Vísir - 17.02.1970, Síða 4
Joe Frazier heimsmeistari
/ þungavigt í hnefaleikum
— Vann titil Cassiusar Clay i keppni við Jimmy Ellis i nótt
Nýr heimsmeistari í þungavigt
f hnefaleiknum var krýndur á
Madison Square Garden í New York
sl. nótt, Joe Frazier, 26 ára gamall
svertingi frá Philadelpíu, en hann
sigraði Jimmy Ellis í fjórðu lotu,
að viðstöddum 18 þúsund áhorfend-
um, sem greiddu 600 þúsund doll-
ara — eða 53 milljónir ísl. króna
— í aðgangseyri. Loksins eftir þrjú
ár er kominn heimsmeistari, sem
allur heimurinn viðurkennir. en
eins og kunnugt er var Cassius
Clay sviptur heimsmeistaratitli sín-
um 1967, þar sem hann var dæmd-
ur í fangelsi fyrir að neita að gegna
herskyldu í bandaríska hemum.
Alþjóðahnefaieikasambandið kom
þá á keppni nokkurra kappa. þar
sem Joe Ellis sigraði og var hann af
sambandinu talinn heimsmeistari,
en sex fylki i Bandaríkjunum —
og nokkur lönd í Evrópu — viður-
kenndu ekki þessa keppni og töldu
Joe Frazier heimsmeistara.
Og eftir samninga, sem staðið
hafa yfir í 18 mánuði, var loksins
komið á keppni milli Ellis og
Frazier, sem í eitt skipti fvr-
ir öll skyldi skera úr um hverjum
bæri sá réttur að kailast heims-
meistari í þungavigt, því auðvitað
geta tveir menn ekki borið þann
titil. Gífurlegur áhugi var fyrir
keppni þessara kappa, ekki aöeins
í Bandaríkjunum, heldur í flestum
löndum heims. Veðmálin voru mjög
Joe Frazier í hag — eða 5 á móti 2
— enda þyngri (205 pund) og þekkt
ur fyrir rothögg sín. Hins vegar er
hann aðeins 1.81 m. á hæð. Jimmy
Ellis er 29 ára, einnig svértingi,
1.86 m. á hæð og 201 pund, og
mjög tekniskur hnefaleikari. Hann
var lengi aðal æfingafélagi Cassius-
ar Clay — þá í millivigt — en varð
síðan ágætur í þyngsta flokki og
ósigraður þar í 24 leikjum, þar til
sl. nótt. 21 þessara leikja vann
hann á rothöggi, Joe Frazier er ó-
sigraður sem atvinnumaður en
1964 varð hann Ólympíumeistari í
þungavigt á leikunum í Tokíó.
Keppnin í nótt hófst kl. 3.42
eftir ísl. tíma og voru þar margir
heimsfrægir menn viðstaddir og má
þar t.d. nefna Jack Dempsey.
Hann taldi Frazier líklegri til sig-
urs — eða eins og hann sagði „Joe
getur rotað í einu höggi, og þó
Ellis sé mjög góður hnefaleikari,
held ég, að hann sieppi ekki frá
honum“. Og þessi orð gamla heims-
meistarans rættust.
í fyrstu lotu kom á óvart, að
Ellis sótti þegar mjög og kom mörg
um höggum á mótherja sinn — og
vann hann lotuna með yfirburðum.
Flestir höfðu búizt við því, að hann
myndi fara rólega í sakimar í
fyrstu, og reyna að þreyta Frazier,
sem þekktur er fyrir að sækia stöð-
ugt á
Næsta lota var jafnari — Frazier
var tvísegis aðvaraður af dómara j
fyrir að ,,skalla“ — og báðir sýndu j
mikla leikni. Hraðinn var ótrúlega i
mikill hjá keppendum í þungavigt.
1 3. lotu hrakti Frazier mótherja
sinn út í kaölana og virtist Ellis í
miklum vanda staddur á tímabili,
og Frazier reyndi þá rothögg. Ellis
slapp þó frá honum og sótti sig
undir lokin, en lotan var hagstæð
Frazier.
í 4. lotu komst Ellis aftur fljótt
í vandræði, en hann bjargaði sér
i fy-rstu og virtist vera að ná yfir-
tökunum aftur þegar kom að því,
sem Dempsey hafði spáö. Frazier
kom miklu höggi á Ellis og hann
steyptist í gólfið. í fyrsta skipti í
keppni. Dómarinn hóf talningu, en
á 9 stóð Ellis upp. Frazier geystist
að honum og ekki leið á löngu þar
til Eilis féll aftur. Bjallan hringdi,
þegar talið hafði verið upp að
fimm, en nú var keppt eftir nýjum
reglum þannig, að bjallan getur
ekki bjargað hnefaleikamanninum
— og aftur tókst Ellis að standa
á fætur þegar talið hafði verið upp
að nfu. Og þegar fimmta lotan
átti að hefjast var Ellis kyrr í
horni sinu — læknir hans bannaði
honum að halda áfram — og Frazier
var heimsmeistari. Þarna endurtók
>■ 5. síðu.
