Vísir - 23.05.1970, Qupperneq 1
VISIR
Mun færri kindur tvílembdar
vegna ótíðarinnar í fyrra
Ótíðin í fyrrasumar og haust
hefur haft mikil áhrif á frjósemi
sauðfjárins. Mun færri kindur
verða tvílembdar í ár heldur en
áður að sögn Árna G. Pétursson-
ar, sauðfjárráðunauts Búnaðarfé
lagsins, en hann sagði að þar
sem hann hefði frétt til væri frjó
semi hjá fénu minni en í venju-
legu ári og fé rýrara en venja er
til.
Ástæðuna fyrir þessu taldi Árni
fyrst og fremst þá, að féð kom
rýrt af fjalli í haust og því var
Eimskip skilar 110 milljón króna
hagnaði — Greiðir 15% arð
Rekstur Eimskipafé-
lagsins síðasta ár skilar
109,5 millj. krónum í
rekstrarhagnað. Er þá
búið að afskrifa af eign-
um rúmar 40 milljónir
króna. Kom þetta fram á
aðalfundi félagsins í
gær.
í ársskýrslu félagsins kom
fram ,að alls höfðu 32 skip ver
ið i förum á vegum félagsins ár-
ið 1969, og fóru þau samtals
194 ferðir á milli íslands og íit-
landa. Eigin skip félagsins voru
13 að tölu og nam hagnaður af
rekstri þeirra kr. 209 milljón-
um.
Vöruflutningar með skipum
félagsins höfðu verið 329 þús.
smálestir 1968, en voru að
þessu sinni 383 smálestir. Far-
þegum,- sem tóku sér far með
skipum félagsins, fiölgaði um
566 frá því 1968, og voru þeir
samtals 8557. Með Gullfossi
ferðuðust 8107 farþegar.
Samkvæmt efnahagsreikningi
námu eignir félagsins í árslok
1969 kr. 672.434.879.70, en
skuldir að meðtöldu hlutafé kr.
526.626.207.64. Heildarvelta árs
ips 1969 nam kr. 1012 milljón-
um, en á árinu 1968 nam hún
728 milljónum kr.
26. febrúar sl. var fyrsta skip
inu af þrem, m.s. Goðafossi,
sem félagiar“flílur samið við
Aalborg Værft a/s um smíði á.
hleypt af stokkunum. Það er
frystiskip, 3900 DW-tonn að
stærð, og er gert ráð fyrir að
smíði þess ljúki í júní n.k. Af-
hendingartími hinna skipanna,
sem verða venjuleg vöruflutn-
ingaskip 4100 DW-tonn að
stærð, verður um mánaðamótin
sept.-okt. 1970 og vorið 1971.
Kostnaðarverð nýja Goðafoss
verður 17,1 milljónir danskra
króna, eða um 188 millj. ísl. kr.
Stjórn félagsins var endur-
kjörin. GP
Tveim bílum
stolið frú íslend-
ingi í N.Y.
— og hvorugur hefur
fundizt þrátt fyrir leit
Pað er eins og ólánið elti Is
lendinga, sem hafa brugðið
sér út fyrir landsteinana. —
Vmist eru þeir sviknir í úra-
kaupum á ferðalögum, eða þá
að þeir eru hreinlega rændir.
íslendingur einn, sem vinn-
ur við alþjóðastofnun í New
York, hefur tvívegis orðið fyrir
barðinu á bíræfnum þjófum á
stuttum tíma.
Nótt eina í miðjum apríl var
bifreið hans stoliö, þar sem hún
hafði staðið fyrir utan heimili
hans í New York. Hefur hún
ekki fundizt síöan, né hann feng
ið skaðann bættan.
1 þessari stórborg er ekki gott
að vera án farartækis, og þegar
maðurinn var orðinn úrkula von
ar um, að bifreið hans kæmi til
skila keypti hann sér aðra bif-
reið 12. maí og lagði henni að
kvöldi þess dags fyrir utan heim
ili sitt, eins og milljónir annarra
heimilisfeðra, sem komu heim
úr vinnu sinni þetta kvöld.
En á hádegi daginn eftir kom
lítil kranabifreið og lagði fyrir
framan bifreið íslendingsins. —
Ökumaður kranabilsins steig út
og festi krók í fólksbílinn, setti
vinduna í gang og lyfti bílnum
upp að framan, og ók síðan á
brott — eins og væri hann að
sækja þarna vélarvana bifreið
til þess að fara með á verk-
stæði.
Ekkert hefur síðan spurzt til
bifreiðar íslendingsins, né held-
ur kranabifreiðarinnar, þótt næg
ir sjónarvottar hefðu veriö til
staðar, sem gátu gefið glögga lýs
ingu á henni.
Enn hefur Islendingurinn í
New York keypt sér þriðju bif-
reiðina, en þorir nú fyrir enffan
mun að sleppa af henni augun-
um, nema þá á bifreiðastæðum,
sem hafa vaktmenn, er gaéta
stæðanna vegna þjófa. —GP—
Frá fundi hreppsnefndarinnar í gær. Bak við nefndinasjást nokkrir hreppsbúa, sem hlýddu á umræöumar.
