Vísir - 17.02.1970, Blaðsíða 1
snjór frá 1952
Mesti
Heiðskírt og stillt veður var
um Suður- og Vesturland í
morgun, og þokublettir á þeim
stöðum, sem veður var stilltast.
í Reykjavík er snjódýptin tal
in vera um 35 cm., þegar miðað
er við jafnfallinn snjó. Blaðiö
hafði samband við Jónas Jakobs
son veðurfræðing í morgun, sem
sagði snjóinn líklega vera meiri
nú en árið 1957 vegna þess, að
hann sé miklu þéttari 1 sér.
Hins vegar mun hafa mælzt öllu
meiri snjódýpt árið 1952.
Nokkurt frost fylgir góöa veðr-
inu, en mesta frostiö mældist á
Hellu og á Þingvöllum. Á Hellu
var hrímþoka samfara frostinu.
í Reykjavík var 4 stiga frost.
Þokublettimir, sem gætti á
nokkrum staðtun I mnngHn
stafa af kókran saks lofis nRSri
við snjóínn.
1 fyrramáti tná búast váö að
aftur hafi skipt um og góðviðrið
horfið, en spáln er að þykkni
upp í nótt og hwöss suðausían
átt og snjókoma hejgi aftur á
Reykyfkinga. -SB-
L M. Ericsson hugleiðir símasam-
setningarverksmiðju hér
Þyrfti þá 5000 konur til oð v/nno / verksmiÓjunni
0 Innganga íslands í
EFTA, Fríverzlunarsam-
tök Evrópu, skapar mörg
tækifæri í atvinnulífi lands
ins, hvort sem er aö eigin
frumkvæði eða í sambandi
við erlend stórfyrirtæki.
Sænska símaframleiðslufyriftæk-
ið L. M. Ericsson hefur þannig
sýnt nokkurn áhuga á því að koma
upp samsetningarverksmiðju hér á
landi, en talað hefur verið um, að
til þess þyrfti um 5.000 konur,
sem ynnu hálfan daginn. Það ligg-
ur hins vegar ekki ljóst fyrir, hvort
t. d. hér á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu eru fyrir hendi svo margar kon
ur, sem áhuga hafa á hálfsdags-
vinnu, þó að mjög hafi skort slíka
vinnu fyrir húsmæður.
Það er sænski læknirinn og ís-
landsvinurinn Bo Aakerén, sem hef
ur haft milligöngu i þessu máli,
sem mun þó ekki vera komið neitt
á viðræöustig við íslenzk yfirvöld..
Aakerén hefur nefnt þessa hug-
mynd við einn forstjóra Ericsson,
sem er persónulegur vinur hans,
og hefur fyrirtækið sýnt þessu
nokkurn áhuga.
í þessu sambandi má geta þess,
að Aakerén hafði milfigöngu á
sama hátt að koma upp verksmiðju
Ericsson í afskekktu byggðarlagi,
þar sem hann var áður laaknir, en
hann er nu borgarteknir í Stokk-
hólmi.
Enn er aiis óvíst, hvaö úr þessu
verður, en þessi hugmynd sýnir, aö
ýmis tækifæri eru fyrir hendi við
inngönguna í EFTA, en vandamál
íslenzkra yfirvalda nú er kannski
að velja og hafna.
Þess má geta, að Bo Aakerén
hefur sýnt íslenzkum máiefnum
mikinn áhuga.Haim hefur m. a. unn
ið að tiilögom ta bættrar teknis-
þjónustu hér á landL Þá hefur hann
og kona hans styrkt fslenzka náms-
menn tíi náms í Sviþjóð.
Útilegubátar
með 75 tonn
s túr
í Grindavík hefur hvað mestur
afli komið á land í vetur eins og
raunar í fyrra. Núna 15. febrúar
voru 4.100 lestir komnar þar á land,
en um þetta leyti í fyrra var enginn
afli kominn úr sjó vegna verkfalls.
— Aflahæstu bátamir i Grindavík
eru Arnfirðingur með 358 lestir í
26 róðmm og Geirfugl með 340
lestir. Báðir hafa verið á netum og
aflinn er mestmegnis ufsi.