Islandsmótið i körfuknattleik:
IR og IRarSolk mmu stm Ud
DÓMARAHNEYKSll
Mistök dómara ráða úrslitum leikja
— Oft hefur dómaravandamál
körfuknattleiksmanna verið mik
ið, en nú um helgina keyrði al-
veg um þverbak, þegar mistök
dómara á sfðustu mínútum réðu
úrslitum tveggja leikja um heig-
ina. Þó var hneykslið í leik KR
og Ármanns á sunnudagskvöld
það grófasta sem menn hafa
nokkurn tíma séð, og hefur það
þó oft verið slæmt. Dómararnir
í þessum leik þeir Ingi Gunnars-
son og Kristbjörn Aibertsson,
báðir frá sama félaginu UMFN,
voru svo greinilega hlutdrægir
að furðu sætti, og Ingi kórónaði
svo skrípaleikinn á síðustu mín-
útu leiksins þegar Ármann var
einu stigi yfir, og færðu KR sig-
urinn á silfurbakka með stór-
furðuiegum dómi. Þegar farið er
að minnast á dómarahneyksli,
er ekki hægt að fara fram hjá
því, þegar Einar BoIIason, stjóm-
armaður í KKÍ, fyrrverandi leik-
maður Þórs og núverandi stjóm
andi liðsins utan vailar f leikj-
um þess í Reykjavík, skipar sjálf
an sig sem dómara í leik Þórs og
KFR fyrir norðan, dæmir Þóri
Magnússon, langbezta leikmann
KFR jr leik með fimm villur og
þar af tvær tæknivillur þegar
leikurinn var rétt hálfnaður, og
undraði engan þótt Þór ynni
með 45 stiga mun.
En snúum aftur að leik KR og
Ármanns og lítum á gang leiksins,
KR-ingar byrjuðu leikinn vel og
komust yfir 21:16 en þá ná Ár-
menningar góðum kafla og skora
10 stig gegn engu, 21:26 en KR
minnkaði bilið aftur og tekst að
jafna, og í hálfleik er staðan 27:27.
Ármenningar byrja seinni hálfleikin
af miklum krafti og komast fljót-
lega fimm stig yfir 35:40 og auka
forystuna enn, ná ellefu stiga for-
skoti, 37:48, og langþráður sigur
yfir KR virtist ætla verða að veru-
leika. En þá var eins og Ármann
slakaði eitthvað á, sóknarleikurinn
ekki eins hvass og áður, og leik-
menn urðu að gæta sín betur í
vöminni, þar sem Jón Sigurðsson
og Sig. Ingólfsson vom komnir með
fjórar villur og Birgir Birgis farinn
út af með fimm villur. KR-ingar
smá minnka forskotið og á síðustu
mínútunni, þegar staðan er 58:59
Ármanni f vil, er dæmt uppkast
milli Einars Bollasonar og Jóns
Sigurðssonar, og er boltinn er f
loftinu slær Einar til Jóns, en lætur
sjálfan sig falla á gólfið um leið
og Jón dettur. Dómarinn sem nær
var dæmir strax annað uppkast, en
þinn. Ingi Gunnarsson, dæmir villu
á Jón Sigurðsson sem þar með
varð að yfirgefa völlinn, en Einar
tekur forystu fyrir KR með tveim
vítaskotum. Eftir það skoraöi hvort
liðið sína körfuna hvort og lauk
leiknum því með eins stigs sigri
KR, 62:61.
Stigahæstir í þessum leik voru
hjá KR, Einar 34 stig, Kolbeinn 14,
Kristinn 8 en aðrir minna. Hjá Ár-
manni skoraði Jón Sigurðsson 25
stig Björn 18 og Sigurður 11, en
aðrir minna.
•
í fyrri leik kvöldsins mættust lið
Þórs og UMFN en þau höfðu bæði
leikið einnig á laugardagskvöld.
