Vísir - 09.04.1970, Blaðsíða 6

Vísir - 09.04.1970, Blaðsíða 6
6 VlSlR . Fimmtudagur 9. april 1970. Jóhann Þórólfsson: SLÆM MEÐFERÐ SJÁVARAFURÐA.. MÉR HEFUR oft komið til hugar, hvers vegna okkur Jslendingum hef ur gengið illa að selja saltfiskinn okkar undanfarin ár og hvað hann hefur stundum veriö seldur á lágu verði. Hér áöur fyrr var þó íslenzki saltfiskurinn annálaður fyrir gæði og alltaf í fyrsta flokki. Nú er mér ljóst, að ég, landkrabbinn, hætti mér út á hála braut að ætla að ræða um meðferð sjávarafurða okk ar,' en hér ríkir ritfrelsi og mig langar til að gera svolítinn saman- burð á meðferð aflans fyrr og nú og orsakir þess, aö bæði þorsk- urinn og síldin hafa ár frá ári lent neðar og neðar í gæðamati og þar af leiðandi orðið erfiðara að selja þær afurðir við góðu veröi. Ekki vantar það þó, að nóg eigum við af fiskimatsmönnum, ferskfisk eftirlitsmönnum og fiskifræðingum, fyrir utan alls konar nefndir, sem starfa að þessum málum, en lítið bólar á batavon. Hvað veldur þessu? Ég vék að því í upphafi, að hér áður fyrr hafj þessu verið öðru- vlsl farið, og er það kannski að ýmsu leyti skiljanlegt, þar sem fiskmagnið var þá miklum mun minna og veiðarfærin aðallega lína og færi og tæknin auðvitað ekkert á við það, sem nú er orðið. En þess má líka geta aö þá var farið meö þorskinn og síldina eins og mat. Eins og allir vita, sem nálægt sjó koma eru aðallega notuð þrenns konar veiðarfæri við þorsk veiðar, troll, net, og lína. Ur netjun um er ekki nokkur möguleiki að fá fyrsta flokks fisk af þeirri einföldu ástæðu að yfirleitt drepst fiskurinn í þeim og næst þar af leiöandi ekki tii að blóðga hann og allir sem Stunda sjó, vita hvaða afleiðingar það hefur. Einnig kemur það iðu- lega fyrir að netjafiskur verður 2ja til 3ja nátta og I hvaða gæðamati > lendir slíkur fiskur? Þvi er tFljót- , svarað. Auðvitað I 3. og 4. flokki, og eitthvað fer I úrkast. Nú langar mig til að spyrja til dæmis fiski- fræðingana og eftirlitsmennina: Taka þeir þessi mál nógu föstum tökum? Þá mun ég minnast lítilsháttar á meðferð ifisksins. Þegar búið er að hirða þessar netamorkur og komið er með þær að landi tekur ekki betra við. Búið er að henda þess- um sama fiski þrisvar til fjórum sinnum áður en hann kemst i salt, eða þær umbúðir, sem hann á aö fara í, og það segir sína sögu. — Áður en ég skil við netin vil ég láta í Ijósi þá skoöun mína, að ég tel betra aö magniö væri minna og þar með meiri möguleiki á að fisk urinn færi í fyrsta flokk. Kæmi vel til álita, hvort ekki ætti alveg að banna netaveiðar, eða aö minnsta kosti að takmarka þær. Það er vitað mál, að svo að segja allur línufiskur lendir f fyrsta flokki, og þess vegna ber að leggja miklu meira kapp á þá veiði aðferð Það opinbera ætti jafnvel að styrkja eða verðlauna þá menn, sem þar skara fram úr. Útkoman yrðj betri fyrir þjóðarbúið í heild. Nú hefur verið talað mikið um atvinnuleysi á I’slandi. Mætti ekki draga úr því meö því að gera fisk inri okkar að betri vöru með því að vaska hann og þurrka á reitum eða grindum eins og áður ver gert. Yrði það mörgum drjúg vinna og varan yrði betrj og útgengilegri. Því ekkj að gera tilraun með að þurrka meira af saltfiski en verið hefur? Og þá er komið að síldinni. Ég álít, aö við íslendingar höfum verið ákaiflega klaufskir í samband; við hið dýrmæta silfur og á ég þá sér staklega við, hvernig viö nýttum hið mikla síldarmagn, sem barst á land á árunum 1962 til 1967. Önn ur eins síldarár hafa aldrei verið hér. En skapaðj allur sá afli þjóð- inni þann gjaldeyri, sem búast hefði mátt við? Ég svara því neit- andi. Með meiri hagkvæmni og betri nýtingu hefðum við getað gert hana miklu verðmætari, t.d. með því að reisa niðursuðuverksmiðjur, sem hefðu gefið margfalt meira í þjóðarbúið en fékkst með þvi að láta meirihlutann í bræðslu. Loks mun ég víkja nokkrum orð um að meðferð síldarinnar bæði á sjó og f landi. Það vill nú svo eirikennilega til að þess; landkrabbi hefur síldarmatsréttindi og starf- aði I nokkur ár við síld. Þá fór ekki fram hjá mér, að því miður eru alltof fáir skipstjórar í íslenzka flotanum sem perðu sér nægilega grein fyrir því hvaða hráefni þeir voru með, þó að til séu heiðarlegar undantekningar. Ég varð oft var við