Vísir - 10.03.1970, Blaðsíða 16

Vísir - 10.03.1970, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 10. marz 1970. Rann til og féll af bryggju niður á þilfar $ Slys varð um borð í saltflutn- ingasUipinu, Réd Gate London, sem losaði salt í Vestmannaeyjum : gær. Fimmtugur kranastjórnandi •ann til á bryggjukanti og féll nið- ur á þilfar skipsins, rétt eftir að vinna hafði hafizt að nýju eftir há- degishlé í gærdag. Lágt var í sjó og var fallið nær þrír metrar. Mað- urinn hiaut áverka á höfði og var fluttur á sjúkrahúsið meðvitundar- Iftill. Þýzkt skipafélag falast eftir íslenzkum sjómönnum Þýzka skipafélagið Nord í Hamborg, sem hefur 14 skip á sínum vegum og er aðili að skipasam- steypu, sem hefur 150 skip, hefur skrifað hing- að og falazt eftir vinnu- krafti. Virðist þetta fé- lag einkum hafa nemend ur í farmannadeild Stýri mannaskólans í huga, en 35 eiga að Ijúka burtfar- arprófi þaðan í vor. Einn ig sækist félagið eftir vél stjórum. Ingólfur Ingólfsson hjá Vél- stjórafélagi íslands sagði í við- tali við blaðið, að frekar væri gert ráð fyrir vaxandi straumi manna í þessi störf. í nágranna löndunum væri skortur á vél- stjórum. Þá sagði hann, að þetta væri ekki í fyrsta skiptiö, sem þetta þýzka skipafélag skrifaði, og væri hægt að ráða þangað alla þá vélstjóra, sem yildu vera á sjó. — En okkur vantar vél- stjóra á sjó og höfum ekki stuðlað að því, að menn færu út til starfa. Það er tiltölulega fámennur hópur vélstjóra, sem hefur far- ið út til starfa og þeir fara yfir- leitt einn og einn og t.d. til sex mánaða í einu og koma svo aftur heim. Hins vegar hafa margir stýrimenn farið til starfa erlendis t. d. fóru 10 nemendur úr Stýrimannaskólanum í fyrra, flestir þeirra voru búnir að ljúka prófi en 4—5 voru á milli bekkja. Þeir fóru til Danmerk- ur í fyrrasumar og eiga áfram kost á störfum hjá þeim skipa- félögum. Það eru frekar ungir menn og ógiftir, sem fara út 1 þetta. Á tímabili voru milli 40 —50 stýrimenn viö störf erlend- is. Guðlaugur Gíslason hjá Stýri- mannafélagi íslands sagði, að það hefði.færzt mjög £ vöxt, að stýrimenn færu til starfa er- lendis. Margir þeirra væru starf andi hjá nágrannaþjóðunum, í Danmörku, Sviþjóð og Noregi, en einnig t. d. á ísraelskum skipum. — Þeir hafa komið hingað nokkrir að spyrja um framtíðar atvinnu. Stýrirnannaskólinn útskrifar núna í vor yfir 30 menn úr farmannadeild og þeir fá ekki stööu í bráð á íslenzkum skip- um. Þá sagði Guðlaugur, að Stýii- mannafélagið væri að kynna sér kjör og annað hjá þessu þýzka skipafélagi og sé málið ennþá á viðræöustigi. — SB— „Erkifjendur44 við skákborðið — góð/r vinir jbess utan — Friðrik teflir bið- skákina v/ð Larsen kl. I i dag \ „Ég neita því ekki, að þaö er dálítill „skrekkur“ í mér, en ég vona þó að ég haldi jafnteflinu" — sagði Friörik Ólafsson, er blaðið náði sambandi við hann í morgun, en kl. 1 í dag eftir íslenzkum tíma, teflir hann bið- skákina við Larsen. „Skákin er ekki eins einföld og hún lítur út fyrir að vera, og ómögulegt að segja hvað við verðum lengi að ljúka við hana". „Þið hafið teflt oft áður, þiö Larsen?“ „Já, það má segja að við sé- um erkiféndur við skákborðlð, en við erum ágætir vinir þess utan, enda höfum við teflt slð- an við vorum 15 ára gamlir." Og hvernig leggst mótið í þig í neild?