Vísir - 17.02.1970, Page 8

Vísir - 17.02.1970, Page 8
8 V í S'I R . Þriðjudagur 17. febrúar 1970. VÍSIR CJtgefandi: KeyKjaprenc n— Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjóltsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjón: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aðalstrætl 8. Simar 15610, 11660 og 15099 Afgreiðsla: AOalstræti 8. Simi 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Askriftargjald kr. 165.00 ð mánuöi innanlands [ lausasölu kr. 10.00 eintakiO Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Stemma Jbau ána oð ósi? JJnga fólkið vill stemma ána að ósi. Hópur þess hefur nú tekið saman höndum í hreyfingu til varnar gegn útbreiðslu hass og marijuana hér á landi. Er það mjög ósammála yfirvöldum um útbreiðslu þessara lyfja hér. Það telur, að notkun þeirra sé orðin töluverð og fari ört vaxandi. Löggæzlan hefur til þessa viljað gera lítið úr neyzlu þessara lyfja hér á landi. Sumpart kann það að vera misráðin tilraun til að vekja sem minnstan æsing um málið, en fyrst og fremst er það vegna þess, að slík neyzla verður ekki vandamál yfirvalda, fyrr en hún er komin á nokkuð hátt stig. Unga fólkið í skólunum og á skemmtistöðunum hefur betri aðstöðu til að fylgjast með því, hvernig þessi neyzla skýtur rótum. Enginn vafi er á því, að þessi lyf eru mjög hættuleg, þótt tekið sé tillit til þeirra kenninga lækna, að þau séu ekki skaðsamari en áfengi. Það segir ekki nema hluta sögunnar. Áfengisbölið hefur fylgt mannkyninu öldum saman og verður seint viðráðanlegt, en óþarfi er fyrir okkur að bæta við nýju böli af sama tagi. Alvarlegra er þó, að flest bendir til þess, að mikið af þessu hassi, sem er í umferð á Vesturlöndum, sé töluvert blandað ópíumi, sem er vanamyndandi lyf. Glæpahringirnir, sem dreifa eiturlyfjum á Vestur- löndum, blanda opíumi í hassið, bæði vegna þess að það er ódýrara og einnig vegna þess, að það tryggir framtíðarviðskiptin. Fyrst er fórnardýrunum gefið opíumblandað hassið, síðan selt það, og svo fer verðið hækkandi eftir því sem löngun fórnardýrsins verður meiri. Hassneytendur hér á landi eru yfirleitt ungt fólk, sem gerir sér litla grein fyrir alvöru málsins. Jafn- aldrar þess segja, að það sé yfirleitt á flótta frá umjiverfi sínu, samfélaginu. Unga fólkið, sem varar við þessari neyzlu, segir, að hass-neytendur verði kærulausir og hætti gjarna námi eða starfi. Þeir segja einnig, að þeir verði innilokaðir og leiðinlegir í umgengni. Þeir verði gagnslitlir þjóðfélagsborgarar. Það er áreiðanlega mikið til í þessu, enda er það í samræmi við erlenda reynslu. Framtak unga fólksins til varnar gegn innrás hass- ins er meira en lofsvert. Það er einmitt nú á fyrsta stigi innrásarinnar, sem þarf að stöðva hana, áður en hún fer að eyðileggja ungmenni í stórum stíl. Mesta vandamálið er, að margir telja neyzlu slíkra lyfja vera dæmi um, að viðkomandi sé „töff“ og fær í flestan sjó. Og það er einmitt á þessu sviði, sem viðnámið getur verið árangursríkast. Það er hægt að sýna hinum veiklunduðu hass-neytendum fram á, að það er engin karlmennska, heldur flótti frá lífinu, sem getur endað með ósköpum. Og það er miklu betra, að áhugasamt ungt fólk standi í víglínunni, því að.hinir veiklunduðu taka miklu síður mark á fullorðnu fólki. Þið, unga fólk, sem hafið komið hinni nýju hreyfingu af stað: Þið eruð á réttri leið. h iiiiiiiiini M)®M Umsjón: Haukur Helgason Spákonan Jeane Dixon náði heimsfrægð, þegar hún árið 1963 var sögð hafa reynt að hitta