Vísir - 10.03.1970, Síða 8
8
V 1SIR . Þriðjudafgur 10. marz 1970.
VISIR
Jtgefandi: Keyajaprent u.».
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjóltsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Simar 15610, 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Simi 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 linur)
Askrifrargjald kr. 165.00 á mánuði innanlands
t lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Við h'ófum gott af nokkrum mánuðum af óeirðum
Marklausar tölur
j\æsta lítiö er vitaö um raunverulegt atvinnuleysi
hér á landi. Annars vegar eru nú skráðir rúmlega
2200 atvinnulausir á landinu og hins vegar er á sama
tíma ógerlegt að fá menn til ákveðinna starfa. Annars
vegar sýna tölurnar um atvinnuleysið, að það sé um
3%, en hins vegar mætti segja með nokkrum rétti,
að umframeftirspurn eftir vinnuafli sé að minnsta
kosti 3%. Atvinnuleysisskráningin segir lítið um raun-
verulegt atvinnuleysi.
Á Raufarhöfn eru 64 skráðir atvinnulausir. Samt
hefur verið mikið stímabrak við að manna Jörund
II, sem keyptur var þangað í atvinnubótaskyni. Á
Siglufirði eru 172 skráðir atvinnulausir. Samt hefur
ekki tekizt að fá nægan mannskap á togarann Haf-
liða. Á Skagaströnd eru 86 skráðir atvinnulausir.
Samt hefur gengið illa, vegna skorts á vinnuafli, að
gera út Arnar, sem þangað var keyptur í atvinnubóta-
skyni. Hve mikið mark vilja menn þá taka á þessum
tölum um skráð atvinnuleysi?
Skráð atvinnuleysi í Reykjavík er nú aftur komið
niður í 500 manns. S'amkvæmt ýtarlegri rannsókn
borgarhagfræðings í fyrra er, mjög erfitt að koma
þessari tölu neðar, jafnvel þótt fullur kraftur sé á at-
vinnulífinu. Eðli skráningarinnar er á þann veg. Þar
eru öryrkjar, sjúklingar og eftirlaunamenn. Þar eru
trillukarlar og vörubílstjórar í lausavinnu. Þar eru
eiginkonur manna, sem hafa atvinnu sjálfir. Þetta
fólk fyllir dálka skráningarlistanna.
Þar við bætist sá hópur manna, sem ekki fær vinnu
í sinni sérgrein vegna þjóðfélagslegra breytinga og
vegna persónulegra vandamála þeirra sjálfra. Þess-
um mönnum á ríkisvaldið að reyna að koma til hjálp-
ar með því að kosta endurhæfingu þeirra, svo að þeir
geti orðið fullfærir við önnur störf. Þjóðfélagið er
ætíð svo miklum breytingum háð, að samdráttur get-
ur verið á afmörkuðum sviðum, þótt atvinnuaukning
sé á flestum öðrum sviðum. Þetta er hið raunveru-
lega atvinnuleysisvandamál á íslandi.
Öryrkjar, sjúklingar og eftirlaunamenn eiga ekki
að vera á atvinnuleysisskrá, heldur á tryggingakerfið
að sjá fyrir þörfum þeirra. Þeir menn, sem eru sjálfs
sín herrar í vinnu, eiga ekki að vera á atvinnuleysis-
skrá. Eiginkonur manna, sem hafa vinnu, eiga ekki
að vera á skrá.
Þessi mál þarf að endurskoða í heild sinni. Trygg-
ingakerfið á að sjá fyrir sínu fólki og ríkisvaldið á
að hjálpa til að endurhæfa þá, sem vilja vinna, en fá
ekki vinnu í sinni sérgrein. Um leið þarf að endur-
skoða skráningu atvinnuleysis og fella þá út, sem þar
eiga ekki að vera. Ennfremur þarf skipulag skráning-
arinnar og úthlutun bóta að vera í miklu strangari
skorðum en nú er, svo að komið sé í veg fyrir mis-
notkun. Ekki er líklegt, að kostnaður við allt þetta
yrði meiri en sem næmi sparnaði í atvinnuleysisbót-
um. Og þá fengjust um atvinnuleysið tölur, sem mark
væri takandi á.
Kínverska
gátan að
leysast?
Mao formaður á erfitt með
að fá upplýsingar frá undir-
mönnum sínum og hefur
sætt harðri andspyrnu topp-
manna í flokknum. Hann
hefur t. d. kvartað yfir því,
að framkvæmdastjðri flokks-
ins Teng Hsiao-ping, hafi
ekki leitað ráða hjá sér i sjö
heil ár.
Valdaaðstaða Maos formanns
byggist aðailega á því, að
hann kann að meðhöndla
flokksþing og vera alls ráð-
andi á þeim. Þar beitir hann
skæruhernaðarlist sinni.
