestum og for-
svarsmönnum skólans skemmtilega á
óvart þegar afhjúpaðar vom veglegar
gjafir. Þeim veittu viðtöku: Herbert fyrir
hönd smíðastofu, Jóhanna M. fyrir vest-
ursvæði og Þyri Huld fyrir austursvæði.
Þau lýstu notagildi gjafanna og þökkuðu
kærlega fyrir. Að lokum var fráfarandi
stjómarmönnum þakkað fyrir gott og
skemmtilegt samstarf og nýtt fólk kynnt.
Þrúður Sigurðar. fonn. foreldrafél.
lilkynning frá
Lars Sláhl
Leðusmíði Lars Stáhl flytur um næstu
mánaðamót frá Háholti 24 að Blika-
stöðum 1 í Mosfellsbæ.
Sími og fax 5667145.
Kynningarfundur ITC
Miðvikudaginn 18. október n.k.
kl. 20:00 í Safnaðarheimili
Lágafellssóknar,
Þverholti 3. 3.hæð.
Allir velkomnir
Mosfellsbær
Mosfellsbær ætti að sýna sóma sinn í
að versla meira í sínu byggðarlagi. Ljóst
er að skrifstofur Mosfellsbæjar em að
versla inn vömr frá Reykjavík sem ég
get boðið á jafnvel hagstæðara verði og
þykir mér það einkennilegt fordæmi. í
mína verslun er aðeins komið ef vantar
eitthvað lítilræði.
Hins vegar em ýmis fyrirtæki og aðil-
ar í Mosfellsbæ og nágrenni sem versla
mikið í ritfangaverslun minni, má þar
nefna Bamaskólann og sé varan ekki til
útvega ég hana samstundis. Ennfremur
Reykjagarður h/f, sem er stórt fyrirtæki
og sér hag sinn í verslun í heimabyggð
sinni.
Það er vitað að stórir aðilar í Reykja-
vík em að bjóða kostakjör - en þau kjör
get ég einnig boðið. Það er minn hagur
að veita góða þjónustu fyrir alla Mosfell-
inga og nágranna, enda hlýtur að vera
ákjósanlegt fyrir alla að verslun mín og
þjónusta sé til staðar fyrir fólkið í hérað-
inu.
Með laerri kveðju,
Sólveig Hafsteinsdóttir.
A Hugmyndasamkeppni
ÖS um gerð minjagripa
Atvinnu- og ferðamálanefnd og Atvinnuþróunarsjóður Mosfellsbæjar efna til hugmyndasamkeppni
um gerð minjagripa.
Óskað er eftir hugmyndum að gripum sem er hagkvæmt að fjöldaframleiða og fela í sér íslenskt
handverk. Gripirnir skulu minna á sögu, menningu, landslag, staði eða náttúru í Mosfellsbæ. Grip-
irnir þurfa að henta sem minjagripir fyrir ferðafólk og til tækifærisgjafa.
Tillögum skal skilað fullunnum. Með tillögunum skal fylgja lýsing á framleiðslu, frumgerð, tillaga að
umbúðum og skrifleg tillaga að markaðssetningu minjagripsins.
Verðlaun fyrir bestu hugmyndina eru kr. 300.000,- sem er stuðningur við að koma minjagripnum í
framleiðslu.
Tillögum skal skilað til atvinnu- og ferðamálafulltrúa Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ,
fyrir 15. desember nk.
Nafn höfundar, ásamt heimilisfangi og síma skal fylgja í lokuðu umslagi merkt dulnefni höfundar.
Atvinnuþróunarsjóður og atvinnu- og ferðamálanefnd áskilja sér rétt til að velja hvaða tillögu sem
er eða hafna öllum.
Mosfellsbæ, 12. október 2000
Atvinnuþróunarsjóður og atvinnu- og ferðamálanefnd Mosfellsbæjar
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi
Fjölbreytt og spennandi
framtíðarstörf í Mosfellsdal
Gerðu samanburð á réttindum og kjaramálum áður en þú ræður þig til starfs. Við ger-
um skriflega ráðningasamninga við alla starfsmenn með þeim réttindum sem kjara-
samningar hljóða upp á.
Við bjóðum fjölbreytt og spennandi störf fyrir þroskaþjálfa og ófaglært starfsfólk á heimili fyrir
fatlaða unglinga í Tjaldanesi og á Tjaldanesheimilinu í Mosfellsdal. Um er að ræða 50-100%
störf í vaktavinnu. Sérstaklega óskum við eftir karlmönnum til starfa á heimili fyrir unglinga.
Við leitum eftir áhugasömu fólki með færni í mannlegum samskiptum. Við veitum nýju starfs-
fólki vandaða leiðsögn og fræðslu. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum, m.a. réttur
til sumarorlofs, veikinda, álag greitt á kvöld-, nætur- og helgarvinnu, kaffitímar greiddir í yfir-
vinnu, frítt fæði og fleira.
Upplýsingar um ofangreind störf eru veittar í síma 564-1822 á skrifstofutíma. Umsóknareyðu-
blöð eru á skrifstofunni að Digranesvegi 5 í Kópavogi og á vef Svæðisskrifstofu á Netinu,
http://www.smfr.is
MoKléllshlaöiö Q