Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Blaðsíða 5
‘Mín sfcoðun
Aðsendar greinar:
Grein um greinar
Kæru sveitungar. Af gefnu tilefni langar mig að benda garðeigendum á þá hættu og
þau óþægindi sem stafa af greinum trjárunna er skaga langt útfyrir girðingar og út á
gangstéttar. Þetta er oft til baga fyrir fótgangandi vegfarendur. Ég vil benda á nýlegt
dæmi, þegar vinur minn var á röskri kvöldgöngu og átti sér einskins ills von. Trjágrein
ein er skagaði langt útíyrir lóðamörk stakst á bólakaf i aðra nös hans og olli miklum
, •
sárindum og miklu blóðbaði. Ég skora á garðeigendur að taka þetta til greina.
L. Ó
Þakklæti
Mig langar að koma á framfæri þakklæti til bæjarbúa og bæjaryfirvalda fyrir
auðsýndann stuðning í kjölfar skrifa minna í Mosfellsblaðið í nóvember s.l.
Sólveig í bókabúðinni Namaste.
íbúðamál eldriborgara
Svar félagsmálastjóra Mosfellsbæjar við fyrirspum Hallfríðar
Georgsdóttur í Mosfellsblaði 8.tbl. 3. árgang desember 2000
I Mosfellsbæ em 20 íbúðir sem em sérstaklega ætlaðar öldmðum, þær em í
sama húsi og þjónustumiðstöð aldraðra. I húsinu er fæðisþjónusta og einnig
miðstöð félagslegrar heimaþjónustu og félagsstarfs aldraðra. íbúðimar em
annars vegar leiguíbúðir og hins vegar svo kallaðar hlutdeildaríbúðir, þar
sem íbúinn á helming íbúðarinnar og leigir hin helminginn af bæjarfélaginu.
Þjónustuíbúðir eru ætlaðar þeim sem þurfa aðstoð og stuðning til að geta
búið á eigin heimili. Öryggiskerfi er í hverri íbúð og vakt allan
sólarhringinn. Um úthlutun íbúðanna gilda reglur sem bæjarstjóm hefur
samþykkt.
Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ hafa undanfarin þrjú ár sótt um fé til
Framkvæmdasjóðs aldrarða til byggingar hjúkmnarheimilis í tengslum við
íbúða- og þjónustuhús aldrarða við Hlaðhamra. Umsókninni hefur frant til
þessa verið synjað, en heimild til byggingar og reksturs hjúkrunarheimila
er í höndum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins.
Deiliskipulag Mosfellsbæjar frá 23.febrúar 1998 gerir ráð fyrir að húsnæði
sem sérstaklega er ætlað eldri borgumm verði reist við við Lækjarhlíð.
Ennfremur er í drögum að deiliskipulagi er gert ráð fýrir íbúðum fyrir
eldri borgara við Langatanga norðan við íbúða- og þjónustuhús aldrarðra.
Félagsmálanefhd Mosfellsbæjar hefur hafið undirbúning að vinnu við
stefnumörkun í búsetumálum aldrarða, að þeirri vinnu lokinni er að vænta
tillagna um byggingu íbúða fyrir eldri borgara og fyrirkomulag reksturs
slíkra íbúa.
Mosfellsbæ 9. janúar 2001
Unnur V. fngólfsdóttir
félagsmálastjóri
Hætta við leikskólana
Ég er svo lánsöm að geta gengið í vinnuna hér í Mosfellsbæ. Venjulega geng
ég framhjá leikskólanum á Hlaðhömrum. Ég hef veitt því athygli að margir
ökumenn skilja bifreiðar sínar eftir í gangi. í morgun fannst mér keyra um
þverbak þegar ég sá einn stressaðan faðir korna bmnandi upp að leikskólanum
og skilja bílinn eftir í gangi meðan hann hljóp með bamið inn í
leikskólann. Á meðan pabbi var inni í leikskólanum, beið annað bam í
bílnum. Það var nú aldeils fjör því barnið var á fullu að fikta í
stjórnbúnaðinum. Skyldi maðurinn gera sér grein fyrir hættunni? Vonandi er
hann með tryggingamar á bílnum í lagi en ekkert kemur í staðin fyrir
slasað bam.
Vinsamlegast drepið á bifreiðum á meðan farið er inn í leikskólann.
Áshildur D. Þorsteinsdóttir
Hroki
Allt frá þvi að nýr leikskólastjóri tók við á Reykjakoti hefur ríkt óviðunandi ástand þar.
