Vísir - 13.10.1970, Side 3
VlSIR . Þriðjudagur 13. október 1970.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND f MORGUN UTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Her kvaddur til í Kanada
— Áfram „pókerspil" um gislana tvo
Cross.
KANADÍSKI herinn var
kvaddur á vettvang í gær-
kvöldi, og tók hann sér
stöðu við opinberar bygg-
ingar í Ottawa. Á herinn
að aðstoða riddaraliðslög-
regluna í leit að ræningjum
brezka verzlunarfulltrúans
James Cross og atvinnu-
málaráðherra Quebecfylk-
is Pierre Laporte. Ríkis-
Stjórnin hafði fyrirskipað
Þvinganir eftir
fráfall Nassers
//
44
— segir Sadat
Anwar Sadat, sem gegnir torseta-
störfum í Egyptalandi, sakaði
Bandaríkjamenn og ísraelsmenn i
gærkvöldi um að nota fráfall Nass-
ers til að reyna að beita Egypta
þvingunum. Hann sagði, að Egypt-
ar væru þess albúnir að ræða um
frið í Mið-Austurlöndum á grund-
velli friðartillagna Bandaríkja-
manna. Skilyrði fyrir því væri hins
vegar, að ekki væri reynt að þvinga
Egypta.
Ben Gurion: „Nasser vildi semja“.
Sadat sagði þetta í ræðu, er hann
hélt fyrir nefnd bænda, sem komnir
voru til Kaíró til að lýsa yfir stuðn-
ingi við Sadat í væntanlegum for-
setakosningum í Egyptalandi. —
Höfðu þúsundir bænda áður geng-
ið um götur Kaíró til grafar Kass-
ers.
Ben Gurion fyrrverandi forsæt-
isráðherra ísraels hafði sagt, að
Nasser heföi haft fullan hug á, að
hitta að mál'i leiðtoga ísraels. Taldi
Ben Gurion, að Nasser hefði viljað
semja um deilumálin af alhug. Hins
vegar hefði Nasser verið hindraður,
og síðan féll hann frá, skömmu
eftir að hann sendi ísraelsmönnum
síðasta boðið um viðræður milli
leiðtoga.
Sadat hefur nú byrjað ,,gagn-
sókn“ í málinu. Hann sagði á
bændafundinum, að „heimsvalda-
sinnar" ætluðu að kúga Egypta i
skjóli fráfalls Nassers. „Egyptar
neituöu að gefast upp í júnístríö-
inu 1967“, sagði Sadat. „Við mun-
um heldur ekki gefast upp nú,
hversu miklum þvingunum, sem við
verðum beittir. Afstaða okkar er
skýr. Hún er hin sama og var á
dögum Nassers. Við munum ekki
gefa eftir einn metra af arabísku
Iandi“. Sadat kvaðst vona, að
„Bandaríkjamenn færu að sýna
skynsemi" í málum Mið-Austur-
landa.
Sjö farast í
e • , O ' '
otvidri a opani
# Að minnsta kosti sjö hafa far-
it og fimm er saknað og óttazt, að
þeir hafi drukknað, þegar ofviðri
gekk yfir Katalóníu-hérað á norð-
austur Spáni um helgina.
Tveim bátum hvolfdi skammt frá
Barcelóna og áhöfnin hvarf í bylgj-
umar.
Þetta var versta óveður, sem orð-
ið 'hefur f Katalóníu í mörg ár.
Flóð gekk yfir bæi, og voru sumir
einangraðir frá umheiminum. —
Flæddi yfir vegi og símalínur slitn-
uðu.
Brezkur ferðamaöur og sonur
hans dmkknuðu á Costa Brava, um
50 kílómetrum suður af Barcelóna.
Faðirinn stökk út í vatnið til að
reyna að bjarga syni sínum, en mis-
tókst.
ströngustu öryggisráðstaf-
anir.
Ræningjarnir endurtóku enn í
gærkvöldi þá hótun sína, að þeir
mundu myrða Cross og Laporte,
ef ekki yrði gengið að skilyrðum
þeirra. Krefjast ræningjarnir, að
pölitískir fangar í Quebec verði
látnir lausir, og lögreglan hætti „of-
sóknum“ á hendur sér
Segja þeir að verði ríkisstjörnin
ekki við kröfum þerira, eða hiki
hún of lengi, þá munu gislamir
verða líflátnir. Gangi stjórnin að
skilmálum þeirra, þá muni gíslun-
um sleppt. Ef ríkisstjórnin gangi
aðeins aö hluta skilmálanna, þá
muni öðrum gíslanna sleppt, en
Laporte verði haldið áfram,
Talið er, aö tveir hópar öfga-
manna meðal aðskilnaðarsinna í
Quebec hafi framið mannránin.
Mikil leit hefur veriö gerð að
ræningjunum í Quebec, og nú hafa
verið gerðar öryggisráðstáfanir víö-
ar í Kanada.
Umsjón: Haukur Helgason.
Fyigzf með
búðaþjéfum
Hnupl úr sjálfsafgreiðsluverzlunum
hefur víða bakað þeim mikið tjón.
Nú reýna stórverzlanir að gjalda
hinum fingralöngu viðskiptavinum
rauðan belg fyrir gráan. Hafa þær
tekið í notkun sums staðar svipað
eftirlitskerfi og margir bankar
hafa. Einhvers staöar í verzlunar-
húsinu er lögregluþjónn, sem getur
fylgzt með viðskiptavinunum á
fjölmörgum sjónvarpsskermum. —
Þar sér hann fólk, hvar sem er f
búðinni, og þjófarnir eru gripnir
-<$> glóðvolgir.
1000 BORN VEIKTUST
VEGNA MENGUNAR
Senda varð heim um eittj
þúsund skólabörn í gær,
þegar mengun og þoka
lagðist yfir borgina Rott-
erdam og nágrenni. Börnin
kvörtuðu um særindi í
hálsi, höfuðverk og rennsli
úr augum.
Verst var ástandið í bæjunum
Schiedan, Rosenburg og Maasluis
við Norður-Rín milli Rotterdam og
Norðursjávar.
Svo mikið var blýmagniö í loft-
inu, að það fór langt fram úr því,
sem talið er hættulaust. Heilbrigð-
isyfirvöld í Hollandi sendu I gær
áskorun til iðjuvera meðfram Rín, I eldsneyti, að minnsta kosti þar til
um að þau minnkuöu blýmagn 11 veður hefur brevtzt.
Sovézkir vísindamenn
óttast „dómsmorð '
rr
Hinn kunni kjarnorkuvís-
indamaður Andrej Sakhar-
ov og fjórir aðrir vísinda-
menn hafa beiðst þess að
fá að vera viðstaddir rétt-
arhöld yfir stærðfræðingi
einum, sem er sakaður um
„að hafa farið með lygi um
Sovétríkin“.
Hermt er, að vísindamennirnir
hafi skrifaö yfirvöldum bréf með'
þessum óskum. í bréfinu segir, að
þeir hafi áhyggjur vegna handtöku
starfsbróöur, einkum vegna dóma,
sem felldir hafi verið í svipuðum
málum síðustu ár.
Stærðfræðingurinn, Pimenov, var
handtekinn í Leníngrad í júlí.
Vfsindamennirnir segjast ócr,ast,
að reglum um opinber réttarhöld
verði ekki framfylgt.