það, meðan ég starfaði á síld arplönum, hve mikill munur var á síldinni hjá einstökum skipum þótt þau kæmu aif sömu veiðisvæð um. Það var eins og svart og hvítt. Enginn hefðj trúað slíku að 6- reyndu. Hér virtist um algert kæru leys; að ræða. Mætti nefna í því sambandi illa hirtar lestir og eng ar ábreiður, ef síld var á dekki og hún þar af leiðandi sjóbarin og illa farin. Og þegar skipin komu í höfn, gat iðulega að líta menn sem tróðu á síldinní eins og verið væri að troða hey I hlöðu. Það gef ur auga leið að sfldin þolir ekki slíka meðferð. Á hinn bóginn voru skipstjórar og áhafnir, sem gerðu allt til þess að gera síldina aö fyrsta flokks vöru, Leyfi ég mér f því sambandi að nefna þrjú nöfn: Þorsteinn Gísla son Eggert Gfslason og Sigurður Magnússon frá Eskifirði. Þeir, og að vfsu fleiri, báru af f sambandi við meðferð sfldarinnar. Að lokum þetta: Á undanförnum árum hefur of mikið kapp verið lagt á að koma með sem mestan tonnafjölda að landi, en minna hirt um gæöi hráefnisins. Fæ ég ekki betur séð en setja verði strang ari reglur og málið tekið fastari tökum en til þessa, ef við eigum ekki að missa þá markaðsmögu leika, sem við höfum haft. Við verðum að gera okkur, grein fyrir ábyrgðinni, sem á okkur hvílir. Náttúruvernd virkjunarmanna Tpöstudaginn 3. apríl birti dag- blaðið Vísir niðurlagsorð athugasemda, sem stjórn Laxár- virkjunar hafði sent frá sér — og beint til alþingis — vegna frumvarps menntamálanefndar um takmarkaða friðun á vatna- svæði Mývatns og Laxár. Telur stjórn Laxárvirkjunar frumvarpið vera dauðadóm yfir öllum frekari stórvirkjunum í fallvötnum landsins. Þessi ein- strengingslega afstaða og mál- flutni.igur opinbers aðila í virkjunarmálum, verður án efa líklegri til að afla friðunarfrum- varpinu fylgis en skaða það, og því ekki ástæða til að ræða þessi ummæli frekar. Þau sanna aðeins, að hér er á feröinni úrelt og andvaralaus stefna, sem er blind á önnur verðmæti fallvatna okkar en orkufram- leiðsluna eina og metur þar allt til jafns — skolgrá jökulfljót og eyðisanda tær bergvötn og gróin lönd — aðeins ef þar fæst nýtanleg orka. Þá kemur ennfremur fram i þessum athugasemdum að lítil sem engin land eða náttúru- spjöll veröi viö Gljúfurvers- virkjun, aöeins nokkrir hektar- ar fari undir vatn og að virkj- unaraðgerðir muni að minnsta kosti hafa f för með sér land og náítúruvernd, sem svari til þess ara fáu hektara t. d. með heft- ingu upphlásturs í Miklamó. Vegna þeirra, sem ókunnir eru en gjarnan vildu vita sann- leikann i þessum málum, er rétt að upplýsa að samkvæmt upp- dráttum og áætlunum um Gljúf- urversvirkjun er miðlunarlón þeirrar virkjunar einnar ekki nokkrir hektarar heldur tíu fer- kílómetrar — og færir f kaf ein göngu gróin og ræktuð lönd. Síðan eru svo fyrirhugaðar tvær virkjanir ofar með tilheyr- andi vatnaflutningum og miðl- unarlónum, sem sökkva mundu að minnsta kosti tvöifalt meira iandi en Gljúfurversvirkjun — sem er aðeins hlekkur f keðj- unni um fullvirkjun Laxár — yröu því svæði þau, sem fórn- að yrði undir miðlunarlón ca. 30—40 ferkílómetrar í heild. Ef þetta eru ekki land og náttúruspjöll — þar sem hér er eingöngu um að ræða verðmæt og algróin lönd — er lfklegt að stjórn Laxárvirkjunar leggi annan skilning í þau hugtök er hingað til hefir verið gert. Ef svo væri, gæti náttúrufræð- ingur þeirra ef til vill gefið á þessu nánari skýringar eins og hvort meta beri hér að engu álit náttúruverndarráðs og þeirra fjölmörgu annarra, stofn ana og einstaklinga, sem nú vilja leggja fram lið sitt til aukinnar náttúruvendar. Þórólfur Jónsson. SCHAUB-LORENZ IIT Stereo-tœki GELLIR sf. Garðastræti 11 Sími 20080 1 SH/p MATES 1KNATTSP YRNUSP/L CAMPUS QUEEN körfuboltaspil MAY FAIR LADY ÍSHOKKYSPIL PANUNGr LAOY ENN EITT TÆKIFÆRI ★ Vinningur vikunnar: Plötuúttekt hjá HSH, Vesturveri, verður afhentur á laugardag kl. 4. 'k Vikulega keppt um hæstu spilatölu í BOWLING ir Opið til kl. 23.30 daglega TOMSTUNDAHÖLLIN 'Á HORNI NÓATÚNS OG LAUGAVEGAR Auðvitað hefðum við vel kunnað að meta stað sem Tómstundahöllina I mínu ungdæmi. Hins vegar sé ég því ekkert til fyrirstöðu að skreppa einhvem daginn. Hver veit nema ég hreppi VINNING VIKUNNAR?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.