Leikurinn var mjög jafn framan af
og eftir 10 mfnútur leiðir Þór leik-
inn 12:14. Síðustu 10 mínútur hálf-
leiksins sigla Njarðvíkingar hrað-
byri fram úr og ná 13 stiga forskoti
í hálfleik 34:21. í seinni hálfleik
auka Njarðvíkingar enn forystuna
og eru 18 stig yfir þegar tvær mín-
útur eru eftir af leik, 64:46, en á
tveim síðustu, mínútunum skorar
Þór 9 stig gegn aðeins tveim frá
UMFN og lauk leiknum þvi með
sigri UMFN 66:55 Stigahæstir
Njarðvíkinga voru Barry rheð 28
stig Kjartan og Jón Helgason 12
hvor og Hilbar 8. Fyrir Þór skoraði
Guttorrnur 26 stig, Guðni 11 og
Magnús 9.
- þvþ —
Á laugardagskvöld voru leiknir
| tveir leikir í fyrstu deild Islands-
mótsins í körfuknattleik í íþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi. ÍR sigraði
Þór frá Akureyri mjög auðveldlega
með 74 stigum gegn 52, og- var
næstum um sýningarleik að ræða.
I seinni leik kvöldsins kræktu
Njarðvíkingar sér í bæði stigin i
leik sínum viö Ármenninga, en sá
ieikur var tvísýnn og spennandi til
sfðustu sekúndu og úrslit ekki ráðin
fyrr en nokkrar sekúndur voru til
leiksloka og UMFN sigrafíi með
eins stigs mun, 58:57.
ÍR-ingar byrjuðu leikinn mjög
vel á móti Þór og staðan varð strax
7:2 fyrir ÍR og á næstu mfnútum
bæta þeir stöðuna verulega, skora
næstu 12 stig án svars frá Þór
19:2, og var þessi leikkafli hjá ÍR
einhver albezti varnarleikur sem
sézt hefur lengi. ,Og áður en hálf-
leiknum lýkur bæta ÍR-ingar enn i
stigasafnið og leiða i hálfleik 35:
15. í seinni hálfleik tóku I'R-ingar
lffinu með ró, virtust taka leikinn
sem létta æfingu. notuðu skipti-
mennina óspart og unnu leikinn
sem fyrr segir 74:52. Svo vel gættu
ÍR-ingar Guttorms í fyrri hálfleik
að hann náði aðeins að skora 4 stig
og sýndu þar fram á hvemig hægt
er að taka einn leikmann algjörlega
úr leik.
Stigahæstu leikmenn ÍR voru
Kristinn með 17 stig,; Agnar 16,
Sigurður 10. Birgir 9 og Þorsteinn
8. Fyrir Þór skoraði Guttormur
flest stig, eða 24, Guðni, Pétur,
Magnús og Númi allir 6 stig hver.
•
í seinni leik kvöldsins mættust
lið UMFN og Ármann f hörkuspenn
andi leik, Njarðvíkingar leiddu
leikinn fyrstu sex mínúturnar, en á
næstu fjórum mínútum breyttu Ár-
menningar stöðunni úr 8:4 í 8:16.
UMFN tekst aö minnka bilið á 17.
mínútu í 18:20 en Ármann eykur
forskotið í 19:26.
Njarðvíkingar eiga svo síðasta
orðiö f hálfleiknum skora sex stig
án svars og staðan þvf í hálfleik
25:26 Ármanni f vil. í síðari hálf-
leik skiptust liðin á um að hafa
forystu, og munaðfi aldrei nema ',
örfáum stigum. Þegar hálf mínúta ■
er eftir af leiknum er staðan jöfn, í
56:56, og Ármenningum dæmd tvö !
vftaköst og skorar Jón Sigurðsson !
úr öðru. staðan 56:57 og leiknum .*
alveg að ljúka. Þá kemur að um- '
deildasta kafla leiksins. Njarðvík- ,
ingar hafa boltann, leika undir \
körfu Ármenninga og þar rekur 1
einn ieikmaður úr liði UMFN oln- '
bogann i Ármenning. Dómar- .
inn dæmir umsvifalaust tvö víta- i
skot, vafasamur dómur, en látum |
það eiga sig, heldur leyfir dómar- )
inn öörum leikmanni en þeim sem 1
brotið var á að taka vitaskotin, en 1
slfkt mælir gegn öllum reglum í |
körfubolta. Bandaríkjamaðurinn >
Barry tekur vítin og skorar úr |
báðum og hirti með bæði stigin
handa liði sínu.
Stigahæstir í þessum lei-k voru
hjá UMFN, Barry með 17 stig, Jón
10 Guðni 9, Kjartan og Hilmar 8
hvor. Hjá Ármanni var Jón Sigurðs-
son stigahæstur með 19 stig, HaM-
grímur 16, Bjöm 8, Sigurður og
Jón Bj. 6 hvor.
- m-