Vísir - 09.04.1970, Blaðsíða 4
V1S IR . Fimmtudagur 9. apríl 1970.
Getraunaspá Halls S'imonarsonar:
Síðustu ensku Eeikirnir
á getraunaseðlinum í bili
— Á næstu seðlum verða danskir og sænskir leikir i Manoh. utd. og sheff. wed. og þar
| ætti United að hafa mikla mögu-
misst af strætisvagninum. Heima
sigur því líklegur.
Og þá er hér staðan í 1
Everton
Leeds
Derby
Ohelsea
Liverpool
Coventry
Newcastle
Manoh. Utd.
Stoke
Arsenal
Wolves
42 29 8 5
40 21 15 4
41 22 8 11
39 19 13 7
dO 19 11 10
40 18 11 11
41 16 13 12
40 14 16 10
40 14 15 11
41 12 18 11
41 12 16 13
Getraunaseði-llinn með ieikjum
frá 11. —15. aprfl verður síðasti seð
illinn með leikjum frá ensku knatt
spymunni í bili — eða til 15. ágúst
þegar enska knattspyrnan hefst að
oýjú. Á næstu seðlum verða dansk
ir og sænskir leikir, ásamt lands-
leikjum, sem fara fram á Bret-
landseyjum, en eftir því sem fast
ara form kemst á íslenzku knatt-
spymuna koma þeir smám saman
inn á seðlana. Áður en lengra er
haldið skulum við lita á úrslit f
1. og 2. deild á Englandi nú í vik
unni.
1, deild.
Nottm. For.—Coventry 1—4
Manch. Utd. - WBA 7-0
Southampton—Manch City 0—0
Sunderland—Everton 0—0
2. dei ld.
Swindon —Blackpool 1—1
j Watford—Norwioh 1 — 1
j Aston Villa—Middlesbro 2—0
Blackburn — Charlton 3-*0
í Fyrstj leikurinn á seðlinum nú
er úrslitaleikurinn í ensku bikar
keppninni milii Chelsea og Leeds.
; Lfklegt er, að bæði liðin verði með
sina beztu menn, nema hvað Poul
' Reaney, sem fótbrotnaði á dögun
; um, leikur ekki með Leeds. Litlar
i líkur em á jaifltefli þar sem fram-
lengt er verði jafnt eftir venjulegan
leiktíma — en það er afar opið
j hvort liðið sigrar. Bæði liðin geta
leikið frábæra knattspýrnu — og
sennjlega bezt að draga um 1 eða 2.
Annar leíkur á seðlinum milli
Crystal Palace og Manch. City hef
ur þegar farið fram á óþarft að
ræða um hann. Nr. 3 er leikur
ÁRSHÁTÍÐ
knattspyrnufélagsins Víkings veröur haldin 11. apríl í
Tjamarbúð. Boröhald hefst kl. 7.30. Húsið opnað kl. 7.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Miðar fást í Vfkingsheimilinu, sími 83245 og í Söebechs-
VMzIan, Búðargeröi 9.
ÁRSHÁTÍÐARNEFND.
I leika, en S'heff. Wed. berst fyrir
tilvem sinnj í deildinni. Leikur nr.
j 4 er mílli Southampton og Derby
! og er frekar jafnteflisleikur. í
; fimmta leiknum ætti Stoke að
| vinna WBA.
>á er það sjötti leikurinn og þar
verður Sunderland að sigra til að
halda sæti sínu í 1. deild. Það ætti
að geta orðið mikilí baráttuleikur.
Sjöundi leikurinn er millj Totten-
| ham og Arsenal, stóru liðanna i
; Norður-London. Arsenal hefur náö
! mjög góðum árangrj að undanförnu
S og ætti að hafa sigurmöguleika. Þá
! er komið að leikjum úr 2. deild
í og áttundi leikurinn er milíi Carl-
í isle og Leicester. Jafnteflislegur
j leikur, en Leicester hefur þó enn
I mjög veika von að vinna sig upp
1 í 1. deild. Niundi leikurinn milli
Charlton og Bristol City sker úr
um hvort Charlton tekst að halda
sér í deildinnj City hefur hins veg
ar engra hagsmuna að gæta. I 10.
leiknum mæta meistararnir Ifudd-
erfield einu af neðstu liðunum, Wat
ford. 11 leikurinn er milli QPR og
Blackburn og er jafnteflislegur og
að lokum er það síðastj leikurinn
milli Swindon og Middlesbro. Swind
on hefur veika von að komast I 1.
deild — en Middlesbro hefur þegar
Manch. City 40 14 11 15
Tottenham 40 15 9 16
. Burnley
j WBA
j West Ham
Nottm. For.
