Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 18

Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 18
Umsjón: Pétur Berg Matthíasson, þeir sem vilja koma upplýsingum og fréttum á íþróttasíðuna geta haft samband í síma: 861-8003 r Islandsmeistarar Þær gera það ekki endasleppt stelpumar í blakinu. Þær færa sig upp um deild með hverju árinu sem Iýður og nú eru þær komnar í 5. deild. Framundan er stórviðburður í íþróttalífi Mosfellsbæinga þegar haldið verður Mosaldarmótið í blaki. Gert er ráð fyrir fleiri hundruð keppendum. Sérstakur vemdari og heiðursgestur mótsins er Birgir D. Sveinson en hann hefur eins og alkunna er stundað blakíþróttina í áraraðir. Að sögn forsvarsmanna blakdeildarinnar er það sérstök ánægja að hafa fengið Birgi á þennan stóra íþróttaviðburð í bænum. Mikill hugur í handboltanum Margir dyggir stuðningsmenn handboltans í Mosfellsbæ hafa án efa haft einhverjar áhyggjur af liðinu eftir að ákveðið var að framlengja ekki samningana við Gintaras og Gintas. Þessar áhyggjur em nú á bak og burt þar sem Afturelding hefúr fengið góðan liðstyrk fyrir komandi keppnistímabil. Eins og flestir vita þá var gerður samningur við Daða Hafþórsson í vor en nú hafa þeir Valgarð Thoroddsen og Sverrir Bjömsson bæst í hópinn. Eins og flestir vita þá eru hér á ferðinni leikmenn í landsliðsklassa og því mjög bjart framundan. Ferð til Þýskalands er í deiglunni hjá meistaraflokknum. Hér áður fyrr var farið á hverju ári til Þýskalands að spila í hraðmótum líkt og nú er fyrirhugað en engin ferð hefúr verið farin síðastliðin ár. Farið verður um miðjan ágúst en þetta er talinn stór þáttur í undirbúningi liðsins fyrir komandi tímabil. Guðmundur fékk playstation Knattspyrnudeild Aftureldingar hélt smá getraun fyrir þá áhorf- endur sem mættu á fyrsta leik keppnistímabilisins að Varmá er Afturelding mætti Nökkva. I hálfleik var dregin út Playstation 2 leikja tölva og var Guðmundur Heimir Sveinbjömsson svo hepp- inn að fá hana. Á myndinni má sjá Guðmund með bróðir sínum Sigurði Páli og formanni knatt- spymudeildarinnar Jóni Ægi. Nú mun knattspyrnuskóli Aftureldingar hefja göngu sína að nýju eftir nokkurra ára hlé. Námskeiðin verða á eftirfarandi tímum: 1. námskeið: 11. - 22. júní 2. námskeið: 9. - 20. júlí 3. námskeið: 23. júlí - 2. ágúst Skráningareyðublöð liggja í íþróttahúsinu. Námskeiðin eru kl. 9:30-12:00 alla virka daga og fara þau fram á Ullarnesvellinum. Knattspyrnuskólinn er fyrir stráka og stelpur fædd ’88 -’96. Nánari upplýsingar í símum: 698-6621 og 694-6426 ttk 566-8555 Benedikt fyrir og eftir átakið. Eg læt lesendum eftir að geta til um hvort var fyrir og hvort var eftir. Agnar Jónsson einn af keppendum, flottur eftir átakið Líkamsræktar átak í Toppformi Fyrir átta vikum hófu sjö vaskir strákar undir leiðsögn Elíasar Níelssonar keppni í fíttnes. Keppnin hófst á þolprófí, ummálsmælingum, fitumæling- um og viktun ásamt því að teknar voru myndir af öllum keppendum. Sigurvegari varð Benedikt Arnar Víðisson. Hann losaði sig við 12 kg, 10% af húðfitu og skrapp saman um 17 cm í mittið. Glæsilegur árangur það. Rebook mótið Fleiri hundruð ungir knatt- spyrnuiðkendur heimsóttu okkur Mosfellinga og tóku þátt í hinu árlega Rebook móti Þruma og Eldinga. Þrátt fyrir talsverða úrkomu skein ánægjan úr hverju andliti eftir vel heppnað mót. Greinilegt er eftir þetta mót að strákamir í Aftureldingu em komnir í fremstu röð. Vellir koma misvel út í Mosfellsbæ eru margir gras- vellir og koma þeir misvel út á ári hverju. Golfvöllurinn hefur síðastliðin ár komið nokkuð vel út undan vetri og í ár sérstak- lega þar sem veturinn var óvenju mildur. Tungubakkar hafa ekki verið mjög góðir síðastliðin ár. Svæðið er orðið frekar óslétt og því nauðsynlegt að gera einhverjar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að þeir