Mao formaður telur, að deil-
ur Kína og Sovétríkjanna
hafi byrjað þegar á árinu
1945, þegar Stalin reyndi að
hindra kínverska kommún-
ista í að haida afram styrjöld
sinni gegn þjóðernissinnum
meðhöndlað þessi gögn. Niður-
staða þeirra er sú, að gögnin
varpi alveg nýju ljósi á Kína og
atburði þar. Nú fyrst sé stigið
verulegt skref í átt til skilnings
á kfnverskum aðstæðum. Einn
þessara manna er hinn þekkti
prófessor við Columbia, Michael
Oksenberg.
Gögnin sýna m. a., að Mao
er á móti fjölmennu starfsliði í
kringum sig. Hann telur þaö
munu leiða til skriffinnsku og
úrkynjunar byltingarhugsjónar-
innar. Hann kvartar einnig yfir
því, að enginn þori aö segja
sér nein slæm tíöindi og því hafi
hann orðið að aúa sér eftir
öörum leiðum upplýsinga um
ástandiö í landinu.
Mao formaöur hefur sérstakt
lag á fundum. Hann kemur í veg
fyrir myndun andstööu gegn sér
)
!
Mao Tse Tung formaður.
Chiang Kai-sheks, sem nú
eru á Formósu.
■ Menningarbyltingin var eðli-
leg og rökrétt afleiðing af
grundvailarkenningum Maos
formanns um stjórnmál. Hún
var ekki valdabarátta, heldur
tilraun Maos til að finna
menn, sem*væru hæfir til að
taka við af honum sjálfum,
— sanna byitingarmenn.
Þessi atriöi koma fram í gögn-
um, sem borizt hafa til Banda-
rikjanna frá Kína. Þessi gögn
eru mjög mikil og hafa m. a.
aö geyma ræöur, fyrirskipanir
og bréf frá Mao formanni, upp-
haflega aöeins ætluð til andlegr-
ar uppbyggingar æðstu manná
kínverska kommúnistaflokksins.
Margir sérfræðingar vestra hafa
Rauðir varðliðar vopnaðir
prentuðum hugsunum Maos
formanns.
hann og aörir leiðtogar flokks-
ins yrðu að vera í nánu sam-
bandi viö fjöldann. Ef til vill má
bæta hinu þriöja við: Hann er
sannfæröur um, að barátta sé
í eðli sínu jákvæð.
Mao segir: „Ég hef varið mikl
um tíma í sveitunum með bænd
unum og finnst mér mikið til
um vizku þeirra. Þekking þeirra
var auðug. Ég hafði ekki roö við
þeim.“ Ennfremur: „Sumir fé-
lagar okkar óttast mjög um-
ræður meðal fjöldans. Þeir ótt-
ast, aö múgurinn hafi aðrar skoö •
anir en þeir sjálfir. Þetta er i
ákaflega slæmt. Félagar, viö er-
um byltingarmenn."
Mao er eindreginn andstæö-
ingur menningarvita, þar sem
111111111111
m BfffiKS
með því að breyta stööugt stærö
og samsetningu hópsins, sem
sækir þessa fundi. Hann er líka
mjög jarðbundinn í tali sínu.
'■Ræöur hans eru fullar af bænda
máli og líkingum þeim, sem al-
þýða manna notar. Á einum stað
segir hann: „Ykkur líður miklu
betur, ef þiö leysið vind“.
Ánnars vegar er framsetning
Maos oft mjög ruglingsleg Segja
margir fræðimenn, að það sé að
nokkru leyti með ráöum gert,
svo aö aldrei sé hægt að negla
á hann neina sök og aö hann
geti alltaf kennt undirmönnum
um ófarirnar.
Tvennt átti meginþátt í aö
hrinda menningarbyltingunni af
staö. Annað var hin styrka jafn-
réttistrú Maos. Hitt var hin ein-
dregna sannfæring hans um, aö
Umsjón: Haukur Helgason
hann telur þá slitna úr tengslum
við fólkiö. Þeir voru fjölmennir
í heilbrigöismálaráðuneytinu og
því kallaöi hann það „lávaröa-
ráöuneytiö". „Því fleiri bækur
sem maður les, þeim mun
heimskari verður maöur."
„Lokastaðfestingin á þvl,
hvort okkur tekst aö koma á
sósíalisma eöa ekki“, segir Mao,
„kemur fram í því, ef þið
fariö meöal fjöJdans og komið
á fót meö honum hinni Miklu
menningarbyltingu." Ennfrem-
ur: „Ég held, að við höfum gott
af nokkrum mánuðum af óeirð-
um.“
í fyrstu voru menn efablandn-
ir gagnvart þessum gögnum. En
þau hafa nú farið mjög víöa og
sum verið birt í bandariskum
blöðum. Telja fræöimenn nú
nær allir, að enginn vafi geti
leikiö á því, aö gögnin séu ekki
fölsuð, heldur ekta.
„Þvi fleiri bækur,
sem mdður les,
I
þeim mun heimsk-
ari verður maður"
■assaat&dlff'j^Macr.dUi