Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Page 11

Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Page 11
Hvað segir Tolli gott ? Ég segi allt gott, ég hef verið frá því í júní s.l í Austur Berlín ásamt eiginkonu minni Gunný og tveimur bömum okkar Magga og Karen Lísu. Það er ákaflega skemmtileg og góð lífsreynsla að breyta svona um umhverfi það hleypir í mig miklum krafti. Þetta er sannkölluð heimsborg. Ég fékk góða heimsókn þegar dætur mínar tvær komu þær Ásdís og Kristín, þær mæla eindregið með rússíbananum og parísarhjólinu í Berlín. Framundan hjá mér eru tvær sýningar í Berlín, Bubbi bróðir ætlar að spila nokkur vel valin lög á þeirri fyrri það verður gaman að fá hann. Næstu sýningar heima á Islandi em fyrirhugaðar á Suðumesjum í mars og april. Ég reikna svo með að koma aftur heim í júlí. Það var greinilega nóg að gera hjá Tolla þann stutta tíma sem hann stoppaði heima á íslandi. Lions gefur í Tjaldanes Laugardaginn 6. janúar s.l. var tekinn í notkun stór vatnsnuddpottur af bandarískri gerð í Tjaldanesheimilinu í Mosfellsdal. Gefendur em Lionsmenn í Lionsklúbbnum Þór í Reykjavík. Þeir gáfu allt efni, alla vinnu og reistu nýtt skýli og aðstöðu fyrir þennan langþráða búnað, sem heimilismenn í Tjaldanesi kunna að meta. Lionsklúbburinn Þór hefur styrkt Tjaldanesheimilið ffá upphafí og er heimilið þeim félagsmönnum mjög kært. Á heimilinu em 18 þroskaheftir karlmenn á ýmsum aldri, en 3 eru í sambýli fyrir einhverfa í sérstöku húsi þar rétt hjá. Á myndinni er Reynir H. Jóhannsson að afhenda þessa gjöf til Sólveigar Ingibergsdóttur, forstöðukonu heimilisins, en í pottinum era þeir Pétur Sveinþórsson og Magnús Ragnarsson. Þeir sögðu sér liði svo vel að þeir vildu helst ekki fara upp úr aftur. Islandspóstur stóð sig í Mosfellsbæ Mosfellsblaðið leit við hjá starfsfólki íslandspósts í Mosfellsbæ í mesta atinu rétt fýrir jólin. Islandspóstur hefúr sætt afar harðri gagnrýni fyrir frammistöðu sína um þessi jól, en ekki er annað vitað en vel haft gengið hjá starfsfólki hér í Mosfellsbæ og blaðinu er kunnugt um að jólakort sem bárast inn til póstsins eftir tímamörk, bárast viðtakendum fyrir jól og má því færa starfsfólki hér þakkir fyrir vel unnin störf. Frábært bókmenntakvöld á bókasafninu Konur sem starfa hjá Mosfellsbæ í Kjama - svokallaðar Kjamakonur - snæddu saman hádegisverð á Bókasafninu á kvennafrídaginn 24. október s.l. Þar var óskað eftir samstarfi við Bókasafnið um sérstakt „kvennabókmenntakvöld" þann 6. des. fyrir konur sem vinna hjá Mosfellsbæ. Heiðursgestir kvöldsins vora rithöfúndamir Guðrún Helgadóttir með Oddaflug, Vigdís Grímsdóttir með Þögnina og Oddný Sturludóttir og Silja Hauksdóttir með Dís. 51 kona mætti og stemmningin var frábær. Fóra rithöfúndamir á kostum bæði í upplestri og spjalli á eftir. Þykir þetta kvöld hafa heppnast einstaklega vel. Keramiknámskeið r í Alafosskvos Námskeið í leirmótun hefjast í lok janúar. Kennt verður í 7 vikur. Byrjendahópur: Miðvikudaga 17:30 - 20:00 Framhaldshópur: Miðvikudaga 20:30 - 23:00 Opið verkstæði: Einnig verður boðið upp á opið verkstæði miðvikudaga kl 10:00 - 14:00 þar sem áhugasamir geta komið og unnið frjálst gegn aðstöðu og efnisgjaldi. Leiðbeinandi: Helga Jóhannesdóttir leirlistarkona Álafossvegi 23 Mosfellsbæ Upplýsingar og skráning í símum: 566 8228 og 566 8587 Dúndm* útsala !

x

Mosfellsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.