Vísir - 03.07.1970, Blaðsíða 1
60. árg. — Föstudagur 3. iúlí 1970. — 147. tbl.
Regína Magnúsdóttir íþróttakennari, og María Finnsdóttir, hús-
móðir — tvær filmstjörnulega vaxnar stúlkur létu sólina baka
sig í Nauthóisvík í gær.
HVER SÓLARSTUND ER FULLNÝTT
■ Sól skein í heiði um Suðurland í gær og er ekki að efa að
margir hafa reynt eftir megni að láta júlísólina baka sig. Reyk-
víkingar streymdu til sundstaðanna, en svo illa tókst til, að laug-
in í Laugardal var lokuð vegna hreingerninga. Vesturbæjarlaugin
var yfirfull allan daginn og urðu margir frá að hverfa, einkum
þeir sem höfðu hugsað sér að skjótast í laugarnar í hléi frá vinnu.
■ 1 Nauthólsvík var ekki margt um manninn, enda sjórinn ó-
hæfur til baða, en liins vegar skein þar sól eiris og annars stað-
ar og skjól gott fyrir golunni. Við hittum þarna tvær filmstjömu-
lega vaxnar stúlkur sem lágu í makindum og létu sólina baka sig,
voru meira að segja strax komnar með dökkleitán blæ á húðina.
Þær kváðust nota hverja stund sem gæfist, er sólar riyti, til sól-
baða og kváðust vissulega ætla að ferðast 'um landið í sumár, ef
vel viðraði. Stúlkan hægra megin á myndinrií heitir María Finns-
dóttir og er húsmóðir að atvinnu, fær því ekker i eiginlegt sumar-
frí, en hin er Regína Magnúsdóttir íþróttakennari við Varmárskól-
ann í Mosfellssveit. - —GG
Verður reiknuB út sérstök
vísitulu fyrir EYJAR?
— Verkalýðsfél'ógin þar telja dýrara að lifa f>ar en á meginlandinu
Öllum verkföllum hef
ur nú verið aflétt hér í
Reykjavík, eftir að samn
ingar tókust við raf-
virkja í gær. Þar með er
kominn vinnufriður alls
staðar á landinu, nema í
Vestmannaeyjum, þar
sem verkalýðsfélögin
hafa lagt á eftirvinnu-
bann og afgreiðslubann
á fragtskip í höfn-
inni.
Lítið hefur þokað í samkomu-
Iagsátt með atvinnurekendum
og verkalýðsfélögunum í Eyj-
um. Atvinnurekendur hafa boð
iö upp á sömu kjör og verka-
lýðsfélögin hafa fengið annars
staðar á landinu, en verkalýðs
félögin krefjast 30% launahækk
unar, en þau telja að dýrara
sé að lifa í Eyjum en annars
staðar á landinu. Þau hafa þess
vegna m. a. fariö fram á, að
reiknuð yrði út sérstök vísitala
fyrir Vestmannaeyjar.
Verzlunarmenn samþykktu í
gær samninga, sem tókust við
þá í gær. Almenn launahækk-
un hjá verzlunarmönnum er 15-
18.2% en auk þess hækkaði
verulegur fjöldi félagsmanna um
launaflokk og uröu þeir því aH
margir, sem hækkuðu um 24—
26% í launum. Ekki hefur ver-
ið reiknað út ennþá hver launa
hækkun hjá verzlunarmönnum
er að meðaltali.
Rafvirkjar samþykktu einnig
nýja samninga f gær. Launa-
hækkun hjá þeim nemur 15—
17%, en auk þess fá þeir 0.75%
í ,,verkfærapeninga“.
Nú er aðeins eftir að semja
við afgreiðslustúlkur í mjólkur-
og brauðbúðum, en beðið hefur
veriö eftir því hvemig samn-
ingar við verzlunarmenn yrðu og
er ætlunin að hafa mið af þeim
í samningunum við afgreiðslu-
stúlkumar. —VJ
Sundlaug með hverri íbúð
— Mótel i byggingu á Flúðum
■ Stofnað hefur verið hluta-
félag um byggingu „mótels“ á
Flúðum I Rangárvallasýslu og
eru framkvæmdir hafnar fyrir
Enn eru þeir Klausturbændur
teknir til við járnflutninga af
Mýrdalssandinum, en sem kunn
ugt er grófu þeir mikið af járni
upp -úr Dynskógafjörunni í fyrra
og fluttu til Reykjavíkur. Um
5—600 tonn af járni sem grafið
var upp í fyrra var geymt við
Hjörleifshöfðann í vetur. Eru
Túrisittinn er kont-
inn til Akureyrnr
Ferðamannastraumurinn er far-
inn að setja svip sinn á Akureyri
en til þessa hefur ekki verið ýkja
mikil umferð í bænum. Tjaldstæði
bæjarins hafa lítið verið notuð
fyrr en í nótt og fyrrinótt, en
þar eru nú komin 15—20 tjöld,
enda er nú glaðasólskin og 1
stiga hitj þar nyrðra meðan Sunn-
lendingar sýta sólskinið í gær og
una illa rigningu og súld. —JH
nokkru. Gert er ráð fyrir að
Ijúka við nú í júlímánuði bygg-
ingu 113 fermetra húss, þar sem
verða fjögur 2ja manna herbergi
þeir nú eftir verkfallið byrjaðir
að flytja þetta jám til Reykja-
víkur, þar sem það verður unn-
ið eða flutt til útlanda. Hluti af
járninu verður sendur vestur á
Þingeyri.
