Vísir - 23.05.1970, Side 3
V í SIR . Laugardagur 23. maí 1970.
3
Pop á sýningunni Heimilið — „Verötd innan veggja"
Náttúra, Pops og Flosi
Umsjón: Benedikt Víggóssop'
Á hinni umfangsmiklu sýn-
ingu, HEIMrLIÐ — „Veröld inn-
an veggja“ verður ýmislegt til
skemmtunar, og unga fólkið
verður aldeilis ekki skilið út-
undan, það verða samtals fjórar
kvöldskemmtanir sérstaklega
við hæfi æskunnar, fyrstu tvær
verða n.k. þriðjudag og mið-
vikudag.
Á miðvikudagskvöldiö kemur
Náttúra fram í sviðsljós „hallar-
innar“. Henný Hermannsdóttir
mun annast kynningar þetta
kvöld. Skemmtunin hefst kl. 9.
Á sama tíma n.k. þriðjudag
verða Pops og FIosi Ólafsson i
sviðsljósínu. Ekki mun þó Flosi
vera búinn að komast á atvinnu
samning hjá Pops, en þetta
kvöld mun hann bregða sér í
hlutverk pop-stjörnunnar sem
við könnumst við úr áramóta-
þætti hans í sjónvarpinu, og er
ekki að efa, aö hann mun hrista
sig af innlifun. Eins og komiö
hefur fram hér 1 blaðinu er
væntanleg tveggja laga plata
með Flosa og Pops. Kynnir
þetta kvöld verður fulltrúi ungu
kynslóðarinnar 1970, Guöbjörg
Harafdsdóttir.
,Samsteypan' leikur
r Friður á jörðu"
inn á hliómplötu
Hermannsdóttir mun
„Náttúru“.
1 síðasta sjónvarpsþættinum
„1 góðu tómi“ kom fram all-
sérstæð hljómsveit sem saman-
stóð af meðlimum úr fimm
hljómsveitum. Fluttu þeir m. a.
lagið „Friður á jörðu", en þessi
samsteypa er væntanleg á plötu
með þetta lag. Þetta veröur
tveggja laga plata, og hitt lagiö
er einnig úr áðurnefndum þætti
og heitir „Við lindina", en það
er sungið af Ásgerði Flosadótt-
ur en hún flutti þetta lag upp-
haflega, er hún tók þátt í keppn
inni um titilinn „fulltrúi ungu
kynslóðarinnar 1970“.
Þeir sem flytja „Friður á
jörðu“ eru: Jónas í Náttúru,
Pétur í Pops, Sveinn í Roof
Tops. Birgir í Ævintýri og Axel
í Tilveru.
Hljómplötuútgáfan, sem
stendur að þessari plötu, er það
ný af nálinni, að hún hefur ekki
fengið nafn ennþá. Platan er
væntanleg eftir u. þ. b. mánuð,
ef allt gengur að óskum.
Guðbjörg Haraldsdóttir verð-
ur kynnir er Flosi og Pops
koma fram.
Hin nýja plata
*
Beatles í „A
nótum æsk-
unnai* 1
Pétur í Pops er einn af fé-
lögunum í „Samsteypunni“
dag
Náttúra kemur fram n. k. miðvikudagskvöld f Laugardalshöllinni.
í útvarpsþættinum „Á nót-
um æskunnar" í dag, verður hin
merka LP.-plata Beatles „Let it
be“ kynnt. Platan er þó ekki
komin enn á afmennan markað
hér heima, en er væntanleg
innan skamms að sögn Fálk-
ans. Glaumbær fékk plötuna
stuttu eftir að hún kom út I
Bretlandi, og voru lög af henni
kynnt í diskótekinu sl. fimmtu-
dag.
„Ég kynni þrjú lög af
Beatles-plötunni“ upplýsti Pét-
ur Steingrímsson, annar stjórn-
andj þáttarins „Á nótum æsk-
unnar“.
— Ertu með eitthvað fleira
forvitnilegt f þættinum?"
— Jú, ég held, að mér sé ó-
hætt að fullyrða, að nunnu-
söngur sé nokkuð forvitnilegt
fyrirbrigði nú á tímum, en hér
er um aö ræða LP. plötu með
14 syngjandi nunnum, brezkum,
sem syngja lög trúarlegs eðlis.
Þá verður flutt lag í þættinum,
sem er númer tvö á vinsælda-
listanum í Bretlandi, „Back
home“. Hljómsveitin nefnir si.e
„England world cup squad ’70“.
Pláta þessi er gefin út í tilefni
af heimsmeistarakeppninni i
Mynd frá upptöku plötu
Beatles „Let it be“.
knattspyrnu. Bretar unnu bikar-
inn síðast, þegar keppnin var
háð. en það var 1966.
í sambandj við kynninguna á
þessu lagi hef ég fullan hug á
að fá Jón Ásgeirsson til að
segja nokkur orð um heims-
meistarakeppnina í knatt-
spyrnu.