Vísir - 15.07.1970, Page 7

Vísir - 15.07.1970, Page 7
V í S I R Miövikudagur 15. júlí 1970. MM □ Símagjöld Hvernig er það, geta blaða- menn ekki fengið að skyggnast niður í skúffur hjá Símanum? Hvernig er hægt að láta loka síma, þegar búið er að greiða fyrir það sem síminn hefur ver- ið notaður .eingöngu vegna þess að einhver fyrirfram- greiðsla er ógreidd? Hvers vegna þarf að greiða fvrir síma sem er geymdur vegna þess að eigendur eru ekki á land- inu? Hvers yegna þarf áð greiða fleiri þúsundir fyrir eitt hand- tak við að flytja síma? — Og af hverju er yfirleitt - fyrirfram- greiðsla á símagjöldum? Með kveðju, Símamær. □ Óánægður unglingur hringdi: — Það er búin aö sjóða lengi í mér vonzka, yfir þvi fyrirkomu iagi, sem haft er á þeim hljóm listarþáttum, sem okkur ungu fólki eru ætlaðir. Á ég þar við „Lög unga fólksins“ og „Nótur æskunnar", en þeim þáttum er báðum stjórnað af fólki, sem auðheyrilega er vaxið upp úr því fyrir löngu, að ha-fa áhuga á þeirri músik, sem blaktir í dag hjá okkur unglingunum. „Lög unga fólksins“ hafa svo sem lengi haft orð á sér fyrir dapra stjórn og litbrigðalausa. Það sem þar er flutt er einungis „tyggigúmmímúsík“ og virðist það vera stefna stjórnenda þátt anna, að halda sér með öllu í þá áheyrendur, sem hafa gam- an af slíkri músík, en láta okk- ur hin, sem höfum áhuga á þró aðri músík gersamlega lönd og leið. Lagaval stjórnenda þáttarins „Á nótum æskunnar“ er raun- ar ekki alveg eins bágborið, en þó eru þættirnir oft fyrir neðan allar hellur. Sérstaklega eru kynningarnar á lögunum ömur- legar, að maður nú ekki tali um viðtölin, sem stundum hafa ver ið felld inn í þáttinn. Nú vil ég gera það að tillögu minni, að meö vetrardag- skránni verði tekinn upp sá hátt ur, að velja vinsæla hljómlistar menn til að annast val og kynn ingar á lögunum í hljómlistar- þætti okkar unga fólksins og af- henda gömlu stjórnendunum „ferðapassann“ um leið. □ Eilífðarbyggingar Víða þar sem verið er að byggja hús við gamalgrónar göt ur hafa verið settar upp sérstak ar gangbrautir út í götuna fyrir framan byggingarnar. Um það er ekki nema gott eitt að segja. Og mikill þrifnaður er að þvi að slikar byggingarframkvæmd ir skuli vera byrgðar með báru jámi eins og víða er gert. Takmörk eru þó fyrir því hve lengi þessar göngubrautir eiga að standa. Þær eru óneitanlega mikill umferðartálmi. Hvað er til dæmis búið að vera lengi að bvggja húsið við Laugaveginn HRINGIÐ I SÍMA1-16-60 KL13-15 rétt ofan viö Vitastíg? Mér ‘ finnst það ætti ekki að leyfa, slíkar byggingar, nema menn ( geti lokið þeim af á mjög stutt' um tíma. — Ti! hvers er svo , verið aó girða af lóðina þar sem < Gildaskálinn stóð og á hún að ' vera svona til eilífðar? Þar hef < ur ekki verið gert handtak aó 1 því er séö verður í háa herrans | tíð, en grindverkið, sem stendur , út í götuna heftir ntjög umferð ; um Aðalstræti. Bragi. □ Eins og um garðinn! þinn Að undanförnu hefur mátt heyra mörg slagorð um vernd- un gróðurs og lands i útvarp- inu. Og það er vel, því að ekki er vanþörf á að hvetja fólk til tð ganga vel um á ferðalög ,ínum. Eitt af þessum slag- .orðum hljómar eitthvað á þá leiö að fólk skyldi ganga um landið eins