Vísir - 16.02.1970, Page 10
10
VÍSIR . Mánudagur 16. febrúar 1970.
Flugfarþegar veðurtepptir
í hálfan sólahring í rútu
ágætlega um okkur. Fólkið
blundaði inn á milli og það var
nægur hiti í bílnum. — Yngsti
farþeginn þriggja ára snáði var
t.d. hinn hressasti og fór ágæt-
lega um hann en alls voru þrjú
börn í rútunni.
' í sunnanverðri Öskjuhlíð varð
svo rútan olíulaus, en úr því var
fóikinu óhætt og fólki í tveimur
öörum rútum, sem lenti í svip-
uðum hrakningum á leiðinni frá
Keflavík.
„Við komum að rútunum við
kirkjugarðinn í Hafnarfirði,"
sagði Guðmundur Jónasson,
Þriggja ára drengur var meðal farþeganna
# Þetta var alveg band-
brjálað veður og úti-
^okað að fara með far-
þegana út úr rútunni við
Hafnarf jörð inn í hús, þó
að stutt væri að fara svo
við héldum þetta út í
bílnum, sagði Elísabet
Jónsdóttir flugfreyja
Flugfélags íslands, sem
lenti í 12 klukkustunda
hrakningum á leiðinni
frá Keflavíkurflugvelli
til Reykjavíkur í nótt og
í morgun. — Bíllinn
hristist og skalf og það
sá ekki út úr augum, en
okkur leið ágætlega.
Fjörutíu farþegar og átta
manna áhöfn var I rútunni, en
fólkiö var að koma með þotunni
frá Kaupmannahöfn og Ósló. -r
Við lögðum af stað frá flugvell-
inum kl. 9.20 I gærkvöldi, en
lenturn fyrst í verulegum vand-
ræöum við Stapa, þar sem rútan
var föst hátt á annan tíma. Rétt
ofan við Hafnarfjörð stönzuðum
við í fjórar klukkustundir og síð-
an aftur við kirkjugarðinn í hálfa
klukkustund.
Allan tímann var veðrið væg-
ast sagt kolbrjálað en það fór
hinn kunni fjalla- og ófærukappi
í viötali við Vísi í morgun. Við
hittum á tvo veghefla sem
ruddu okkur leið í bæinn.
Fólkið komst því á Hótel
Sögu kl. 10 í morgun eftir rúmra
12 tíma hrakninga, þar sem
fólkinu var gefin hressing og
margir sem ekkj komust heim
gistu.
Þetta var þá búinn að vera
strangur gangur hjá áhöfn þrot-
unnar. Það vaknaði snemma í
gærmorgun og hafið verið í
Salzburg í Austurríki, Kaup-
mannahöfn, þrisvar sama dag-
inn, í Ósló og loks á Keflavíkur-
flugvelli. — V.J.
Vorum að í
55
alla nótt“
— segir Guðmundur Jónsson, bilstjóri
„Við erum búnir að vera að í
al!a nótt“, sagði Guðmundur Jónas
son, sem landskunnur er af fjallaT.
ferðum sinurii og ýmsum svaðilför
um og líklega allra bílstjóra reynd
astur i akstri við erfið skilyrði.
Fjallabílar háns komu i góóar
þarfir í nótt og í morgun, þegar
flestir stórir bílar sátu fastir, að
ekki sé minnzt á smábíla, og' naut
Framarar — Framarar
Nokkrir eldri félagar gangast fyrir skemmt-
un fyrir Framara 25 áfa og eldri í Las Vegas
laugardaginn 28. febrúar. Skemmtunin hefst
með borðhaldi kl. 7.30 e. h. Mjög nákvæmar
upplýsingar gefnar í Straumnesi, Lúllabúð
og Bólstrun Harðar. NEFNDIN
ITT
SCHAUB-LORENZ
GELLIR sf.
Garöastræti 11
Sírni 20080
lögreglan góðrar aðstoðar reyndra
bílstjóra Guömundar til þess að
sinna nauðstöddum vegfarendum,
sem sátu fastir í sköflum á götum
borgarinnar.
„Við höfum hirt upp fólk sem
verið hefur á stjái, eða setið hefur
fast í bílum, og einstaka bílum höf-
um við kippt úr sköflum, þótt
slíkt væri reyndar til lítils, því þeir
festust jafnan aftur.“ sagði Guð-
mundur, og sýndi lítil þreytumerki,
þótt hann hefði komið úr langferð
frá Hvammstanga í gærkvöldi kl.
10 og svo allur þeysingurinn í nótt.
„Ferðin frá Hvammstanga gekk
prýðisvel, nema í Brynjudal í Hval-
firði var allt teppt vegna smábíla,
sem sátu fastir, og eins á Kjalar-
nesi.
Verstir eru þessir smábílar, sem
leggja í akstur í svona færð, með
hjólaútbúnað eins og að sumarlagi
og svo stjórnleysið þegar svona
vandræði bera uppá. T.d. eru 60
manns búnir að sitja fastir á Sand
skeiði í 15 klukkustundir, og eng-
inn er farinn til þess að hjálpa
því núna kl. 10 aö morgni". —GP
Erfiðir
flutningar
á mjólk
• Illa horföi með mjólkur-
flutninga í morgun og útlit var
fyrir, að Reykvíkingar gætu orð
ið mjólkurlausir, ef veður héld-
ist óbreytt, eins og það var í
nótt og í morgun.