“ „Bara vel, ég vona að ég haldi mínu striki, og ég held að ég hafi góða möguleika á efstu sætunum," sagði Friðrik að lok- um. Biðskák þeirra Friðriks og Larsens er eina skákin sem er ólokið úr fyrri umferð, en Frið- rik er nú í öðru sæti á eftir Larsen. — ÞS— Annar í prófkjöri, fjórði á listanum ,Hef ekki áhuga á samstarfi við bæjarstjórnar■ meirihlutann og þess vegna er mér sparkað niður", segir Pálmi Steingrimsson „Þetta er samkvæmt ein- hverju talnakerfi, sem hvorki ég né aðrir hafa kynnzt,“ sagði Pálmi Steingrímsson, einn frambjóðenda félags frjálslyndra og vinstrimanna (hannibalista) í Kópavogi í morgun, þegar Vísir ræddi við hann. Prófkjörið leiddi í ljós að Hulda Jakobsdóttir, fyrrum bæj arstjóri I Kópavogi, varð efst með 43 atkvæði, en Pálmi fékk 36 atkvæði í 1. sætið. Hins veg- ar féllu atkvæöi jafnt í 2. sæti milli Pálma og Sigurjóns Hil- arlussonar. Samkvæmt þessu töldu flestir að Pálmi lenti 1 2. sæti á listanum, en svo varð ekki. Hann hafnaði I 4. sæti á eftir Huldu, Sigurjóni og Guðna Jónssyni. „Ég veit ástæðuna fyrir þessu,“ sagði Pálmi, sem hefur nú neitað aö vera með á lista félagsins, „Ég hef lýst því yfir, að ég vilji ekki samstarf við nú- verandi bæjarstjórnarmeirihluta — og það nægði." Pálmi kvaöst hafa ástæöu til að ætla að fleiri en hann mundu draga nöfn sín til baka af list- anum vegha þessa máls. —JBP Loðnuvinnslan setti sinn svip á Vestmannaeyjar í gærdag. Loðnunni ekið út í hraun — allar Jbrær fullar i Vestmannaeyjum Loðnuveiöin hefur verið ágæt sfð ustu daga og frá því klukkan 8 í gærmorgun og til kl. 8 í morgun komu 25 skip með 5920 lestir á land, en loðnan veiddist aðallega við Ingólfshöfða og á Meðallands- bug samkvæmt upplýsingum Hjálmars Vilhjálmssonar, fiski- fræðings í morgun. Stóð loðnan fremur djúpt fram eftir degi og var megnið af henni veitt í gærkvöldi. Norðaustan kaldi var við Ingólfs- höföa en betra veður á vestursvæð inu. Þá höfðu um 30 bátar farið i land. með fullfermi i gær, og eru flestir komnir á miðin aftur. Megn ið af loðnunni fór á land í Vest- mannaeyjum og eru þar allar þrær fullar og hefur orðið að aka loön- unnj út £ hcaun. Leitarskipið Árni Friðriksson var í gær og nótt á Lónsbug enda hef- ur ekki orðið vart við teljandi lóðn ingar, en veður er óhagstætt. norð austan stinningskaldi. Mun skipið næst kanna svæöið saður af Hva) bak, ef veður teyfir. —ÞS— tekinn mei af fötum Þjófurinn var fuilt fangið — þrennar buxur, jakka o. fl. — en þrætti samt harðlega „Ég hata allar löggur! Þeir eru fantar og nazistar og ég skal sprengja í loft upp alla löggubila!“ sagði 15 ára Innbrotsþjófur, sem lögregluþjónn, óeinkennisklæddur, hafði stöðvað á gangi inni við Borg artún og tekið að yfirheyra um fatapinkla, scm sá ungi maður hélt á. Lögreglumaðurinn, sem var í fríi frá störfum og gegndi sinum eigin erindum, hafði á ferð sinni veitt eftirtekt pilti, sem honum sýndist í meira lagi grunsamlegur. Pilturinn hélt á fatnaði f fanginu og var auk þess með fleira innan klæða á sér, en að auki í tveimur jökkum. Þetta var rétt fyrir kl. 1 eftir miðnætti í nótt, Stöðvaöi lögregluþjónninn piltinn og tók að spyrja hann um ferðir hans og fataflutninga, en hinn brást illa við og viðhafði hið versta orö- bragð, en neitaði algerlega að gera grein fyrir sjálfum sér eða fötun um og harðneitaði að fara niðui á lögreglustöð til yfirheyrslu. — Hann varð þó að hlýða því. Við nánari athugun kom £ ljós að pilturinn hafði birgt sig upp ein hvers staðar með 2 leðurbelti, skyrtuhnappa, leðurveski, þrennai buxur og gulan flauelsjakka, en al verðmiðum, sem enn voru á flíkun- um og voru merktir verzluninnl Faco, mátti sjá að þetta var a/ verömæti rúmlega 6000 kr. Enda viöurkenndi strákur undi lokin, aö þessu hefði hann stolið ú fataverzluninni Faco. — GP-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.