Vísir - 17.04.1970, Page 3
VlSIR . Föstudagur 17. aprfl 1970.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLOND É MORGUN UTLÖND í IVIORGUN ÚTLÖND
55 börn 4-14
ára fórust
— Leitin talin vonlaus
□ Menn höfðu í morgun
misst alla von um að finna
fleiri á lífi eftir swjóflóðið,
sem í gær skall á berkla-
hælið í St. Gervais í
i frönsku Ölpunum, nálægt
: landamærum Sviss og ít-
; alíu. Þess vegna virðist ein
sýnt, að 72 hafi farizt í
flóðinu.
55 af þessum 72 voru drengir á
aldrinum fjögra til fjórtán ára, flest
ir frá Frakklandi, en einnig frá
Alsír, ítalíu. Portúgal og Martini-
que.
í morgun höfðu fundizt 25 lík
grafin í snjó og jarðveg. Leitinni
var haldið áf ram I morgun með stór
um vélum. Sjálfboðaliðar höfðu
unnið alla nóttina í þessari von-
lausu leit við erfiðar aðstæður.
Engin hróp hafa heyrzt úr rúst-
unum síöan snemma í gær, og er
því ekki talið líklegt, að neinn
þeirra, sem ófundnir eru, sé á lífi.
Barízt eftir
heimkomu Bosch
! FJÓRIR voru skotnir til bana í
! gærkvöldi, þegar lögregla og herlið
j f Santo Domingo hóf skothríð á
: stuðningsmenn Juan Bosch, sem
j nokkrn fyrr hafði snúið heim eftir
tveggja ára útlegð. Bosch telur sig
: nð þurfa að leiðsegja þjóð sinni á
erflðnm tfmum, en hann var eitt
sinn forseti Dóminikanska lýðveld-
Mns.
Óstaðfestar fréttir hermdu í gær-
kvöldi, að mikill fjöldi fólks hefði
verið handtekinn eftir að stuðnings-
menn Bosch höfðu haldið fund í
höfuðborginni.
Bosch var steypt af stóli með
byltingu hersins áriö 1963, aðeins
sex mánuöum eftir aö hann kom
til valda. Herforingjum þótti Bosch
vera of langt til vinstri.
Umsjón: Haukur Helgason
Smitaði geimfara af rauðum hundum
Þetta er Paul litli House, 2ja ára, sem smitaði Charles Duke geimfara af rauðum hundum, en Duke hafði
síðan samskipti við geimfarana 1 Apollo 13. Paul er hér að horfa á gelmskotið fyrlr viku í sjónvarpinu.
Vaxandi bjartsýni um Apollo
Stefnuleiðrétting eftir hádegið, ef naubsyn krefur
Bjartsýni manna óx í morg-
un við hverja klukkustund,
STYRJALDARÁSTAND í
BERKELEYHÁSKÓLA
LögreglHSvartir lögðu í gær
kvöldi uiujUr sig mikinn
hluta hástóbasvæðisins í
Berkdey i Kaliforníu eftir
átök við anðstæðinga Víet-
nam stríðsins. Ástandið
var mjög uggvænlegt,
sögðu fréttamenn í nótt,
’irátt fyrír margvíslegar
ráðstafanir, sem gerðar
voru til að lægja öldurnar.
/
Stjórn háskólans lýsti yfir al-
geru neyöarástandi í háskólahverf-
inu eftir harða bardaga í gær, þar
sem meira en 60 manns særðust og
22 voru handteknir. Óeirðir héldu
áfram i gærkvöldi, og varð lögregl-
an enn að grípa til táragass. Mörg
hundruð „byltingarsinna" úr hópi
stúdenta brutu rúður og börðust
við lögregluna langt fram á nótt.
Þeir eiga nú á hættu að verða rekn-
ir úr skóla, þar sem þeir sinntu
ekki yfiriýstu neyðarástandi.
