Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Page 6
Vesturlandsvegurinn
hættulegastur
Athuganir Vegagerðarinnar hafa sýnt að Vesturlandsvegumn milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur er
hættulegastur, hvað varðar slys á hverja milljón ekinna kílómetra. Næstur í röðinni er Suðurlandsvegur
og þá Reykjanesbraut. Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ, Jóhann Sigurjónsson komst vel að orði í viðtali
nýlega um þessi máleíhi á þá leið að Mosfellsbær væri að sjáifsögðu ekki í neinni keppni við önnur
bæjarfélög um breikkun Vesturlandsvegar, en hins vegar ef ætti að forgangsraða væri augljóst að
Vesturlandsvegur hefði forgang.
Reyknesingar hafa alla samúð Mosfellinga og nágranna vegna hinna hörmulegu umferðarslysa á
Reykjanesbrautinni undanfarið og kemur slíkt öllum landsmönnum við. Hins vegar höfum við hér
upplifað slíkar hönnungar og eina færa leiðin til úrbóta þangað til framkvæmdir heijast er aukin
löggæsla á þessum hættulegustu vegarköfium landsins.
Þingvallasveit
Þingvallasveitin er prestlaus og kirkjumál em í
vinnslu. í Mjóanesi í Þingvallasveit sást refur
nýlega og var reynt að ná honum. Jóhann
Jónsson bóndi fór ásamt tveimur sonum sínum
á skautum, þeim Trausta og Oddi með byssu á
eftir refnum út á Þingvallavatn í átt að Hagavík.
Refúrinn ílúði yfír þvert Þingvallavatnið undan
hersingunni á skautunum og lagðist á leiðinni
niður í dældir og hröngl á ísnum, villti þar með
um fyrir aftökusveitinni, sem sneri heim í
Mjóanes lafmóð. Á sama tima fór Jóhanna
Guðmundsdóttir í Króki út á Þingvallavatn frá
Hagavík á skautum og elti fallega bleikju
þangað til bleikjan stakk af undir ísnum. Lögð
hafa verið net undir ís frá Mjóanesi og fengist
12-13 bleikjur eitt til tvö pund eftir tvær til þrjár
nætur, sagði Jóhann Jónsson í Mjóanesi í viðtali
við blaðið nú í janúar.
Kjalarnesið
Óvenju vindasamt var í nóvember og desember,
búskapur gengið vel víðast hvar. Viðbyggingu
Klébergsskóla miðar vel áfram. Nokkrir bílar hafa
oltið í hvassviðri, en lítið um meiðsl á fólki.
Kjósin
Algjörlega hefur verið snjólaust í Kjósinni, en frost
mikið í jörðu eftir langann frostakafla. Engin
meiriháttar óhöpp hafa verið i héraðinu, fé er allt á
húsi að jafnaði, nema nokkrar útigangskindur sem
ganga enn lausar. Eitthvað hefur verið veitt undir ís
í Meðalfellsvatni, en ekki kunnugt um aflabrögð.
Þrettándagleði og brenna var við Félagsgarð í Kjós
og fór vel fram, að sögn Magnúsar Sæmundssonar,
Eyjum í Kjós.
Hotta-
kjúklipéur
Undarlegt árferði
KoppaValdi er hlessa á tíðarfarinu, botnar hvorki upp né niður.
Björgunarsveitin Kyndill hefur lítið að gera um þessar mundir, enda enginn snjór,
engin óhöpp, ekkert gos og enginn jarðskjálfti. Lífíð heldur áfram sinn vanagang,
Vesturlandsvegurinn þegir, slysalaus yftr eitt undarlegasta veðurfar sem ísland hefur
fengið um margar aldir.
Kötturinn Púli í Teigahverfinu hefúr átt annasamar nætur niðri í gili, mýsnar hafa það
huggulegt í þessari góðu veðráttu og hafa enga ástæðu til að kíkja upp í kattarkjaft.
Hins vegar mun bleikjunni sem hefur náð að hreiðra um sig í Varmánni ekki líða vel,
þegar áin þomar um miðju næsta sumars.
Teigagilið hefur marga leyndardóma. Lækurinn sem rennur niður gilið hefur þá
eiginleika, að hann dregur að sér ála. Herberg Kristjánsson, hitaveitustjóri varð þess
var fyrir nokkmm ámm. Það iðaði allt, þegar grafan fór að grafa upp lækinn.
Allt þetta gæti horfið, ef ekki kemur góður vetur. Við þurfúm mikinn snjó í landið,
Esjan þarf að fyllast af snjó, mýsnar þurfa að koma upp fyrir Púla og ár og lækir verða
að hafa vatn næsta sumar. Annars kemur enginn urriði, engin bleikja og enginn lax upp
í læki og ár landsins. Leggjumst á bæn og biðjum um harðan snjóavetur.
Vegmerking hf.
Grænumýri 5,
Mosfellsbæ
s: 566 7259 Fax: 566 7456
0