Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Page 17

Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Page 17
Meðal fegurstu fljóða Iris Dögg Oddsdóttir, 18 ára Mosfellingur, kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir fjórum árum þegar hún gerði sér lítið fyrir og sigraði Elite-keppnina og í framhaldi af því fór hún til Frakklands í alþjóðlega fyrirsætukeppni. Þann 18. apríl s.l. lenti hún svo í 2. sæti í keppninni um ungfrú Reykjavík og var auk þess valin ljósmyndafyrirsæta. Einnig tók þátt í þeirri keppni Ingibjörg Sveinsdóttir, Kjalnesingur, en báðar unnu þær sér rétt til þátttöku um val á fegurðardrottningu Islands. Þær stöllur ena góðar vinkonur og stunda hestamennsku saman af miklum krafti í sínum frítíma. Þann 23. maí stóðu þær svo saman á fjölunum á Brodway í keppninni um ungfrú ísland ásamt 22 öðrum gullfallegum stúlkum. íris Dögg náði stórkostlegum árangri og hafnaði hún í 3. sæti. íris stundar nám við Borgarhollsskóla og er á verslunarbraut en þaðan mun hún útskrifast um næstu jól og stefnir svo á stúdentinn. íris starfar á Reynisvatni í sumar ásamt því að ferðast og sinna fyrirsætustörfum og er nú einmitt í vikuferð á Grænlandi þess efnis. Foreldrar Irisar eru þau Oddur Þórðarson og Guðrún Jónsdóttir sem eru búsett í Brattholtinu. Mosfellsblaðið óskar Irisi Dögg og fjölskyldu til hamingju með árangurinn. Fjölskyldan samankomin að lokinni krýningu. Iris Dögg ásamt kærasta sínum Geiri Óskari Hjartarsyni. Einn glæsilegasti veitingastaður landsins í byrjun mánaðarins opnaði með miklum glæsibrag fímmti KFC veitingastaðurinn. Það er gaman fyrir okkur Mosfellinga að hafa fengið þetta glæsilega mannvirki og þennan fallega veitingastað í bæjarfélagið. Staðurinn er eins konar óður til barnanna, enda stór hluti staðarins tileinkaður börnum. Skemmtilegar rennibrautir iyrir börnin eru svo staðsettar í 60 f.m. sér rími. Haganlegar innréttingar og geysilega falleg hönnun ber staðnum gott vitni. Útlit hússins og aðkoma er aðdáunarverð. Það er óhætt að óska eigendum hússins til hamingju með glæsilegan stað og verulegt aðdráttarafl yngri sem eldri bæði hér í Mosfellsbænum og alls staðar af höfuðborgarsvæðinu. Þá er ljóst að staðurinn er kærkominn áningarstaður ferðalanga sem eru að koma af landsbyggðinni. Myndimar eru teknar við opnun staðarins. Helgi Vilhjálmsson eigandi tekur við heillaóskum Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson tróðu upp við opnunina Vantar eignir í Mosfellsbæ vegna mikillar sölu. Komum og skoðum samdægurs. Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Páli í síma 5704500 og 698-8175 Oðinsgata 4 fc, FASTEIGNA ^ MARKAÐURINN ehf Óðinsgötu 4, Sími: 570-4500 FAX: 570-4505 Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali - sími: 570-4500 - heimasíða www.fastmark.is Alhl riársnyri iða |j óstofa J_ Sumaropnun mán-fös 10-18 lokað á laugardögum Elín Björk og Anna Björg / GfláfooflfrS M sígsiSs &(§><§> B&'f)!!

x

Mosfellsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.