Vísir - 16.02.1970, Síða 1
m
Fræknir feðgar nota þarfasta þjóninn
Það kom sér vel i morgun að hafa kynni af þarfasta þjóninum,
eins og sjá má. Þessir fræknu feðgar komu ríðandi sunnan úr
Kópavogi, þegar bílar urðu haldlaust farartæki. Þeir eru Birgir
Kristjánsson, járnsmíðameistari, og synir hans Jóhannes og
Kristján. Jóhannes er reyndar starfsmaður Vfsis og komst tll
vinnustaðar eins og aðrir á blaðinu, enda þótt hans aðferð hafi
e. t. v. verið hvað snjöllust.
SAMGONCUR IAMADAR UM
MIKINN HIUTA LANDSINS
■ Blindandi skafrenningur skóf í alla vegi og
lamaði allar samgöngur á Suðvesturlandi í nótt,
svo að nánast hlauzt af neyðarástand.
■ Fullir áætlunarbílar af fólki voru alia nóttina
að berjast við að komast til byggða og lentu margir
í hinum verstu hrakningum, þar sem þeir sátu fast-
ir í bílum í sköflum.
Jafnvel innan þéttbýlis, eins
og í Reykjavík, tók fyrir alla
umferð, nema nokkrir vel útbún
ir fjallabílar gátu brotizt í gegn
um skaflana og flutt nauðstatt
fólk í húsaskjól.
„Hér hefur ekki linnt síma-
hringingum fólks í nauðum,
fólks sem nauðsynjastörfum
þarf að sinna (eins og á sjúkra-
húsum) og annarra, sem þarfn-
azt hafa leiðbeininga“, sagði
Páll Eiríksson, lögregluvarðstj.
í viðtali við Vísi í morgun, en
lögreglumenn, sem sumir hverj.
ir brutust fótgangandi úr Kópa
vogi og frá Seltjarnarnesi til
vinnu sinnar, máttu hafa sig
alla við í morgun og í nótt til
þess að liðsinna fólki, sem lagt
hafði í ófærurnar á smábílum
með sumarhjólbarða, og til þess
að reyna að greiða götur al-
menningsvagna, sem sátu fastir
á öðru hverju götuhorni.
■ Fólki komið í skjól
„Það var mikil stoð í öllu
þessu öngþveiti að við stóöum i
talstöðvarsambandi við þrjá
fjallabíla frá Guömundi Jónas
syni, sem tíndu upp af götun-
um farlaust fólk og komu því í
skjól“, sagði Páll varðstjóri.
Moksturstæki á vegum borg
arinnar voru send kl. 5 í nótt
til þess að reyna að ryðja helztu
umferðaræðar en öll slík við
leitni reyndist gjörsamlega til-
gangslaus, því að á nokkrum
sekúndum hafði jafnan skafið í
allar slóðir aftur.
í Kópavogi voru nær allar
götur ófærar, en tveir ófæru-
bílar frá deild SVFÍ I Kópavogi
voru lögreglunni til aðstoðar við
að bjarga nauðstöddum veg-
farendum og sinna neyðarköll
um.
Skólar sendu út tilkynningar
í útvarpi um, aö kennsla félli
niður í öllum skólum Reykjavík
ur og héldu foreldrar börnum
sínum heima fyrir, nema nokk
ur, sem lögð voru af stað í
skóla sína áöur en tilkynningin
barst þeim til eyma.
Allt atvinnulíf lamaöist, þeg
ar starfsfólk komst ekki til
vinnu sinnar, utan einstaka mað
ur sem brauzt áfram í gegnum
blindandi skafrenninginn. Betur
voru þeir staddir sem gripu til
gamalla skíöa sinna og renndu
sér milli borgarhluta á skíðum,
meðan aðrir stóðu fastir í sköfl
um, eða fariausir hjá biðskýlum
strætisvagna.
■ Ólæknandi bjartsýni
og bróðurkærleikur
Þegar Vísismenn fóru á stjá
í morgun var veðriö enn £ mikl
um ham, en það voru einnig all
ir þeir, sem voru komnir á stjá.
Það er einkennandi fyrir fólk
almennt, hvað allir verða hress
ir og glaðværir, þegar svona
stendur á og allir skemmta sér
raunar mjög vel. Karlmenn fá
útrás fyrir „karlmennskuna“ og
hinn grái hversdagsleiki er víðs
fjarri.
Nokkrir voru þeir snemma í
morgun, sem virtust þjást af
ólæknandi bjartsýni. Þannig var
það hreint ekki óalgeng sjón að
sjá menn gera tilraunir á litlum
keöjulausum bílum að brjótast
í gegnum skaflana, en allir slík
ar tilraunir voru dauðadæmdar.
Margir gerðu það eina skyn
samlega, að búa sig vel og
þramma í vinnuna, sumir jafn-
vel á skíðum og einstöku hesta-
menn sáust £ umferðinni. —
Þeir, sem fóru fótgangandi
lentu margir upp i fjallabflum
fyrr en varði, þvi f svona óveðri
verða allir „bræður'* og hjálp-
fýsin og bróðurkærleikurinn er
mjög áberandi.
■ Strætisvagnar
I vandræðum
Strætisvagnamir hófu akstur
£ ófærðinni i morgun, en þegar
þeir komu ekki aftur var hætt
að senda út vagna. Liðlega átta
• Þessi svipmynd sýnir Reykjavík eftir snjðkomuna mildu, líklega þá mestu í ein 20 ár eða svo. Öskjuhlíðin var lítt árennileg.
Þar stóðu mjólkurbílar f biðröð og strætisvagn fastur. (Ljósm. Vísis BB).
£ morgun voru sex vagnar fastfe'
á mótum Nóatúns og niöor
Laugaveginn. Um hádegisbilið
voru þrir vagnar í feröum,
Kleppsvagninn sem ók að
Sunnutorgi, Vogavagninn að
Elliðaárvogi og Bústaðahverfi
inn Miklubraut að Akurgeröi.
Stór hópur farþega, sem ætl
uöu með strætisvögnunum
snemma í borgun urðu aö bföa
árangurslaust eftir vögnunum,
sem sátu fastir hingaö og þang
aö út um borgina. í morgun var
unnið úð því aö draga vagnana
aftur á geymslustaði þeirra.
Margir urðu því að nota tvo
jafnfljóta í morgun og komust
þeir leiöar sinnar, sem það
gerðu. Aðrir gripu til þess að
ganga á skíðum í vinnuna og
enn aðrir til hesta.
Einu farartækin sem voru eitt
hvaö að ráði á hreyfingu í morg
un voru snjóbílar, vélknúnir
snjósleðar og vel útbúnir jepp-
ar.
B Ameríkanar á
skemmtireisu
Ameríkanar af Vell-
um ætluöu í gær í skemmti-
reisu um Hafnir og til Grinda-
víkur f góða veðrinu. Veðrið
reyndist hins vegar ekki jafn
gott alla feröina, þegar kom út
á Reykjanesiö týndu hermenn-
irnir veginum, þar sem snjónum
kyngdi niður og varla sá út úr
augum fyrir hríð. Létu þeir fyr
irberast í bílunum til kvölds,
en þá kom lögreglan í Grinda-
vík með aðstoðarmenn og bjarg
aði þeim til bæja. Þeir voru
komnir í húsaskjól laust eftir
miðnætti
Sjá
fréttir bls.
10 og 16