Valdimar Lárusson á Kirkju-
bæjarklaustri, bróðir Bergs Lárus-
sonar, sem staðið hefur fyrir jám
flutningunum sagði í viðtali við
blaðið í morgun, að þeir væru með
2 og 3 stóra bíla í takinu, sem
flyttu jámið. Ekki kvaðst Valdi-
mar þess fullviss, hversu mikiö
hefði þegar verið flutt af þessu
jámi, en ætlunin væri að flytja það
allt í sumar suður til Reykjavíkur.
Járn þetta hefur verið grafið upp
úr sandinum og er þetta farmur
úr skipi, sem strandaði þarna í f jör
unni á stríðsárunum. Enn er tölu-
vert járn grafið í sandinn, og verð
ur væntalega haldiö- áfram að
grafa það upp í sumar. Þá hafa
þeir einnig hug á að leita gulls-
ins, sem sagt er grafið í Skeiðar-
ársandinn, en hvort af því verður
í sumar er enn óvíst. —ÞS
með ýmsum þægindum, m.a.
mun fylgja hverju herbergi Iftil
yfirbyggð laug.
Daníel Guðmundsson, oddviti á
Efra-Seli sagði í viötali við blaðið
í morgun, að vonazt væri til að
hægt yrði að opna þessi fjögur
herbergi ágúst í sumar til tilraun-
ar, en síðan yrði byggt meira, ef
vel tækist til. Ekki er ákveðiö
hvort mótelið verður opið næsta
vetur og fer það eftir aðsókn í
sumar. Húsið, sem verið hefur í
byggingu í sumar er steinhús og
stendur það beint á móti barna-
skól-’num á Flúöum. Hafa fram-
kvæmdir gengið vel til þessa, en
hluthafar í hlutafélaginu, sem
stendur að byggingu mótelsins eru
flestir búsettir á Flúðum. — ÞS
OG ENN
RIGNIR
HANN...
Sólartímabilið var skamm-
vinnt eins og við mátti búast
hér á Suðurlandi og í morgun
var skýjaö i Reykjavík. Og enn
getur vont versnað, en gert er
ráð fyrir meiri eða minni úr-
komu um allt land í nótt, þó
sérstaklega á Suðurlandi þar
| sem veðurstofan býst við mik-
j illi rigningu sums staðar. Á
! morgun breytist vindáttin úr
j suðaustanátt í norðaustlæga átt
i á norðanveröu landinu. — SB
i
Járnflutningar hafnir
af Mýrdalssandi
5-600 tonn voru geymd v/ð Hjörleifsh'ófða i vetur
Fá 100 silungu á stöng
yfir 2 dugu í Veiðivötnum
Tuttugu stengur hafa verið á
lofti hvern einasta dag inni viö
Veiðivötn síðan leyfi var gefiö
til veiði þar þann 23. júní. Stöð-
ugur straumur fólks hefur verið
þar inn að vötnunum og sagði
Guðni Kristinsson, bóndi í
Skarði á Landi, en hann selur
veiðileyfi í vötnunum, að ieyfin
væru nú að verða uppseld, að-
eins væru eftir leyfi fyrir einn
og einn dag seinna í sumar.
Gífurleg veiði hefur verið í vötn
um. Menn hafa landað þarna allt
upp í 100 vænum silungum með
einni stöng á tveimur dögum. Yf-
irleitt er fiskurinn vænn, allt upp
i 14 pund og yfirleitt ekki undir
4 pundum.
Annars hefur veiði yfirleitt ver-
ið léleg það sem af er í fjalla-
vötnum og kenna menn þar kulda
um, veiðin sé þar fyrir ekki kom-
in upp í vötnunum. Til dæmis hef
ur verið mjög dræm veiði í Þing-
vallavatni þaö sem af er. —JH
Sjá bls. 9.