Óska eftir að ráðherra
endurskoði afstöða sína
Hiti i Seltirningum vegna skólanefndarmálsins
„Á fundinum var samþykkt með
þremur atkvæöum af fimm — en
tveir sátu hjá — í hreppsnefndinni
aö óska eftir þvf við ráðherra, dr.
Gylfa Þ. Gíslason, að hann endur-
skoðaði afstöðu sina í máli þessu“,
sagði Sigurgeir Sigurösson, sveitar
stjóri Seitjarnarneshrepps í viðtaii
við blaöið i gærkvöidi aö afloknum
hreppsnefndarfundi um þá ráðstöf
un Gylfa að skipa reykvíska hús-
móður í formannssæti skólanefnd
ar á Nesinu.
Kunna Nesbúar því illa, að ráð-
herra skuli á þennan hátt svo aug-
ljóslega vanmeta getu þeirra til að
fara með stjórnun skóla síns. Er
mikill hiti í Nesbúum almennt
vegna máls þessa og var margt á-
heyrenda á hreppsnefndarfundinum
i gær til að fylgjast með framvindu
mála.
Sigurgeir sagði ennfremur í við-
tali við Vísi: „Auk þessa teljum
við, að ráðstöfun ráðherrans brjóti
bókstaflega í bága við fræðslulögin
frá því árið 1946, þar sem segir, að
sá sé einungis kjörgengur til skóla
nefndar, sem einnig sé lcjörgengur
til sveitarstjórnar." —MV
Sjónvarpsumræðurnar á morgun
Stjórnmáiaumræður um borgar-
málefni verða í sjónvarpi á morg-
un kl. 17.00. Verður bein útsend-
ing úr sjónvarpssal. Fjórar umferð-
ir verða og ræðutimi sjö mínútur
og þrisvar sinnum fimm mínútur.
Eftirtaldir taka þátt í umræð-
unum:
Framsóknarflokkur: Guðmundur
Q. Þórarinsson, Gerður Steinþórs-
dóttir Alfreð Þorsteinsson og Krist
ján Benediktsson.
Sjálfstæðisflokkur: Ólafur B.
Thors Sigurlaug Bjarnadóttir.
Kristján Gunnarsson og Birgir ís-
Ieifur Gunnarsson.
Alþýðuflokkur: Björgvin Guð-
mundsson, Elín Guðjónsdóttir,
Ingvar Ásmundsson og Árnj Gunn-
Sósíalistafélag Reykjavíkun
Steingrímur Aðalsteinsson, Drífa
Viðar, Örn Friðriksson og Hafsteinn
Einarsson.
Alþýöubandalag: Sigurjón Péturs
son, Margrét Guðnadóttir, Adda
Bára Sigfúsdóttir og Guðmundur
J. Guðmundsson.
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna: Listj þátttakenda var ekki
ákveðinn í gærkvöldi. — MV.
haldið svo lengi sem unnt var
á beit vegna heyleysisins.
Sauðburður er byrjaður víðast
hvar á landinu en hann er að
sögn Árna þó í seinna lagi vegna
þess að bændur eru orðnir
hvekktir á vorhretunum, er ævin
lega hafa komið um sauðburðinn
undangengin ár.
Víða sunnanlands og vestan er
sauðburður langt kominn, en
hann er rétt nýlega hafinn á
Norður og Austurlandi, nema þá
á einstaka svæði, svo sem í Eyja
firði þar hófst hann tiltölulega
snemma. —JH—
Sjá bls. 9.
Leggja síðusfu
hönd á skuttskrúna
Senn líður að því, að skattskráin
komi út, enda reynt aö hraða út-
komu hennar eftir mætti, og hver
sem vettlingj getur valdið hjá
ekattstofunni hefur setið frá því í
febrúar með sveittan skallann yfir
álagningarútreikningum.
Lokið mun undirbúningsvinnu
við einstaklingsframtölin, áður en
þau verða send Skýrsluvélum til
ratfreikningsúrvinnslu, og um þess-
ar mundir er. unnið við að Ijúka
frágangi framtalsskýrslnanna frá
félögum.
Lögum samkvæmt á skattskráin
aö koma út 1. júní, og hefur hún
venjulega komið út í fyrstu vik-
unni í júní. Með fullum vinnukrafti
ef al'lt gengur að óskum, standa
vonir til þess að hægt verði að
koma henni út einhvern daginn
milli 5. og 10. júní t ár. -—GP.
Þrjár starfsstúlkur skattstof-
unnar vinna við götunarvélar að
undirbúa framtölin fyrir úr-
vinnsiu rafreikna Skýrsluvéla.
Þær. byrjuðu 8. apríl að gata
fyrstu spjöldin af milli 60 og 70
þúsund spjöldum — allt framtöl
Reykvíkinga.