og um garðinn sinn. Út frá þessu datt mér í hug, hvort ekki mætti hefja herferð hér í höfuðborginni. Víða má að húsabaki sjá hinn ótrúleg- asta óþrifnað, ekki sízt í gamla bænum. Þetta er kannski falið fyrir almennum vegfarendum, en þeir sem búa í þessum hverf um veröa helzt varir viö þetta. Börnin leika sér þarna og þetta blasir við úr gluggum. Það eru ekki sízt við bílaverkstæðin og slíkar stofnanir, sem þessi ó- þrifnaður viðgengst til dæmis má nefna Einholtið og verkstæð isfarganið þar víðar í holtun- um. Frú í Þverhoiti □ Dagúrinn og vegur-| inn Gaman þætti mér að vita, Vís , ir góður eftir hverju er fariö við 1 aö velja fólk til að flytja erindiö | „Um daginn og veginn" sem < ævinléga er i Ríkisútvarpinu á '{ mánudagskvöldum. Ég hef til gamans hlustað á < nokkur þessara erinda. þ.e. þau ' sem hafa verið flutt i vor. og, sumar. Stundum hefur mér dott < ið í hug, að útvarpið veldi valin' kunna sæmdarmenn til að segja ( eitthvað gáfulegt við landslýð, < en þó er ég, einkum þessa síð- ustu daga, farin að ímynda < mér að hver sem er fái að halda j svona erindi. Aöeins ef hann ( biöur um leyfi. Þaö væri a.m.k. < verulega gaman að fá það upp-' lýst eftir hverju útvarpið fer, þegar það velur sér fyrirlesara < stundum er eins og þessir „val-1 inkunnu sæmdarmenn" séu ekki ( svo mjög valinkunnir, og ein- staka greinilega ekki á réttum ] stað að vera að tala þarna. Oft eru sömu mennirnir kall-' aðir til hvað eftir annaö og j manni finnst eins og þeir séu < alltaf að kveða sömu vísuna,' eins og blessunin hann dr. Gunn, laugur, eða Páll Kolka. Mér < finnst sem sagt f seinni tíð þessi ] þáttur orðinn rniklu svipminni, en hann var, til dæmis á meðan ' menn eins og Jón Eyþórsson lögðu honum gott til. Lauga STIMPLAGERD FÉLAGSPRENTSMIDJUNNAR HUSEI&ANDI! ÍS9 Þér »em byggi5 *»ér sem endornýið OKTORGHHF. SELUR ÁLLT TILINNRÉTTINGA Sýnum m.a.: F.ldhúsinnréttinsiar Klæðask.Tpa, Innihurðir tTtihurðír Bylpjuhurðír YúWklæðninijar Sólbckki Borðkrókshúsgöpi ! Eldavélar Stálvaska lsskápa o. m. íl. ÓÐINSTORG HF. SKÓIAVÖRÐUSTÍG 16 SÍMI 14275 Lokað verður vegna sumarleyfa sem hér segir Verksmiðjan frá 17. júlí til 12. ágúst n.k. Afgreiðslan frá 17. júlí til 4. ágúst n.k. Viðskiptavinir sem eiga tilbúnar pantanir á afgreiðslu vorri, eru vinsamlega beðnir að vitja þeirra fyrir 17. þ.m. CUDOGLER hf. mAnud. til FÖSTUDAGS. 1 Sé hringf fyrir kl. 16, sœkjum við gegn vœgu gjaldi, smóauglýsingar á tímanum 16—18. Slaðgreiðsla. LEIGANsTj Vinnuvélar iil leigu Litlar Steypuhrœrivélar Múrhamrar m. borum og fieygum Rafknúnir Steinborar Vatnsdœlur ( rafmagn, benzin ) J arðvegsþjöppur Rafsuðuiœki Vibratorar Stauraborar Slipirokkar Hitablásarar HÖFDATUNl * - SÍMI 23*80 AlfGMéo hvih UrVlfeg Jivili fn ð gleraugum fm iWli F oa íiiecc » me< Austurstræti 20. Siml 14566, NYKOMINN Vatnslímdur útihurðakrossviður 90x210 cm — 9 mm Glæsileg vara — Mjög lágt verð. Hannes Þorsteinsson, heildverzlun. Hallveigarstíg 10. Símar 24455—24459 Grillaðir kjúklingar, ásamt fjölda annarra heitra og kaldra rétta. Smurt brauð og snittur og einnig hinar vinsælu nestissamlokur, afgreiddar allan daginn.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.