Kennedy forseta að máli tU þess að vara hann við ferðinni til Dallas, þar sem hann svo var myrt- ur. Sagt var, að frúin Arabar og Israelsmenn gerðu sprengjuárásir, þegar fríður átti að verða samkvæmt spádómum. Villugjarnir spá- dómar Jeane Dixon hefði í sýn séð, að forset inn yrði skotinn til bana í bílalestinni í Dallas. Frægð frúarinnar varð til þess, að innan skamms tók hún að semja stjörnuspádóma fyrir fjö^da blaða. Á hverju ári fremur hún mik'nn spádóm um gang heimsmálanna og afdrif einstakra forystu- manna. Athugun þess- ara spádóma hefur leitt í Ijós, að því fer víðs fjarri að þeir rætist að jafnaði. Jackie giftist Hún skrifaði t. d. í október byrjun 1968, að frú Jacqueline Kennedy mundi aldrei aftur ganga í hjónaband. Seinna í sama mánuði gekk Jackie í hiö heilaga meö Aristotle Onassis í janúar í fyrra spáði hún Edward M. Kennedy „stórkost- Frú Dlxon spáði þvi, að Jacqueline Kennedy mundi aldrei giftast aftur, en þá varð Jackie allt í einu frú Onassis. legri framtíö". Þetta var fimm mánuðum áður en hiö afdrifa- ríka slys varö viö Chappaquidd- ick, er Mary Jo Kopechne lét lif sitt. Lækning á krabbameini Ekkert varð úr hinni óbrigö- ulu lækningu viö krabbameini, sem frúin spáði áriö 1967 eöa úr friönum í Miö-Austurlöndum, Jeane Dixon. sem hún sagðist þá sjá fyrir, eöa hneykslismáli, sem Nixon átti aö lenda í áriö 1968. Hún spáöi vaxandi átökum hvítra og svartra í borgum Bandaríkjanna í fvrra, en árið 1969 reyndist eitthvert hið friö- sælasta á þeim vettvangi um langt skeiö, sem vissulega kom flestum á óvart. Engin stórtíöindi uröu í sam- bandi við réttarhöldin yfir Jam- es Earl -Ray, morðingja Martin Luther Kings, en því hafði frú- in spáö. Hið markverðasta, sem segja má, aöyfram hafi komið af spá- dómum1' frúarinnar, er afsögn de Gaulle Jeane Dixon skjátl- aðist þó lítið eitt f því efni, þar sem hún taldi að de Gaulle múndi sítja út áriö 1969. Ekki stjömuspekingur Frú Dixon er í rauninni ekki stjörnuspekingur. Hún litur ekki í kristalskúlur, lófa eöa spil. Spádómar hennar byggjast á „sýnum“, þar sem hún segist sjá ókomna atburði. Sagt er aö engan meðalmann þurfi að undra, þótt helmingur af „spádómum" hans rættist. Þeir, sem fylgjast með heims- viðburöum, gera daglega ein- hverja slíka spádóma um breyt- ingar, svo sem úrslit kosninga, styrjaldir og svo framvegis. Þessir „spádómar" eru vissulega jafnoft réttir og rangir, svona upp og ofan. Spádómar ársins 1970 Nú hefur Jeane Dixon gert spádóma fyrir áriö 1970. Þeirra á meöal eru þessir: Allsherjarstyrjöld veröur í Mið-Austurlöndum, en frúin telur ekki, að stórveldin muni beinlinis taka þátt í henni. Fidel Castro mun vikiö úr sæti á árinu. Fyrir tnitt áriö „munu ein- hverjar ovæntar fréttir aö utan, er varöa morðiö á John Kenne- dy, verða heyrum kunnar“, og jafnvel enn furöulegri upplýsing ar munu birtar í ágúst. Þaö mun ganga hægt að láta Vietnama taka viö af Banda- rikjamönnum, og í árslok verða enn 300 þúsund bandarískir her- menn i Víetnam. Reynt verður aó myröa ein- hvern háttsettan ráögjafa Nix- ons forseta á árinu, og einhver i öryggisþjónustu hans mun reynast svikari Shriver mun veröa rikisstjóri. Shriver er giftur einni Kennedy systurinm, og orörómur er uppi um framboð hans í kosningun- um næsta haust. Aö öllu samanlögðu eru þess- ir spádómar frúarinnar fyrir ar- ið 1970, fljótt á litiö, ekki ó- rökréttir, en nú er eftir að sjá, hvort henni hefur farið fram í spávísi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.