Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Side 13

Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Side 13
Konukvöld í Kjarna Mikill ljöldi Mosfellskra kvenna lagði leið sína á glæsilegt konukvöld í Kjarna í lok maí s.l. Fyrir þessari glæsilegu og velhepnuðu uppákomu stóðu þær stöllur: Ingibjörg í Pílus, Guðrún í Fatimu og Flildur í Basic. Það var gaman að sjá hversu ijölment var og hvað stemningin var góð á staðnum. í boði voru veitingar af ýmsu tagi og góð tilboð á vöru og þjónustu. Myndimar eru frá þessu skemmtilega kvöldi. Timbur á leikvellinum Sumarsólstöður 21. júní Tónleikar í Hlégarði Á leikskólunum, skólavöllunum og í heimilisgarðinum er oft sandkassar, girðingar og fleira úr tré. Til að verja viðinn eru gjaman notaðar kemiskar efnablöndur, viðurinn er fúavarinn eða gagnvarinn. Sum þessara efna eru eitruð eða hafa eituráhrif. í þeim eru þungmálmar, s.s. kopar, króm og arsenik. Þessi fúavörn er græn og er kölluð "CCA -impregner- ing". Á markaðnum er timbur sem er fúavarið með efnum sem ekki innihalda þungmálma og eru minna skaðleg í umhverfinu. Leitið upplýsinga hjá timburverslunununi. Forðastu fúavarið timbur ef mögulegt er. Ef þú notar fúavarið timbur forðastu það sem inniheldur þungmálma. Ekki nota fúavarið timbur utan um grænmetisbeð. Ef timbrið í sandkassanum er fúavarið með CCA þarf að skipta um sand annað hvert ár. Sigurður S Þorbergsson básúnuleikari og Judith Þorbergsson píanóleikari, halda saman tónleika í Hlégarði 21 .júní n.k. kl 20.30. Tónleikamir verða með fjölbreyttu sniði þar sem flutt verða lög úr ýmsum áttum svo sem jazz ballöður, íslensk sönglög ásamt hefðbundnum verkum fyrir básúnu og píanó. Meðal höfunda má nefna Schumann, Bemstein, Sigvalda Kaldalóns og Eyþór Stefánsson. Einnig verður fluttur þar píanókonsertinn Rhapsody in Blue eftir Gershwin í nýrri útsetningu þeirra hjóna. Sigurður er fastur básúnuleikari í Sinfóníuhljómsveit Islands og Caput hópnum ásamt fleiru. Judith, sem einnig er fagottleikari, hefur leikið með ýmsum listamönnum og hljómsveitum, m.a. Sinfóníunni og Óperu- hljómsveitinni. Hún er einnig fastur undirleikari með Reykjalundarkómum. Saman hafa þau leikið á fjölmörgum tónleikum en þetta eru fyrstu tónleikar þeirra hér í Mosfellsbæ, þar sem þau hafa búið síðan 1996. Tónleikarnir eru styrktir af Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar. Mm wM wd ^WwÝaWcmrejréVœímmi mu mu vsimi Hvert sem vegirtúr vísa. J>i f *rð J>ó gott órvAl ð.f: ^amloRom, na.mmi, sniKKi, nýjAr og g&mi4r viJieóspólur, ísKá.it gos og góðán grillma.t«

x

Mosfellsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.