eyðileggist. Varmárvöllur hefur komið óvenjuvel undan vetri síðastliðin ár. Þó er eitt vandamál sem hrjáir aðalvelli, en það eru skemmdir í vítateig og eru sumir að skipta árlega um gras í vítateigum þar sem ekki er hægt að bjóða upp á einhvert moldarflag. Margir íþróttavellir eru sandaðir í dag til að slétta og telja vallarstjórar nauðsynlegt að gera það á hverju ári. í lok maí var farið út í það að setja nýtt gras í vítateigana og sanda, svo að Varmárvöllur ætti að líta mjög vel út um þessar mundir. I Hvömmunum er stór grasvöllur með fjórum litlum mörkum sem Mosfellingar hafa getað notað í rúmt ár. Sá völlur lítur nú mjög illa út og ber það vott um hve notkunin á vellinum er mikil og áhugi á fótbolta er sterkur hér í bæ. Það þarf hins vegar að gera eitthvað ef menn ætla að við- halda honum sem grasvelli en ekki malarvelli eins og hann verður innan tíðar. Góð byrjun í fótboltanum Fyrsti leikur Aftureldingar í annarri deildinni var háður laugardaginn 19. maí í gullfallegu veðri að Varmá. Þó nokkuð margir áhorfendur voru á leiknum enda mikill hugur í bænum um að koma liðinu upp úr deildinni. Fyrsta mark sumarsins skoraði stórskyttan Þorvaldur Ámason á 7 mín. leiksins. Nökkvi náði að jafna á 41 mín. en þar við sat hjá þeim. Leikmenn Aftureldingar komu ákveðnir í seinni hálfleikinn og kom Ásbjörn Jónsson okkar mönnum yfir á 52 mín. Það var svo varamaðurinn Þorsteinn Pálsson sem kláraði dæmið á 88 mín. með góðu marki. Það var nánast eitt lið á vellinum í síðari hálfleik og það var Afturelding. Nökkvi varðist hins vegar vel og leit alls ekki út fyrir að vera lið sem spáð er þriðja neðsta sætinu í deildinni. Spáin fyrir sumarið er komin út og er Aftureldingu spá þriðja sætinu, Skallagrími er spáð öðru og Haukum spá titlinum. Meðal þeirra leikmanna sem spiluðu í leiknum vom lánsmenn frá Fylki og ber þar að nefna Hrafnkell Helgason en hann var í byrjunarliði Fylkis í nær allt fyrrasumar. Hann mun þó ekki spila marga leiki með Aftureldingu, hann var að koma frá Bandaríkjunum og má búast við að hann fari aftur í herbúðir fylkismanna fljótlega. Það em aðrir Fylkismenn komnir til liðs við Aftureldingu sem munu spila með liðinu í allt sumar. Má þar nefna Vilberg Kristjánsson sem er markvörður og Þorsteinn Pálsson en hann skoraði þriðja markið í fyrsta leiknum. Ragnar Egilsson er komin aftur en hann lék með liðinu sumarið 1999. Sonur hins kunna knattspyrnukappa Ásgeirs Elíassonar er komin til liðs við Aftureldingar á ný. Þorvaldur lék á sínum yngri árum með Aftureldingu. Afturelding vann sannfærandi sigur á liði Skallagríms í Borgamesi í þann 25.maí s.l. Afturelding skoraði fyrsta markið og var þar að verki Þorvaldur Ámason. Skallagrímur jafnaði metin um miðjan fyrri hálfleik og okkar menn virtust lengi í gang eftir það. Síðari hálfleikur hófst með miklum látum og var það Þorsteinn sem kom Aftureldingu yfir með sinni fyrstu snertingu í leiknum en hann kom inná sem varamaður á 75. mínútu. Fyrirliðinn Geir Rúnar skoraði svo 3. markið úr vítaspymu og síðasta orðið átti Hrafnkell með góðu skoti fyrir utan teig. Afturelding gerði 1-1 jafntefli á Varmárvelli þann 4. júní við Hauka í jöfnum og spennandi leik þar sem okkar menn voru nær því að stela sigrinum. Það var Ásbjörn Jónsson sem skoraði mark Aftureldingar í leiknum. Okkar menn unnu stórsigur á liði Léttis 3-0. Það var Geir Rúnar sem skoraði fýrst stórglæsilegt mark beint úr aukaspymu. Það var Ásgeir Freyr Ásgeirsson sem skoraði næst á síðustu mínutu fyrri hálfleiks með langsskoti. Það var síðan Þorvaldur Árnasson sem innsiglaði stórsigur með þriðja markinu eftir laglegan samleik og Afturelding trónir nú á toppi 2. deildar. Mosfellingar munum félagsnúmer Aftureldingar í getraunum er 270 styðjum okkar fólk í íþróttunum.

x

Mosfellsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.