Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 4

Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 4
Mínus Vel tækjum búin Framköllun Mosfellsbæjar hefur nú endurnýjað allan sinn tækjabúnað og er mjög vel tækjum búin. Blaðamaður átti erindi í framköllunina einu sinni sem oftar nú á dögunum. Við hjá Mosfellsblaðinu eins og svo margir Mosfellingar höfum átt því láni að fagna að hafa þessa fínu þjónustu og þetta þægilega viðmót sem maður ætíð fær þegar leitað er til þeirra. Við hjónin höfum rekið fyrirtækið í sjö ár sagði Jóhann Gunnarsson eigandi, en hann ásamt eiginkonu sinni Svölu Guðmundsdóttur sér um daglegan rekstur. I tæp tvö ár höfum við haft hjá okkur góða starfsstúlku Ingibjörgu Þorbjömsdóttur það hefur létt mikið undir hún kann orðið á öll þessi tæki. Þegar við hófum okkar rekstur var hægt að fá framkallað í bókabúðinni Ásfelli svo komu Hans Petersen í Kjaman. Ég held að það sé betra fyrir alla aðila að hafa eitt fyrirtæki sem getur lifað og þjónustað fólk sómasamlega heldur en nokkur í sama geiranum sem öll berjast á horriminni. Við höfum ætíð kunnað mjög vel við okkur hér og alla okkar góðu viðskiptavini sem eru upp til hópa afar elskulegt fólk sagði Jóhann að lokum en hann var í óða önn að framkalla myndir til stuðnings íþróttastarfinu sem hann hefur stutt svo dyggilega við bakið á í gegnum árin. Stórátak hjá Herði Vorhátíð á Kátakoti Þann 19 maí var haldin Vorhátíð og sýning á verkum barnanna á leikskólanum Kátakoti á Kjalamesi. Sýningin var með stærra sniði en undanfarin ár, vegna þróunarverkefnis um umhverfið, sem hefur verið unnið s.l. tvö ár. Vildu starfsmenn og börn gefa foreldrum og öðrum gestum kost á að fylgjast með framgangi verkefnisins og leigðu því sal félagsheimilisins Fólkvangs fyrir sýninguna. Ásamt sýningu á myndverkum var einnig sýnt myndband af leikriti sem unnið var út frá þemanu umhverfisskoðun og fjallaði um vættina í umhverfinu. Leikritið sem var mjög skemmtilegt var kallað: „Fann ég á fjalli“ Myndbandið hefur síðan verið selt og vakið mikla lukku. 20 ritstjórar og 20 hlj ómsveitarstj órar Mínusélagarnir frábæru Björn Stefánsson trommari og Bjarni Sigurðsson gítarleikari voru að hlíða á hljómsveitina One night stand á Fötunum þegar blaðamaður átti leið um. Það er spurning hvort að Púkinn ælti ekki að fá þá félaga til að halda tónleika á nýju svölunum sínum. Það þyrfti engin að skafa útúr eyrunum eftir þá uppákomu. Hestamannafélagið Hörður var nú nýlega með sinn árlega hreinsunardag. í þetta skiptið varð hann að sannkölluðu stórátaki hcstamanna þaul- skipulögöu af Þórhildi Þór- hallsdóttur stjórnarmanni í Herði og umhverfisnefnd félagsins. Þau Þórhildur og Marteinn Magnússon for- maður gáfu blaðamanni smá tíma þrátt fyrir mikið annríki og sögðu honum eilítið af þessu lofsverða framtaki hesta- manna hér í bæ. Þetta hefur verið árlegur viðburður hjá okkur undanfarið en er með glæsilegra móti núna undir öruggri stjórn Þórhildar sagði Marteinn formaður greinilega stoltur af sinni manneskju. Það eru tíu hópar úti um alla sveit að hreinsa og taka til ýmiskonar drasl eftir okkur hestamenn og sennilega ein- hverja fleiri líka sögðu þau og töldu það greinilega ekki eftir sér þó hestamenn ættu ekki alla sökina á draslinu. Hóparnir fara meðfram öllum reiðstígum og víðar um alla sveit allt að borgarmörkum. Þetta eru í kringum eitthundrað manns sem að þessu standa ungir sem aldnir. Meðan á þessu stendur gætir unglingadeildin þeirra allra yngstu. Við áætlum að þetta séu einhver tonn af drasli sem safnast saman í það minnsta eru þær margar stútfullar hesta- ken-urnar. Þórhildi og Marteini langaði að koma á framfæri sérstöku þakklæti til bæjai-yfir- valda og starfsmanna áhalda- hússins fyrir frábærann stuðning með láni á verkfærum og tækjum þegar til þurfti. Eftir að hafa verið tuttugu ár í hljómsveit hef ég kynnst því að á tónleikum og þó sérstaklega dansleikjum kemur íyrir að það eru minnst tuttugu hljómsveitarstjórar í salnum. Þ.e.a.s fólk sem vill alfarið stjóma lagavali hljómsveitarinnar. Oft getur verið gaman að því en oft ansi leiðinlegt líka, því hljómsveitastjórarnir eru mjög mis skemmtilegir. Stundum geta þeir vægast sagt verið ótrúlega leiðinlegir, frekir og dónalegir. Eftir tæplega tveggja áratuga minni reynslu í blaðamennsku hef ég strax tekið eftir að fjöldi ritstjóra er ekki minni. Karl Tómasson þeir em nú sem betur fer upp til hópa mun skemmtilegri og málefnanlegri heldur en þeir fyrmefndu og kann ég þeim all flestum bestu þakkir fyrir oft á tíðum góðar og velþegnar ábendingar sem hafa án efa átt sinn þátt í velgengni blaðsins. Einum og einum ritstjóra tekst þó stundum að vera full afskiptasamur og er það undantekningalaust vegna vægi ýmissa greina og mynda í blaðinu. Mig langar góðfúslega að benda þessum ágætu ritstjórum á það, að stór mynd af bæjarstarfsmönnum, bensínafgreiðslumanni eða grein um eitthvað tengt bæjarlífinu sem þeim kann að þykja afar ómerkileg og að þeirra mati fá allt of mikið pláss í blaðinu og jafnvel fáránlegt að skuli fá birtingu kann að vera einhverjum öðrum hjartans mál og án efa blaðinu meira virði en margan grunar. Það hef ég svo sannalega rekið mig á. Mosfellsblaðið er opið öllum og fyrir alla. K Tomm Til sölu Susuki Swift árg. '97, ekinn 95 þús. ásett verð 650 þús. Uppl. í síma 692-0841 Guðlaugur, Leifur, Marteinn og Denni á kafi í einum skurðinum Hrefna Vestmann Elfa Björk Kristjánsdóttir PRUL MITCHELL] TIGI sími: 586 8989 áholt 14 (2.hæð)

x

Mosfellsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.