Vísir - 10.03.1970, Blaðsíða 5

Vísir - 10.03.1970, Blaðsíða 5
V'ÍSIR . Þriðjudagur 1«. marz 1»70. 5 Antoníó, bróðir landstjórans í Messaníu — ieikinn af Bimi Keflavík „hefndi" • íslandsmeistarar Keflavikur i knattspymu hefndu ( fyrradag á heimavelli sínum ófaranna gegn Kópavogsliöinu í Kópavogi fýrir tveim vikum, unnu Kópavog með 2:1. B-lið félaganna léku einnig. Þar urðu úrslitin 4:4. Frá giftingarathöfninni. Þriggja manna hljómsveit úr skólan um ieikur „Brúöarmarsinn“ undir bak við tjöldin, en það var eina lagið, sem ekki var samió sérstaklega fyrir leikritið — hin voru öll í pop-stíl og samin af skólahljómsveitinni. TVEIM ÞROTTURUM VAR VÍSAÐ AF VELLI Áwnenningar fengu sín fyrstu stig í Vetrarmótinu í knatt- spyma í fyrradag í forareðjunni á Melavellinum, eftir baráttu við Þrótt. Jafntefli varð, 1:1. Þrótt- ur skoraði sitt mark í fyrri hálf- leik en Ármenningar jöfnuðu snemma í seinni hálfleik, — og sannarlega lék lánið ekki við þá. Hefðu þeir með réttu átt að skora a. m. k. eitt mark til við- bótar og vinna þennan leik. Áaemenningar voru mun frísk- at* en Þróttararnir og hljóta að vekja athygli manna á sér. Er varla vafi á að þarna á Ármann lið, sem má vænta talsvert mik- ils af í framtíðinni. Nokkur harka var i leiknum og tveim leikmönnum Þróttar vísað af velli undir leikslok. KR-ingar unnu Valsmenn í fyrrad. í sama móti með 2-0, en Valsmenn áttu þó meira en svo í leiknum að þeir ættu slíkan ósigur skilið. Melavöllurinn var í slíku á- standi eftir undangenginn salt- burð á völlinn og rigninguna, sem síðan kom í gærmorgun, að menn sukku í ökkla í leðj- unni. Geta menn af því feng- ið nokkra visbendingu um hvers konar knattspyrnu þarna var hægt að sýna. Hins vegar er eng inn vafi á að leikir viö þessi skil yrði eru ákjósanleg úthaldsæf- ing og vonandi koma þessir leik- ir til með að verða sá hvati, sem til var ætlazt. Ys og þys út af engu í Tónabæ Landsliðið vann Keflavík 3:1 • Landsliðið vann Keflavik 3:1 í 1 fyrsta æfingale'iknum um skeið, en *þar með er hafinn undirbúningur- , inn fyrir landsleiki sumarsins, sem verða ekki færri en fjórir að sögn 1 Hafsteins Guðmundssonar, ein- valds landsliðsins, sem stjórnar æf- ingum þess og leikjum sem fyrr. Albert Guðmundsson hefur sam- ið við England, sem leikur hér 10. maí, Frakkland, sem leikur 22. júní, Dani, sem hér ieika 7. júlí og loks ■ Norðmenn 22. júlí, allt leikir í , Laugardal. Nóg verkefni eru fram- undan. I leiknum í Keflavik náðist fram ótriílega góð knattspyrna, enda skilyrði ákjösanleg, veður gott og vallarskilyrði eins og þau geta bezt orðið um þetta leyti árs. Landsliðið skoraði skömmu eftir upphafsspyrnu, Eyleifur gaf fyrir markið til Guðmundar Þórðarson- "ar, sem skorrði. Undir lok hálfleiks skoraði Matthías Hallgrímsson og í byrjun fyrri hálfleiks Birgir Ein- arsson, sem kom inn sem vara- maöur, en hann leikur nú með Keflavíkurliðinu, en áður með Val. Sigurður Albertsson skoraði eina mark Keflavíkur siðar I hálfleikn- Um næstu helgi mun landslióið leika við úrval Hafnarfjarðar og Kópavogs, en það lið hefur staðið sig vel við ýmis