Vísir - 09.04.1970, Síða 1
s
<
,HERSKIPA'MÁLNING
Á TÆKNISKÓLANUM
• Vegfarendur um Skipholt
stöldruðu flestir við á Ieið
sinni í morgun til þess að virða
fyrir sér rauðmálaða áletrun,
sem stórum stöfum stóð á hom- ^
húsi Bolholts og Skipholts, þar
sem Tækniskólinn er til húsa.
NIÐUR MEÐ BÁRUJÁRNIÐ!
HVAÐ BÝR HÉR UNDIR? +
HÚSRÁÐENDUR LÁTIÐ EKKI
ÓMENNSKU VERKTAKANS
VIÐGANGAST LENGUR! -
ÁFRAM MEÐ VERKIÐ!
Undir þessa rosaskrift var
skrifað: Róttækir nemendur.
Ekki kvaðst skölastjóri Tækni
skólans, Bjarni Kristjánsson,
geta fullyrt neitt um, hverjir
þama hefðu verið að verki, þeg-
ar blaöamaður Vísis tók hann
tali í morgun. Hann kvað ekki
ólíklegt, að þetta væri með
réttu eignað nemendum skólans,
sem sýnt hefðu áður merki ó-
þolinmæði vegna seinagangs við
smiði hússins, sem væri komin
á þriðja ár á eftir áætlun sam-
kvæmt verksamningi við verk-
takann.
Nemendur sendu fyrir nokkru
áskorunarlista til skólastjórnar-
innar, þar sem skorað var á
hana að reka á eftir byggingar-
framkvæmdum.
„Það er svo sem vonlegt að
mönnum leiðist glamrið i báru-
jáminu á húsinu, hvenær sem
ekki er logn,“ sagði skólastjór-
inn.
Loforð verktakans liggja þó fyr-
ir um, að frá húsinu verði geng-
ið til fullnustu í maí. — GP
Þessi rosaskrift blasti við vegfarendum í morgun, sem ieið áttu um Skrpholt.
Grunsamlega hlaðin bifreið
kemur upp um stórsmygl
83 jbús. vindlingar og 6 áfengisflöskur fundust /i
bifreiðinni. Meira fannst i Brúarfossi
Það vakti athygli lögreglu-
þjóns, sem staddur var í
tollskýlinu á Reykjanes-
braut, þegar lítilli fólksbif-
reið var rennt þar upp að,
hve hlaðinn bíllinn virtist
vera, þótt ökumaðurinn
væri einn í bílnum og eng-
inn farmur inni í bílnum.
Gaf lögregiumaðurinn sig á tal
við ökumanninn, sem var frekar
stuttur í spuna og litt samræðufús.
Svaraöi hann snöggt, ,,að hann
væri bara með vörur, sem hann
ætti sjáifur, og kæmi sko lögregl
unni ekki mikið við!“
En í Ijós kom, þegar í farang-
ursgeymsluna var gáð, að þar voru
415 karton af vindlingum og sex
viskíflöskur — allt saman ótoll-
merkt. Voru þetta þrjár vindlinga-
tegundir.
Eitthvað brá ökumaðurinn litum,
þegar þessi fundur var gerður, en
ekkert losnaði um málbeinið í hon
um, svo að lögreglumaðurinn lagði
hald á farminn og flutti allt, bíl,
farm og ökumann til lögreglustöðv
arinnar, því að grunur vaknaði eðli
lega um, að þetta væri smyglgóss.
Siðast játti maðurinn því, að
þetta væri smyglvamingur, sem
hann hefði sótt í Brúarfoss, sem
liggur í Keflavíkurhöfn.
Rannsóknarlögreglumenn og toli
þjónar gerðu saumnálarleit að
smyglvamingi um borð í Brúar-
fossi sem iiggur i Keflavikurhöfn.
Hófst leitin í gærkvöldi og hefur
staðið yfir í alla nótt, og var enn
ekkj lokið í morgun, þegar blaðið
fór í prentun, en þá höfðu fundizt
á annað hundrað þúsund vindlingar
faldir undir þiljum í vélarrúmi. GP
TVEIR LÆKNAR HÆTT
KOMNIR Í ÓLAFSVÍK
Vonumst
lagi sem allir geta unað
• Héraðslæknirinn í Ólafsvík,
Arngrímur Björnsson, og að-
stoðarlæknir hans, voru hætt
komnir þegar þeir misstu niður
hreinsivökva, carbonthetraclor-
id, inni á læknastofu sinni í Ól-
afsvík. Vökvinn var á stórri
flösku og brotnaði hún.