Ipswich
South’pton
j C. Palace
i Sunderl.
41 11 12 18
41 14 9 18
42 12 12 18
41 9 18 14
9 11 20
6 16 19
6 15 21
6 14 21
8 8 24
40
41
42
41
•deild.
72:34 66
81:43 57
61:36 52
65:45 51
63:40 49
57:44 47
53:35 45
63:57 44
52:48 43
51:48 42
55:51 40
50:46 39
51:54 39
53:58 37
56:63 37
51:60 36
49:71 36
37:60 29
45:66 28
34:68 27
30:67 26 j
37:68 24 I
Arsenal vann
Ajax með 3:0
Arsenal lék í gær við Ajax
'frá Amsterdam í undanúrslitum
borgakeppni Evrópu og sigraði
með 3 — 0. Mörk Arsenal skor-
uðu Charlie George, tvö og Jon
Sammels. Leikurinn var háður í
London og ætti Arsenal nú að
hafa mikla möguleika á að kom
ast í úrslit.
Þrír landsleikir í knattspymu
voru háðir í gærkvöldi og lauk
öllúm með jafntefli 1—1. Þeir
voru milli Frakklands og Búlg-
aríu, Vestur Þýzkalands og Rú
meníu og Júgóslavíu og Austur-
rfki. Fyrrtöldu löndin léku á
heimavelli. Vestur-Þýzkaland,
Búlgaría og Rúmenía taka þátt
í lokakeppni HM í Mexfkó, sem
hefst fyrst í júní.
DERBY útilokað frá
Evrópukeppninni
Enska knattspymusamband-
ið dæmdi í gær Derby County í
10 þúsund sterlingspunda sekt
og í árs keppnisbann gegn er-
lendum félögum vegna þess að
félagið hefur brotið reglur sam
bandsins um greiðslur til leik-
manna. Þetta er hæsta sekt sem
enskt félag hefur verið dæmt í,
en í fyrra var Manch Utd. sekt
að um sjö þúsund pund vegna
svipaðra brota. Keppnisbannið
er þó alvarlegra fyrir Derby,
sem hefur unnið sér rétt í borga
keppni Evrópu og er talið að
Derby tap; um 50 þúsund pund
um vegna bannsins.
Umsjón Hallur Símonarson
Hep, hep... við unnum!
Hinir, ungu íslenzku Norður
landameistarar í handknattleik
komu heim í gærkvöldi og var
fagnað f fjölmennum hóp ætt-
ingja og vina — ásamt forustu
mönnum íslenzks handknatt-
leiks — þegar þeir stigu út úr
áætlunarbílnum á Reykjavíkur
flugvelli klæddir landsliðsbún-
ingunum og þeir þökkuðu fyrir
sig með kröftugu ... hep hep
við unnum Norðmenn ... hep,
hep við unnum Svía .. hep, hep
við unnum Dani .. hep, hep
við unnum Finna .. .hep, hep
við UNNUM, og á meðan voru
þeir myndaðir frá öllum hliöum
af dugmiklum Ijósmyndurum.
Axel Einarsson formaður
handknattleikssambands Islands
bauð hina ungu sigurvegara vel
komna heim og þakkaði þeim
frábæra frammistöðu. Bað hann
síðan viðstadda að hylla piltna
með ferföldú húrra og var það
gert kröftuglega. Stutt, en
skemmtilega athöfn ... enda
piltarnir ákafir í að heilsa upp á
sína nánustu og næg hafa um
ræðuefnin verið.
I kvöld gengst HSÍ fyrir hófi
að Hótel Sögu, sem hefst kl.
átta fyrir Norðurlandameistar-
ana og ýmsa aðra. Þar mun Ax-
el Einarsson flytja ræðu en far-
arstjórarnir Rúnar Bjarnason og
Jón Kristjánsson segja frá hinu
helzta sem fyrir bar í hinni
viðburöaríku og sigursælu för
til Finnlands.
Noröurlandameistarinn Pálmi
Pálmason með foreldrum sínum
og systur, Pálma Friðrikssyni
og Anný Ólafsdóttur, en hún
var, mjög kunn handknattleiks-
kona hér áður fyrr i meistara-
flokki Fram. Að neðan Norður-
landameistararnir. Ljósm. Bj.Bj.