Vísir - 16.02.1970, Side 7

Vísir - 16.02.1970, Side 7
VfSIR . Mánudagur 16. feBröar 1970. 7 Festival i GLAUMBÆ: Siggi hættur í Pónik! Úthljóð á sviðinu. Salurinn var þéttskipaður áhugasömum áheyrendum. — Ljósm. Ástþór — og byrjaður að æfa Eins og kunnugt er, var haldið Pop-Festival í Glaumbæ þriðju- dagskvöldið 3. febrúar s.l. Spiluðu þar sex nýjar hljómsveitir og ein gamalkunn, Júdas, auk þess sem söngtríóið Fiðrildi lék nokk- ur lög og fransararnir Gaston og Patrice létu einnig til sín heyra. Mikill fjöldi sótti „hljómleika" þessa — ég mundi gizka á sex Siggi. Maður kvöldsins til sjö hunduð manns — og voru þar komnir óskaáheyrendur, eins og' einum hljömsveitarmanninum varð að orði, þ. e.a. s. áheyrend- ur, sem komnir voru til að hlusta og „paela" í því sem hljómsveit imar höfðu fram aö færa. Hvort sem áheyrendurnir hafa verið svo ánægðir með hljóðframleiöslu hljómsveitanna, eða ástæðan liggur annars staðar, þá heyrðist ekki ein einasta óánægjustuna utan úr sai allt kvöldið. En aftur á móti var þeim klappað lof í iófa, sem stóðu sig vel á sen- unni. Blues-gítarinn í „Litla Matjurta- garðinum" Nóg um ágæti áheyrendanna, en aftur á móti nokkur orð um hljómsveitirnar sjáifar. Þær voru sem sé sjö i allt — Tatarar boð uðu forföll á siðustu stundu. Sem heild fór samsteypan fjáning/Tárið einna bezt út úr kvöldinu, en sú hljómsveit er SKipuð sjö spilurum með hljóð- l'ærin: orgel, gítar, bassa, tromrp ur, saxófón og trompet, svo hafa þeir að auki prýðisnáunga til að annast sönginn. Lengi l'eit út fyr- ir að þessi hljómsveit gæti 'ekki orðið með á Festivalinu, þar eð trommuleikari var ekki ráöinn i bandið, en á síðustu stundu tókst að fá Sigurö Karlsson, trommu- leikara hjá Pónik, til að lemja með TjáningulTárinu... húðirnar þetta eina kvöld. Nýj- ustu fregnir herma, að Siggi hafi kunnað svo vel við sig í þessari nýstofnuðu hljómsveit, að hann hafi nú kvatt sína gömlu félaga í Pónik og fastráöið sig í Tján- ingu/Tárið. Er víst ekki of sagt, . að þar eigi hann réttilega heima — það geta þeir verið til vitnis um, sem sáu hve vel Siggi lifði sig inn í hljómlist T./T. á Festi valinu. Af öðrum einstaklingum í hin um sundurleitu hljómsveitum, væri helzt að geta Kána gítar- leikara í Mods, en hann stóð þama fyllilega fyrir sínu hvað spil og skeggsöfnun áhrærir. Kári er sá eini, sem eftir er af upprunalegum stofnendum hljómsveitarinnar, en margt góðra manna hefur komið við sögu hennar, þar á meðal þeir Svenni og Kútur í Ævintýri. Og þá má heldur ekki gleyma gítarleikaranum í Matjurtagarð- Gummi trommari í Úthljóði. inum og trommuleikaranum i Úthljóði, en þeir sýndu báðir mik ii tilþrif í leik sínum. Festivalgestir hafa all skiptar skoðanir á ágæti þeirra söngvara, sem sungu með hljómsveitunum og skal hér enginn dómur lagð ur á þeirra framlag, en þaö var samt mál manna, að söngvurun- um, svo og mörgum hljóðfæra- leikaranum hafi reynzt mörg af viðfangsefnunum full strembin við að eiga, og voru það þá helzt Led Zeppelin-lögin sem vildu bögglast fyrir þeim. I hljómsveitinni Frið er söngv ari sá, sem söng með Bendix sálugu áður en Björgvin Halldórs son, núverandi popstjarna kom tíl skjalanna og leysti hann af hólmi — en þetta var nú óþarfa Kári, sá með skeggið í Mods útúrdúr, svo og það að á næsta kvartettum skipuöum ungu fólki skemmtun — Gamla Bíó var jú SAM-Festival er fyrirhugað að og hefur helzt komið til tals, að lengi einn aðal hljómleika- og safna saman ýmsum kórum og leigja Gamla Bíó undir þá söng konsertsalur borgarinnar. þjn:. Auglýsing um forval á verktökum til hraðbrautaframkvæmda Vegagerð ríkisins ráðgerir að efna til útboðs í ár á framkvæmdum við lagningu um 56 km af hraðbrautu m á Vestur- og Suðurlandsvegi. Veg arkaflar þessir verða með tveimur akreinum og slitlagi úr malbiki og olíumöl. Útboði mun verða skipt í tvo flokka: 1. í fyrri flokknum verða tveir vegarkaflar, alls um 10 km. Jarðvinna verður um 525.000 rúm., þar af um 205.000 rúm. skeringar og fyll- ingar úr hrauni. Auk þess nokkrar smábrýr (minni en 10 m) og ræsi. Útboðsgögn þessa flokks verða tilbúin í maí n.k., og munu verktak- ar, valdir samkvæmt forvali, fá 60 daga til þess að ganga frá tilboð- um. Áformað er, að framkvæmdir hefjist í september eða október næst komandi. \ 2. í seinni flokknum verða sex vegarkaflar, alls um 46 km. Jarðvinna verður um 1.070.000 rúmm., þar af um 840.000 rúmm. skeringar og fyllingar úr hrauni. Auk þess nokkrar brýr og ræsi. Útboðsgögn þessa flokks verða tilbúin í október eða nóvember n.k. Verktakar, valdir samkvæmt forvali, fá 60 daga til þess að ganga frá tilboðum. Áformað er, að framkvæmdir hefjist í byrjun maí 1971. Aðeins þeim verktökum, sem samkvæmt forvali verða taldir hæfir, verður boðið að senda tilboð, og verða tilboð frá öðrum en þeim ekki opnuð. Verktakar, sem óska eftir að taka þátt í forvali, geta fengið helztu upp lýsingar um verkið, ásamt öðrum gögnum um forval, hjá Vegagerð rík- isins, Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 2000 kr. skilatryggingu. Forvalsgögnum skal skilað fullfrágengnum til Vegargerðar ríkisins fyrir kl. 12 á hádegi hinn 6. apríl n.k. Reykjavík, 14. febrúar 1970 Vegagerð ríkisins. CHLORIDE- JttwXZ Allar stærðir rafgeyma í allar tegundir bifreiða, vinnuvéla og vélbáta. Notið aðeins það bezta.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.