Fimm mjólkurbílar frá Mjólkur-
búi Flóamanna voru þó sendir
strax i morgun og orutust þeir
við illan leik upp i Hreppa og í
Biskupstungur. en skönimu áður en
blaðið fór i prentun voru fleiri
mjólkurbílar að leggja af stað inn
á Rangárvelli, því fréttir höfðu
borizt af sæmilegri færð þar á
vegum.
Þegar veðrinu slotaöi, varð útlit
strax betra, því að þá varð strax
auðveldara að moka vegi og rvðja
mjólkurbílum braut svo. aó líklega
veröur ekki skortur á mjólk —GP
■■.'y's'<\VSSS/SSS/SSSMSSÍ&*V/*S*S/SA-.'S*,-ji,V/s.
• Þeir skynsömu tóku fram skíðin í morgun, — þetta reyndist
eitt hið bezta farartæki í umferðinni á götum Reykjavíkur í
morgun. Þessi mynd var tekin í Skipholti.
50—60 manns veðurteppt
á Sandskeiði i nótt
Jarðýta á leiðinni i morgun til bjargar
ÞRJÁR rútur, stór veghefill
og fleiri farartæki voru veð-
urteppt og föst á Sandskeiði
í nótt. Einnig voru tveir veg-
heflar fastir á Kjalamesi. —
Snjóruðningstæki, sem lagði
af stað frá Keflavík klukkan
sjö í gærkvöldi kom til Rvík-
Mannhæðar-
háir skaflar
Mannhæðar háir skaflar
eru nú víða um Reykja-
vík, en sumar götur snjó
litlar, þar sem hefur skaf
ið af þeim í nótt. —
Snjókoma og hvöss
suðaustan átt í nótt
og fram á morgun
varð til þess að færð
spilltist. Veðrið gekk yf-
ir Vesturland og suð-
urströndina og komst
stormurinn í 9 vindstig í
Reykjavík. Vægt frost
fylgdi bylnum.
I morgun hafði veðrið gengið
niður og komin hæg suðvestanátt
á Reykjanesskaga og á Snæfells-
nesi. Veðrið haföi færzt austur eftir
landinu og klukkan níu var versta
veðrið á Suðausturlandi og á Vest-
fjörðum. Engin sn.iókoma var í nött
á austanverðu landinu, allt frá
Eyiafirði til Austfjarða.
Snjókoma var mjög misjöfn á
Vesturlandi og við suðurströndina.
Ekkert snjóaði f nótt í Síðumúla í
Borgarfirði en í Reykjavík mældist
9 mm úrkoma. sem myndi sam-
svara 9 cm. snjódýpt. 15 mm úr-
koma mældist á Reykjanesvita en
11 mm í Vestmannaevjum. Fyrir
austan fjall var lítil sem engin úr-
koma í uppsveitum og engin úr-
koma mældist á Hellu.
I morgun var vfirleitt vægt frost
á landinu, mest 9 stig á GrimsstÖð-
um Spáö er suövestan- og yest^n-
átt um allt land á morgun og élja-
gangi vestan’ til á landinu. — S.B.
ur klukkan átta í morgun.
Allir vegir í nágrenni Reykja-
víkur voru lokaðir og ófærir
í morgun og einnig leiðin
austur fyrir fjall. Menn frá
Vegagerðinni hlutu kalda
gistingu þar sem þeir voru
veöurtepptir á snjómoksturs-
tækjum sínum á fyrrnefndum
stöðum.
Hjörleifur Ólafsson hjá Vega
gerðinni sagði starfsmenn Vega
gerðarinnar hafa lent i hinum
verstu erfiðleikum við að bjarga
fólki. — Snjómoksturstæki
okkar og menn hafa orðið að
liggja úti í nótt. Fyrstu aðgerð-
irnar eru að reyna að ná til
þeirra með jarðýtum héðan úr
Reykjavik.
Það virðist vera aö þrátt fyrir
margítrekaðar aðvaranir okkar
i útvarpinu í gær hafi menn
ekki tekið þær alvarlega og
kjánazt af stað. Þar vil ég eink-
um nefna menn með rútubíla,
sem hafa lagt út í tvísýnu með
farþega. Þrjár rútur, sem voru
að koma að austan sitja fastar
á Sandskeiði og eins og má bú-
ast við að einhverjar bifreiðar
séu á Kjalamesi og á austur-
leiðinni. Þá sagði Hjörleifur, að
austurleiðin verði rudd eins
fljótt og hægt verði að koma
því við, einnig leiðin upp á Kjal
arnes, en hann vissi ekki hvað
yrði um Suðurnesjaleiðina. —
Eina leiðin, sem fær var í morg
un var Hafnarfjarðarvegurinn
frá Engidal til Kópavogs. —
Fljótlega yrði byrjað að ryðja
veginn frá Selfossi.
— Við höfum varla getað náð
andanum fyrir hringingum í
morgun, sagði Hjörleifur að lok
um. —SB—
Strandtaði
Mí' >■ 16. sióu.
tyrir strandstaðnum og höfðu stöð
ugt samband við skipiö, en gátu
lítið annað aðhafzt.
Skipveriunum sex var öllum
bjargað í land í björgunarstól sum
ir drógust dálítið i sjó á leiðinni
( land en allir sluppu þó heilir á
húfi.
Varðskipið Þór dró svo bátinn
af strandstað í gær — og mun
hann ekki ýkja mikið skemmd-
ur. —JH—