Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 2

Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 2
• • ÓHreint mjöí. (Ritstjórnargrein Bæjarstjómarmeirihlutinn reynir nú að stýra ólög- legum lóðaúthlutunum fimlega framhjá bálreiðu fólki, bæði innansveitar og utan sem misgert hefur verið við með því að breyta reglum eftirá. Nú er farið að gefa út yfirlýsingar milli bæjarstjórnar Mosfells- bæjar og félagsmálaráðuneytis og allir fagna, Mosfellsbær fagnar tímamótaúrskurði um stjórnarskrárbrot og stjómsýslu- brot og ráðuneytið fagnar að bærinn skuli fagna vegna úrskurðar um þessi brot. Hins vegar fagnar ekki fólkið sem var blekkt í þessu dæma- lausa máli. Meirihlutinn sendi út bréf til umsækjenda og bréfið reitti fólkið enn meir til reiði. I bréfínu er óvart eða vísvitandi leynt að framið hafí verið stjórnarskrárbrot gegn umsækjendum og viðurkenning er ekki á bótaskyldu gagnvart þeim aðilum sem misgert var við. Þessi vinnubrögð gefa fólki hugmyndir um að ekki sé hreint mjöl í pokahorninu, jafnvel þegar litið er aftur í tímann og síðasta hesthúsalóðin er afar nærtækt dæmi um sérstakan hátt á úthlutun. Ljóst er að fjöldi Mosfellinga telja sig hafa verið hlunnfarna í viðskiptum við bæjarfélagið og sumt fólk talar um að flytja héðan vegna þess. Eðlilegast hefði verið að bæjarstjórnin hefði sent frá sér yfirlýsingu og afsökunarbeiðni til þeirra sem misgert var við og gengið heils hugar til samninga við þá sem kreQast bóta. Þetta mál er til skaða fyrir bæjar- félagið á marga vegu. Léleg aðstaða Með tilkomu nýs íþróttahúss komu mörg tækifæri, sem hafa verið vannýtt. I stað þess að skapa félagslega aðstöðu og koma upp áhorfendapöllum fýrir margs konar uppákomur í nýju og glæsilegu íþróttahúsi hafa lappirnar verið dregnar ár eftir ár. Keppnisíþróttir hafa setið á hakanum, við eigum glæsilegt handknattleikslið í fremstu röð og fótboltinn innan UMFA er í stórsókn. Margar aðrar íþróttagreinar eru í góðri stöðu. Fólk þarf almennt að gera sér grein fyrir að íþróttir eru góðar forvarnir fyrir unga fólkið gagnvart vímuefnum. Hins vegar bera skrif málgagna meirihlutans ekki með sér að þessar staðreyndir séu Ijósar. Ef til vill hrindir gamalt og úr sér gengið gólf gamla íþróttahúss- ins áhorfendapöllum í nýja húsinu af stað. Ef til vill sér einhver sér hag í betri viður- gjöming við íþróttirnar vegna kosninga á næsta leiti. Það er því miður aðeins of seint í rass gripið, því við höfum misst dýnnætan tíma í aðstöðu, fjár- öflun og árangri. Afar erfítt virðist vera að fá afgreidd mál og svör við bréfum í þessu bæjarstjórnarkerfí. Við emm að tapa á hengilshætti bæjar- stjórnarmeirihlutans og ósam- stöðu um þessi málefni. Gylfi Guðjónsson CELETTE RÉTTINGAR N Ý S M í t) I MÁLtJN Undarlegt skipulag Göngubrautir vantar — FRAMKOLLUN v MOSFELLSBÆ I»verholti 9 Sfmi: 566-8283 Heiinasíða: www.simnet.is/fkm Opið: Mán-fös frá 10-18 • Yfirlitsmynd (Index Print) fyígir öllum framköllunum • Framköllun á APS filmum • Stækkanir uppí 20 x 30 cm •FUJI hágæöapappír notadur í allar framkallanir 52. | _ _ _ Stolnir blómapottar Þessum blómapottum var stolið framan við Mosfellsbakarí s.l. haust. I þeim höfðu verið sumarblóma- skreytingar um sumarið. Pottar þessir eru mjög þungir og ekki á færi nema öflugs fullorðins manns að bera þá til. Þeir hafa verið fluttir á bíl frá bakaríinu og hafi einhver orðið þeirra var, þá vinsamlega látið Mosfellsblaðið