Vísir - 17.02.1970, Síða 2
og hörnin eru undir
stöBugri lögreglunjósn
— pabbinn var lestarræningi
Ekki einu sinni á kyrrlátum eft ströndinni með sonum sínum
irmiðdegi sem þessum, fær kon- þremur, fyrir vökulum augum
an á myndinni að vera í friði á leynilögreglumanna.
Þeir sleppa henni aldrei úr aug
sýn eitt einasta fótmál og það var
bara fyrir kurteisissakir, aö
leynilögreglumaðurinn, sem fjöl-
skylduna elti þennan daginn, brá
sér úr. sjónvídd ljósmyndavélar-
innar, meðan myndin var tekin af
frú Charmain Biggs, sem er gift
Ronald Biggs — einum þeirra, sem
stóðu aö iestarráninu mikla í Bret
landi hér fyrr á árunum.
Ronald Biggs er einn þeirra
manna, sem Interpol og lögregl-
ur brezku samveldislandanna
hafa einna mestan hug á að ná
tali af og leita dyrum og dyngj-
um að, en þar til þeir ná honum,
mun lögreglan aldrei sleppa konu
hans.úr augsýn. Þeir hafa heitið
henni því.
Það eru næstum fimm ár liðin,
siðan Ronald Biggs strauk úr
ensku fangelsi og flúði til Ástra
liu með fjölskyldu sinni, en þar
fóru þau huldu höfði í fjóra mán
uði og lifðu hamingjusömu lífi
saman, En þá var einhver, sem
þekkti aftur Ronald af myndum,
og þá var friðurinn úti. Hann
varð að flýja aftur.
Charmain hafði enga ástæðu
ti! þess að flýja, og varð að vera
eftir hjá sonum þeirra og ráða
fram úr ýmsum vandamálum. —
Það voru auk alls annars, pen-
ingavandræði, sem að heimilinu
steðjuðu, þrátt fyrir að Charmain
'höfðu verið greiddar 6,5 milljónir
króna fyrir ævisögu sína, sem
brezk og áströlsk dagblöð fengu
að birta. Skattayfirvöld höfðu
nefnilega dregið sér helminginn
af því.
........... ■ -■■>:■- ■ ■ ■:..................... ....................................................
Charmain Blggs, eiginkona eins iestarræningjans enska, og synir þeirra þrír sóla sig hér
á ástralskri baðströnd, en vökul njósnaaugu lögreglunnar hvíla stöðugt á þeim og sleppa
aldrei af þeim sjónum eitt einasta fótmál.
••••••••••••••••••••••••
........... .i-i. i ...—.......... ...■... ...... ■
LEIGAN s.f.
Vinnuvélar tll leigu
Litlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. borum og ileygum
Rafknúnir Steinborar
Vatnsdœlur (rafmagn, benzín)
Jo rðvegsþjöppur Rafsuðutœki
Vlbratorar
Stauraborar
Slípirokkar
Hitablásarar
HÖFDATUNI Jl
SIMI 23480
Sjúklingurinn
fannst ekki
Öldruð hjón í Morrumbala í
Mozambique hröðuöu sér allt
hvað þau gátu til Beira um 200
mílna vegalengd, þegar þau höfðu
móttekið skeyti, sem sagði að dótt
urdóttir þeirra, Mariana, hefði
verið lögð þar inn á sjúkrahús og
læknarnir óttuðust um líf hennar.
Þegar þau komu á sjúkrahúsið,
var þeim tjáð, að enginn úr fjöl-
skyldu þeirra væri þar sjúkling-
ur. Við nánari athugun sýndi
skeytið, hvemig á þessu stóð. Það
hafði veriö sent fyrir þrem árum
— á þvi herrans ári 1967.
Dularfullt rekald á sjó
— Vélmenni, sem fjarstýrt er með útvarpssendingum
GRENSASVEGI 8
„Ohó, þarna! Gerið grein fyrir
ferðum ykkar hér í landhelgi!"
nrópuðu strandgæzlumenn USA,
en fengu ekkert svar, og þeir
virtu þetta einkennilega (sjó)far
artæki fyrir sér með vaxandi tor
tryggni.
En þeir hefðu mátt hrópa sig
hása, og samt heföu þeir ekki
fengið neitt svar af þeirri ein-
földu ástæðu, að enginn var um
borð til þess að svara. Þetta rek-
ald var mannlaust með öllu.
Þessi skúta, rekald, eða hvað
menn vilja nefna það, er nokkurs
konar vélmenni (robot) á siglingu
og er hugarsmið Radio Corpor-
ation of Amerioa. Það er nánast
hringlaga, 9 fet í þvermál, með
föstum gerviseglum úr léttu
plasti. Það er notað til mælinga
á straumum hafsins, til þess að
kortleggja þá, og auk þess eru
með því gerðar tilraunir meö nýj
ungar 1 sambandi við siglinga-
fræði.
Þeir, sem þetta tæki gerðu,
segja, að það sé fjarstýrt og hægt
sé að senda það til hvaða staðar
á hafinu, sem vera vill, og svo
nákvæm er stýringin, að því verð
ur haldið á beinni stefnu, svo
ekki skeiki meira á hundruð
mílna siglingu en 1/10 úr mílu.
Það er kallað SKAMP, en það
er skammstöfun úr „Station
Keeping and Mobile Platform".
Tiiraunir með þetta furðulega
siglingatæki ganga meðal annars
út á siglingastjóm skipa í gegnum
gervihnetti, en þar sem vakir fyr
ir mönnum 'að senda stjómtækj-
um hafskipa fyrirmæli með út-
varpssendingum í gegnum endur
varpsstöðvar gervihnatta.
SKAMP er þannig gert úr garði
að það getur siglt um höfin svo
mánuðum skiptir. en snúið síðan
til heimahafnar, án þess að
mannshöndin snerti þar nokkurn
hlut um borð. Annars hefur fátt
verið upplýst um þetta furðutæki,
þar sem þaö hefur hernaðariega
þýðingu og ku hafa elt kafbáta og
vfsað mönnum ofansjávar á leið
þeirra.
/