Starfsfólki hefur verið sagt upp í stómm stíl og þeint sem hefur ekki verið sagt upp hafa
hætt af sjálfdáðun. Samtals em það 14 af 22 starfsmönnum hefur verið sagt upp og eða
hafa hætt síðan Margrét Pála tók við fyrir 4 mánuðum. í nokkmm tilfellum hefur legið
svo við að losna við starfsmenn að þeir hafa ekki fengið að klára uppsagnarfrestin og
verið sagt að fara heim á fullum launum. Sjö fyrrverandi starfsmenn lýstu
stjómunaraðferðum hennar á eftirfarandi vegu í bréfi til bæjarráðs. "Stjómunaraðferðir
hennar einkenndust af yfirgangi og hroka í garð starfsfólks. Það er trú mín að hagur
bama hafi ekki verið hafður i lyrirrúmi þá mánuði sem núverandi leikskólastjóri hefur
stjómað Reykjakoti." Við sem foreldrar teljum að ör starfmannaskipti geti ekki þjónað
hagsmunum bama okkar. Hvað fínnst ykkur kæru foreldrar ? Sumir foreldrar hafa
reynt að spoma við þessari þróun en ekki haft...
erindi sem erfiði. Ekki aðeins þurfum við að berjast við leikskólastjóra heldur einnig skóla- og
bæjaryfirvöld. Þessir aðilar hafa borið blak af leikskólastjóra, þrátt fyrir að þeir viti að hún hefur
borið fyrir sig ósannindum, og gerst brotleg gagnvart lögum og stefnt bömum, sem foreldrar trúa
leikskólanum fýrir í stórfelda hættu. Margrét Pála hefur sjö ára háskólamenntun í
leikskólafræðum, ( samkvæmt samtali sem greinarhöfundur á átti við hana ) en þar hafði víst
gleymst að kenna henni að maður setur ekki 5 ára böm affan á pallbíl og skreppur bæjarleið. Þetta
gerði Margrét Pála og þótti ekki mikið til koma. Svo lítið að þegar eitt foreldri kvartaði eftirá, þá
sagði Margrét "að hún væri þreytt og nennti ekki að tala um þetta". Það er sagt að ungur nemur
hvað gamall temur. Þetta á við fýrrgreint atriði og einnig þegar Margrét Pála hefur gert að leik
sínum að koma inn í kennslustofúr og bjóða upp á töfrabrögð, sem fara þannig fram að hún tekur
eldspýmr upp og kveikir á einni. Síðan stingur hún henni upp í sig og kæfír eldin. Skýringin sem
hún gefur um hvarf eldsins er að hún hafi gleypt hann. Auk þess sýnir hún fleiri brögð og
eldsspýtnafikt kemur þar við sögu.
Það virðist sem hagur bama á Reykjakoti skipti ekki máli núorðið, heldur hvað takist að spara í
reksti skólans. Á sama tíma og eldhús skólans er lagt niður og mjög hæft starfsfólk, bæði
menntað og ómenntað hrakið burt, þá em starfandi leikskólakennarar frá Hjalla fengnir í staðinn.
Það fmnst mér ótrúlegt að fólk sem Margrét hefur státað sig af að geta borgað hærri laun skuli fara
að vinna á Reykjakoti fýrir minni laun og aukin kostnað við að keyra til Mosfellsbæjar. Staðfest er
að allavega einn af þessum starfsmönnum fær auka greiðslur til að mæta þessum kostnaði, þrátt
fýrrir að þetta sé eitt atvinnusvæði. Skyldi Mosfellsbær ætla að greiða kennumm annarra leikskóla
svona aukagreiðslur. Leikskólakennarar em nú með lausa samninga svo að þetta er ágætt fýrir þá
að skoða.
Reykjakot hefur verið rekið í anda Hjallastefnunar til margra ára og hefur verið sátt um skólann,
en strax og Margrét yfirtók skólann fúðraði allt upp. Hjallastefnan er mjög jákvæð stefna þar sem
tönglast er á jákvæðni og réttu hugarfari. Hvaða stefna vill ekki hafa þetta að leiðarljósi. Það sem
verra er að böm sem em undir Hjallastefnunni hafa minni aðgang að leikfongunn og búa við
kaldara umhverfi en almennt gerist. Til dæmis em kennslustofúr að breytast þannig að hillur og
myndir em teknar niður. Flest leikföng tekin og fá böm ekki að handfjatla bækur. Það telst
óvirðing að böm fái að leika sér með bamabækur. Þrátt fýrir að bömin okkar séu lögð í hættu við
að undirbúa þau undir skólagöngu með undarlegum aðferðum svo sem að láta 4-5 ára böm labba
ein með Reykjaveginum og hringin í kringum leikskólann, þá kemur í ljós að „Hjallaböm" em
ekkert betur undirbúin að takast á við skólagöngu en önnur böm og vísa ég þá til rannsóknar sem
Margrét Pála gerði sjálf.
Garðar Skarphéðinsson
Kristin Ingvarsdóttir
Netfang aðsendra greina: ktomm@isl.is
Þ v e r h o 1 t i
2 7 0 Mosfellsb
S í m i 5 6 6 8 1 1 0
Sólbaðstola
Undipföt
Snyrtivörur
Opnunartímí
Mán-laugard. 10.00 - 23.00
Sunnud. 12.00-18.00
lláholti 14, 2. hæð
Sími: 586-8989
Elíá Björk og
Hrcfna Vcstmann
Bjóðum alla
vclkomna
alltal' hcitt á
könnuni