Foringjar stúdenta saka lögregl-
una um grimmd, og var fundur i
gærkvöldi haldinn til þess að mót-
mæla hörku lögreglunnar í viðskipt
um þeirra. í Berkeley eru 28 þús.
stúdentar.
Ástandið var aiftur eðli'legt í Cam-
bridge í Massachusetts, þar sem á-
tök urðu i gær, Einnig vegna Víet-
namstriðsins.
er geimfararnir í Apollo 13 færð-
ust jörðu. Þeir þraukuðu enn í
morgun og höfðu jafnvel eitt-
hvað sofið. Næsta alvörustig
ferðarinnar verður upp úr há-
degi í dag, þegar geimfararnir
fara yfir í hið stórskemmda
stjórnfar, en það eitt hefur nauð-
synlegan útbúnað til aö sundr-
ast ekki, er geimfarið kemur inn
í andrúmsloft jarðar. Þá geta
þeir ekki iengur notað tunglferj-
una sem björgunarbát og verða
að losa sig við hana.
Þeir eiga að lenda á Kyrrahafi í
dag um sexleytið í grennd við Nýja
Sjáland. Þar er mikill viðbúnaður
að taka við þeim, og menn eru bún-
ír undir, að farið berist eitthvað
af nákvæmri leið.
Um eittleytið I dag að íslenzkum
tíma verður stefna leiðrétt, ef nauð
synlegt verður talið. Um fimmleytið.
losa þeir sig við tunglferjuna og
þurfa þá aö snúa £arinu tvívegis.
Áður hafa þeir þa losað sig við
tækjafariö (service station), sem er
állt úr lági. ' -íffwK*
Kuldinn hrellir þá mikið. Áður
höföu þeir verið klæðlitlir til þess
að spara vatn og súrefni, og hreyft
sig sem allra minnst. Nú verða þeir
að klæöast sem bezt til að halda
á sér hita.
Engrar æðrunar verður vart í
samtölum þeirra til jarðar. Frú Lov
ell fór í gær i annaö skipti út frá
heimiii sínu, frá því aö spennan
skapaðist við biiunina á dögunum.
Hún virtist bjartsýn.
Þótt enn sé ekki upplýst, hvað
olli biluninni 1 Apollo og hugmynd-
ir allar á reiki um það efni, er nú
þegar byrjaö að kanna nýjar leiðir
í rannsóknarstöðvum í Bandaríkj-
unum til að hindra að tunglferðir
verði í framtíðinni slíkt hættuspil
sem raun er á.
PAISLEY
kjörinn á þing
Hinn öfgafulli andstæðing-
ur kaþólskra á Norður-ír-
landi, lan Paisley, sigraði í
gær í aukakosningum til
þings landsins og hefur því
öðlazt nýjan og sterkari
vettvang fyrir stjórnmála-
baráttu sína. Stuðnings-
maður hans var kjörinn í
öðru kjördæmi í aukakosn-
ingum.
Séra Paisley sigraði í kjördæmi
í Kreosen Bannside, en stuðnings-
maður hans, séra \yilliam Beattie,
vann kjördæmi f South Antrim, sem
er skammt þaðan. Kjörsókn var á
báöum stöðum um 70 af sundraði.
Þetta er mikið áfall fyrir rikis.
stjórn Noröur-írlands, sem- hefur
reynt að fara bil beggja 1 átökum
kaþólskra og mótmælenda í land-
Skotæfingar róttækra í Berkeleyháskóla
Fréttamenn frá fréttastofunni Associated Press segjast hafa oröiö þess varir, að öfga-
menn til vinstri í hópi bandarískra stúdenta séu nú að búast vopnum til „lokaátaka“
viö „kerfið”.
BifreiÖaeigendur athugið
Höfum mikinn fjölda kaupenda að nýlegum bílum
gegn staðgreiðslu. Einnig að vel með förnum eldri
gerðum bifreiða. — Hafið samband viö okkur
BÍLAKAUP — RAUÐARÁ
Skúlagötu 55. Símar 15812 og 26120.