Þama er um mjög skemmandi eit
ur að ræða, bæði eimurinn af því
og eins ef það er tekið inn. Voru
læknarnir fluttir suður í ofboði í
gærmorgun og vom þeir til rann
sóknar á Landspítaianum í morg
un.
Sagði einn læknir spítalans Sig
urður Þ. Guðmundsson í viðtali við
Vísi í morgun að allt útlit væri
fyrir að þeir hefðu sioppið með
skrekkinn og yrði ekki meint af
eitrinu, en þeir yrðu um smn á
spítalanum til frekari .rannsókn-
— segir formaður SAS-nefndarinnar i viðtali við
Visi i morgun, þegar Loftleiðaviðræður hófust
„Ég er bjartsýnn með þennan
—JH —
fund okkar hér á íslandi og
við vonum að hægt verði að
komast að niðurstöðu, sem
allir geta unað. Við munum
gera það sem við getum til
að samkomulag náist um
þetta mál sem fyrst,“ sagði
Jttrgen Adamsson, skrifstofu-
stjöri í danska utanrikisráðu-
neytinu, en hann er formaður
viðræðunefndarinnar frá SAS
löndunum, sem í morgun hóf
umræður við íslenzku við-
ræðunefndina um lendingar-
réttindi Loftleiða í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð.
Er þetta síðar; fundurinn sem
haldinn er um þetta mál. en sá
fyiri fór fram ytra fyrir fáum
vikum og gerðu þá íslenzku
nefndarmennimir grein fyrir
sínum sjónarmiðum með hlið-
sjón af hinum nýja flugvéla-
kosti, sem Loftleiðir taka í notk
un innan skamms. Adamsson
sagði ennfremur að þetta væri
í fyrsta sinn sem hann kæmi til
íslands, og svo væri um flesta
hinna tíu erlendu fulltrúa, og
kvaðst hann vera mjög ánægð
ur með fundarstaðinn, en um-
ræðurnar hófust klukkan 10 í
morgun í Norræna húsinu. Gert
er ráð fyrir að umræðumar
standi í dag og kvöld og sagði
Adamsson að þeir myndu halda
þeim áfram á morgun ef nauð-
syn krefði.
Formaður íslenzku viðtæðu-
nefndarinnar er Pétur • Thor-
steinsson ráðuneytisstjóri i utan
ríkisráðuneytinu, og sagði hann
f viðtali við blaðið í morgun að
gert væri rúð fyrir ,að gerðar
yröu tillögur á þessum fundi,
sem síðan verði lagðar fyrir nrk-
isstjómir iandanna. —ÞS—■
Á fundi í Norræna húsinu í morgun. Jörgen Adamsson íormaður viðræðunefndarinnar frá SAS-
löndunum er fimmtl frá hægri á myndinni.
Lífeyrissjóðir efna til ráð-
stefnu gegn skerðingar-
ákvæðum húsnæðisfrumvarps
■ Landssamband lífeyrissjóða
mun boða til ráðstefnu n.k.
mánudag til að fjnlla um hús-
næðisfrumvarp ríkisstjórrtarinn-
ar, sem þeir telja skerða mjög
sinn hag. Búizt er við, að um
70 fulltrúar sæki fundinn, frá
meölimafélögum landssambands
ins og lífeyrissjóðum utan þess,
en þeim verður einnig sérstak-
lega boðið.
Bjarni Þórðarson, framkvæmda-
stjóri landssambandsins, segir, að
iífeyrissjóöirnir muni leggja á-
herzlu á að ræðá við félagsmála-
ráðherra og reyna að bæta að-
stöðu sína.
I húsnæöisfrumvarpinu er gert
ráð fyrir, að 25% af ráðstöfunarfé
lífeyrissjóða verði varið tii kaupa
á bréfUm byggingarsjóðs. Húsnæð-
ismálastofnunin fengi því.þetta fé
til ráðstöfunar og gætu lífeyrissjóð
irnir sjálfir ekki ráðið því, hvemig.
því yrði varið. Forystumenn lífeyr-
issjóðanna álíta, að slík skipan
mála sé ranglát gagnvart þeim.
—HH. '
i