Vísir - 10.03.1970, Side 6
6
V í SIR . Þriðjudagur 10. marz 1970.
Q.»Mo««wj»?»>»x««^wgw»iTOgiga!«ar.gw;;aeggaaag6K«s;sa!
VEUUM ISUHZKt(U)laaiIKAH IDHAD
J.B.PÉTURSSON SF.
ÆGISGOTU 4 - 7 gg 13125,.13126
AUGHNég hviii
með gleraugumfiú
Austurstræti 20 . Sími 14566
TILKYNNING
Afgreiðsla sparisjóðsins verður eftirleiðis
lokuð á laugardögum. Jafnframt lengist af-
greiðslutíminn á föstudögum, en opið verð-
ur frá kl. 12.30—18.00, föstudaga frá kl. 12.30
—19.00.
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA.
Veitingastofa
í íbúðarhverfi er til sölu af sérstökum ástæð-
um. Semja ber við undirritaðan
Ingi R. Helgason, hrl.
Laugavegi 31. Sími 19185.
Bezt að auglýsa í Vísi
Líður að briðja tungl-
leiðangri Bandaríkiamanna
Lendingarstaður tunglferjunnar við Fra Mauro gíginn.
gnn stendur tunglferð fyrir
dyrum, og að þessu sinni
verður það Appoló 13., sem
leggur upp í hina löngu ferð.
Tunglfaramir að þessu sinni
verða þeir James Lowell, Thom-
as Mattingly og Fred Haise. Aö
undanförnu hafa tunglferjumar
lent á sléttu svæði, en f þetta
skipti verður brugðið af þeirri
venju og lent f fjalllendi Fra
Mauro gígnum svokallaöa, en
hann er nefndur eftir einum af
lærisveinum heilags Benediktus-
ar, er uppi var á sjöttu öld. Ligg-
ur gígur þessi spölkorn f suð-
vestur frá miðdepli mánakringl-
uimar frá jörðu að sjá, en eilítið
austar en þar sem tunglferjan
frá Appolo 12. lenti, eða um 170
km. Sjálfur er gígurinn um 49
lon að þvermáli og mjög áber-
andi dráttur á ásjónu mánans.
Tunglsérfræðingamir á jörðu
niðri reikna með að gígbarmarn-
ir hafi myndazt fyrir bráðinn
hraunstraum úr iðmm mánans,
og megi þvf komast að mörgu
merkilegu varðandi kjarna hans
með því að ná sýnishomum þaö-
an. Ef þeir hafa þar rétt fyrir
sér, þá myndi þar um að ræða
sýnishom af bergi, sem runnið
hefur fyrir milljónum ára.
Leiðangurinn með Appolo 13.
verður betur búinn að tækjum
til sýnishomasöfnunar en þeir
tveir, sem áður hafa verið á
tunglinu. Meðal annars hafa þeir
meðferðis bomnartæki, sem eiga
að gera þeim kleift að ná berg-
sýnishomum nokkuð undir ryk-
laginu, auk tækja til að safna
þeim af yfirborðinu, eins og áð-
ur hefur verið gert. Þá hafa þeir
og meðferðis tæki. sem þeir eiga
að koma fyrir í borholu, en það
er sjálfvirkur hitamælir. sem á
að senda til jarðar allar upplýs-
ingar um þær hitabreytingar
sem þar verða og einkum hita-
mismun tungldags og tunglnæt-
ur. Segulmælingatæki, sem flutt
vom þangað áður hafa sýnt að
segulsvið mánans er mun minna
en jarðarinnar, en þó sterkara
heldur en vfsindamenn höfðu
gert ráð fyrir. í tunglleiðöngrum
á næsta ári er gert ráð fyrir að
flytja þangað enn nákvæmari
segulmælingatæki og koma
þeim fyrir á ýmsum stöðum á
tunglinu f því skyni að geta hnit-
miðað segulskaut þess. En
meginerindi 13. Appoló-leiöang-
ursins verður sem sagt að safna
sýnishomum úr börmum Fra.
Mauro gígsins, sem tunglvís-
indamenn gera sér vonir um að
veiti hinar merkilegustu upp-
lýsingar um myndun tunglsins
og forsögu.
Þá verður og enn fluttur jarð-
skjálftamælir til tunglsins, enn
fullkomnari en sá, sem áhöfnin
á Appoló 12. skildi þar eftir.
Þær mælingar, sem hann hefur
sent til jarðar, þykja hinar
merkilegustu, og þó einkum
þær, að hann sendi frá sér merki
um smádvínandi titring í fullan
hálftima eftir lendingu tungl-
ferjunnar eða f lfkingu við berg-
mál, sem fjarar smám saman út.
Telja vfsindamennlmir það
benda til þess, að undir ryklag-
Fred Haise.
inu taki viö djúpt lag af lausa-
grjóti eða svo sprungnu bergi,
að það nötri lengi við minnsta
þrýsting — þeir telja til dæmis
ekki ólíklegt aö titringurinn af
lendingu tunglferjunnar hafi náð
niöur á allt að 9 km dýpi, en
tunglferjan vó um hálfa þriöju
smálest og skall á tunglinu meö
miklum hraða.
Alan Bean og Conrad, sem
síöast voru á tunglinu, telja að
menn þreytist þar síöur af lík-
amlegu erfiðj en á jörðu niðri
vegna minna aödráttarafls.
Fundu þeir félagar þar hvorki
til óþægilegs hita eða þreytu, á
meðan þeir voru þar að starfi
og hjartslátturinn var heldur
lægri en á jörðu niðri, eöa 135
slög á mínútu móti 150 — 60
slögum, sem gera hefðj mátt ráð
fyrir af sams konar áreynslu á
jörðunni, Þrátt fyrir þaö geta
tunglfararnir ekki dvalizt úti
þar nema sex klukkustundir í
einni lotu, nema þá aö búnaöi
þeirra verði breytt því að eins
og er hafa þeir ekki súrefni meö
sér til lengri tíma.
Að undanfömu hafa vísinda-
menn unnið af kappi aðrannsókn
á þeim sýnishornum sem þegar
hafa borizt þeim f hendur frá
tunglinu. Telja þeir, að þegar
hafi afsannazt með öllu sú kenn-
ing að tunglið hafj brotnað úr
jöröunni. Hitt sé öllu líklegra,
að það sé komiö einhvers staöar
utan úr geimnum, og hafi stöðv-
azt af aðdráttarafli jarðar og
fylgt henni eftir það. Ekki sé
heldur fyrir aö synja, að það hafi
myndazt um svipað leyti og jörð
in. Sum sýnishornin, sem þeir á
Appolo 11 tóku úr Hafi kyrrð-
arinnar hafa sýnt sig aö vera' að
minnsta kosti 2,500 milljón ára
gömul, í rauninni telja vlsinda-
mennirnir þaö merkilegast, sem
þeir fundu ekki í þessu sýnis-
hornum ... að þau höfðu hvorki
inni að halda raka né nein lffræn
efni.
Eins og áöur er getið, hefur
bandaríska geimvísindastofnun-
in ákveðið að lengja að mun bil-
ið á milli tunglleiðangranna,
meöal annars samkvæmt tilmæl-
um tunglvísindamanna, sem
telja sig þurfa aö fá lengri tíma
til rannsókna á þeim sýnisho»7i-
um sem þaðan berast og athug-
ana á ýmsum upnl-tfsingum leið-
angursmanna og mælitækja, sem
þeir hafa meðferðis.
i
í
1
J
(
(
(