tækifæri. Svíi setur heimsmet í stungarstökki Kjeli Isaksson setti heims-1 I met í stangarstökki innanhúss í fyrrad. í Gautaborg. Hann stökk j 1 5.34 metra á sænska meistara- I mótinu innanhúss, en Bob Sea- gren hafði stokkið hæst áður, I 5.33 metra, en það met var sett | í fyrra. Met innanhúss eru ekki i viöurkennd. Isaksson er 22 ára og setti I Evrópumet innanhúss í síðustu | 1 viku. stökk þá 5.28 metra. Má I búast við miklu af þessum unga Svia, þegar farið verður að ! keppa utanhúss. Karlssym. Jjessa dagana standa yfir i Tóna- bæ sýningár á gamanleikriti Sliakespeares „Ys og þvs út af engu“. Það er leiklistardeild Skólafé- lags Kennaraskcl; rs, sem sett hef- ur leikritið á svið og er sýningin tileinkuð „baráttu fyrir leiklistar- kennslu í skólum" Leiklistardeildin hóf starfsemi sína í fyrravetur og var þá fært upp leikritið „Spanskflugan" eftir Arnold og Each, og Steindór Hjör- leifsson fenginn til leikstjómar. Að þessu sinni er það aftur á móti ~ einn nemenda Kennaraskóians, Einar Þorbergsson, sem annast þá hlið mála, og er ekki hægt að segja annað en hann hafi leyst það vandasama hlutverk prýðisvel af hendi. Einar þessi lagði stund á list- dansnám frá 1956—1966. Þá hætti hann og fór að leggja stund á leik listarnám, en varð að hætta eftir eitt ár vegna anna viö Kennaraskól ann. Einar hefur þó gefið sér tíma til að koma fram í ýmsum sýning- um Þjóðleikhússins, þannig að hann er ekki með, öllu nýgræðing- ur í leiklistinni,,þó að „Ys og þys“ sé fyrsta leikritið, sem hann leik- stýrir. Aöspurður kvað Einar þetta leik- rit hafa orðið fyrir valinu vegna þess, hve lítið er af öldungum í þvi, en aftur á móti mikið af ungu fólki, en eins og gefur að skilja fellur það þessum leikflokki Kennaraskólans ákaflega vel, því að það er alltaf erfitt fyrir unga leikara að taka upp fyrir sig. Það sem vakti undrun blm. er hann kom á æfingu'upp í Tónabæ á dögunum, var að leiksviðið teyg- ir sig yfir allt dansgólfið og áhorf endasætunum raðað í kring. En einn leikaranna (stórnefjaður I meira lagi) upplýsti hann þá fljót- lega um að þó að þetta kynni að íærslu væri hér í engu breytt frá grunnhugmynd Shakespeares, sem hafi ætlazt til að við sýningar á þessu Ieikriti næði leiksviðið út í sal og væri tilgangurinn að sjálf- sögðu sá, að draga áhorfendurna meira inn í hringiðu leiksins. Þá eiga leikarar sem mest að leika án sérstakra leikbúninga, tignasta aðalsfólkið klæðist raunar skraut- legum fatnaði, en flestar stúfkn- anna leika í þeim fötum, sem þær hefðu vel getað verið í á árshátíð kennaraskólanema, (en sú háftið var haidin í „æfingaskóíanum" sl. Leikstjórinn, Einar Þorbergsson. þriðjudag, og dugði þar ekkert minna en að fá frá Akureyri hljóm sveit Ingimars Eydd til að leika fyrir dansi). 1 lok sýningarinnar á miðviku- daginn var færðu leikararnir í „Ys og þys“ þýöanda leikritsms Helga Hálfdanarsyni blómvönd og hróp- uðu þrefalt húrra fyrir honum. Þar sem Helgi er meö afbrigðumhóg vær maður, fór þessi stutta, en há- tíðlega athöfn fram bak við tjöldin. þ. joð m.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.