eða lögregluna vita. Hvor pottur íyrir sig mun hafa kostað um kr. 40.000 og var málið kært til lögreglu. Þess má geta að sömu nótt var brotist inn á veitingastaðinn Aslák. Skömmu áður en blaðið fór í prentun fréttist af síendurteknum stórskemmdum á blómapottum við Hlégarð. Innbrotaalda Kjúklingastaðurinn KFC virðist ekki hafa notið stuðnings skipulagsyfirvalda í Mosfellsbæ varðandi aðkomu að staðnum. I stað þess eins og ráðgert var að ekið væri greiða leið strax til hægri inn á staðinn frá Þverholti, eru gestir staðarins leiddir inn í hringtorgið við Háholt og þaðan inn að staðnum. Þetta eykur á umferð í torginu og umferðarvanda. Vonandi er þetta ekki til skaða, en Vegagerðin mun hafa ráðið þessu máli og skipulagsyfirvöld bæjarins látið þar við sitja. Það er ekki góður stuðningur við nýtt fyrirtæki. Þegar sumarið er komið kemur ýmislegt í ljós sem legið hefur undir snjó allan veturinn. Skiljanlega er erfítt við það að eiga fyrr en snjóa leysir. Hópur ungs fólks fer þá af stað í bæjarvinnunni og gerir bæinn okkar fínan á augabragði. Góður sveitungi benti blaðamanni á leiðindarusl sem legið hefur fyrir allra augum í allan vetur á mjög fjölfarinni leið. Rusl sem snjórinn hefur ekki falið því þar rennur lækur. Væri ekki ráðlegt af bæjaryfírvöldum að reyna að vera svolítið vakandi yfír svona löguðu og bíða ekki með hreinsunina þar til bæjarvinnan fer af stað. Skelfileg innbrotaalda ríður nú yfír okkur Mosfellinga. A skömmum tíma hefur verið brotist inn í læstan bíl í bílskúr, brotin í honum rúða og vandaðri myndavél með öllum búnaði stolið. Þá var brotin rúða í aðalinngangi í Olísstöðinni við Langatanga en að sögn Kristjáns verslunarstjóra virðist engu hafa verið stolið. Því næst varð Leikfélagið fyrir barðinu þegar brotist var inn í Bæjarleikhúsið og miklar skemmdir unnar á tækjum og búnaði. Nýlega var haft samband við Mosfellsblaðið og það beðið um að veita því athygli, að göngu- brautir vantar sárlega víða um bæinn. Ef t.d. er gengið frá Reykjahverfi niður í Kjarna slitna mjög ofit gangstéttar og göngustígar vegna gatna sem liggja á þeirri leið. Þar væri ráðlegt að hafa merktar göngu- brautir og eins að gera ráð fyrir fólki með bamavagna og hjóla- stóla með því að hafa aflíðandi brúnir á gangstéttunum þar sem þær enda. GiUTTI A vinnubrögðum okkar sést að vel er Itöniuið iðjan og nýja tœkni nýtir hest Nýja Bílasmiðjan. O.Ó Flugumýri 20 270 Mosfellsbæ Sími: 566 8200-566 8201 Fax: 566 8202 Netfang: nybil@centrum.is h 25 ára RETTINGAR BÍLAMÁLUN BÍtASMiÐJAN H? ^pska í ryn«* Flugumýri 2 270 Mosfellsba: Simi: 566 7660 RÉTTINGA VERKS TÆÐI j/ÓNB ehf. Jón B. Guðniuiulsson Gunnlaugur Jónsson Arnar hór Jónsson Fax: 566 8685 hifn'idasniidanu’isvtrar Dröfn Sigurgeirsdóttir í Hvammi hér hlaðin blómum í blómamiðstöð sinni. Við hlið hennar er góður viðskiptavinur úr Dvergholtinu, Katrín Hjartardóttir. Nú fer í hönd sá tími að fólk hugi að görðum sínum og planti sumarblómum. VÖLUTEIGUR 3, MOSFELLSBÆ. SÍMI 566-8300 Mqsfellsblasid Utgáfu annast: Ritstjórar, ábyrgðann: Helgi Sigurðsson og Gylfi Guðjónsson s. 696-0042 Netf. gylfigud(§jtal.is Framkv. stj. Karl Tómasson. Neti'. ktomm@isl.is íþróttir: Pétur Berg Matthíasson. Umbrot og hönnun Karl Tómasson og Hilmar Gunnarsson. Auglýsingasími: 897-7664 Fax: 5666-815 Prentun: Svansprent Netfang: mosfellsbladid@isl.is O SIGURPLASTB

x

Mosfellsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.