Af línubátum í Grindavík hefur
Þórkatla II. mestan afla 213 lestir,
en skipið hefur verið á útilegu,
Útilegubátamir hér í Flóanum
hafa raunar fiskað mjög vel í vetur
og útkoman er trúlega mun betri
hjá þeim en dagróðrabátunum. —
1 gær kom til dæmis Ásþór til
Reykjavíkur með 75 lestir eftir
viku útilegu og Ásbjörn landaði hér
á föstudaginn 60 tonnum. — Kefl-
víkingur landaði í Keflavík 68,5
tonnum í gær eftir vikuútilegu líka.
Afli útilegubátanna er yfirleitt góð-
ur fiskur til vinnsiu.
Netabátar fengu sumir góðan
ufsaafla suður í Miðnessjó fyrir
helgina. Til dæmis fékk Helga RE
þar 47 tonn. en £ gær voru fáir á
sjó og aflinn yfirleitt tregur. Lítið
fiskast í net og troll hjá dagróðra-
bátum og netabátar fara margir
varhluta af ufsahrotunni. — J.H. —
Ýta dregur langferðabíla úr mannhæðarháum snjónum hjá Sandskeiði, en þar höfðu bflamir setið fastir í næstum sólarhring.
Ljósmyndina tók ljósm. Vísis, Bragi Guðmundsson, sem var 5 klst. aö brjótast upp á Sandskeið í gær.
„Nær að koma með bita!"
— sagbi fólkið / rútunum, svangt og langþreytt
„Ég hef ekkert borðað síðan
á hádegi í gær (sunnudag),”
sagði einn farþeginn, þegar
Ijósmyndara Vísis bar að rút-
unurn þrem í festunni á Sand
skeiði í gærdag.
Matur virtist vera fólkinu
efst í huga, og öðrum varð
að orði um þyrilvængju,
mannaða sjónvarpsmönnum,
sem sveimað hafði yfir rút-
unum um morguninn: „Það
hefði verið nær, að þeir hefðu
komiö með bita með sér!“
Heilan sólarhring var fólk að
hrekjast í þrem áætlunarbílum,
sem lagt höfðu af stað frá Fljóts
hlið, Ljósafossi og Þorlákshöfn
í fyrrakvöld kl. 6 og 8. í alia
fyrrinótt sat fólkið í rútunum
fast í sköflum á Suðurlandsveg
iiium ofan við Sandskeið.
Það var ekki fyrr en um kl. 6
í gærdag, að fólkiö komst til
byggða, og var þá búið að kúra
í bíluit-im allan tímann, matar-
laust og svefnvana, en eftir at
vikum sæmilega haldið og hlýtt.
Einn bílanna hafði talstöð
og gat í fyrrakvöld gert viðvart
um, hvernig komið væri fyrir
bílunum, en snjógplógur, sem
sendur var úr Reykjavík til að-
stoðar, strandaði, þegar hann
var kominn upp fyrjr Lögberg,
og urðu stjómendur hans að
láta fyrirberast i honum um
nóttina.
Eins og hráviði á vegunum voru yfirgefnir bílar, og til þess
að ýtur kæmust til þess að ryðja brautirnar, urðu þær fyrst
að draga bílana úr slóðunum.
Hjálp barst fólkinu ekki fyrr
en ýta ruddi sér leið að bílunum
kl. 4 í gær og hafði hún lagt
af stað snemma morguns, en í
slóð hennar fóru plógurinn og
minni vélskófla. En seinlega
gekk þó ferðin í bæinn, enda
var mikill snjór á þessum slóð-
um, og erfitt að ryðja greiðfæra
braut.
Að vonum voru sumir gramir
og leiðir yfir þessari óskapa
töf og óþægindiim hennar
vegna, og voru sumir ómjúkir £
máli yfir því, að ekki hefði ver-
ið varað við færðinni, áður en
lagt var af stað, en aðrir töldu,
að bilstjórarnir hefðu ekki sinnt
sem skyldi þeim viðvörunum,
sem útvarpað hafði verið í fyrra
dag.
Klukkutíma síðar var búið að
opna leið fyrir lest bíla, mjólk-
’urbíla, áætlunarbíla og minni
bíla, sern komu að austan, en
voru hindraöir af ófærðinni
nokkm austan við Sandskeið.