Vísir - 14.11.1970, Blaðsíða 2

Vísir - 14.11.1970, Blaðsíða 2
 Kyrkislanga á verði yfír þýfínu Lðgreglití'oringi frá Glostrup, sem seint aö kvöldJagi var að rannsaka á dögunum sumarbú- stað í Danmörku, hafði nær feng ið taugaáfall, þegar ljóskeilan frá v<asaljósinu hans nam staðar á hvæsandi kvrkislöngu, sem gapti framan í hann ofan af stolnu litasjónvarpi. — Já, þjófurinn hafði skilið kyrkislöngu eftir hjá þýfinu, sjón varpstækinu og ýmsum varningi öðrum, sem hann hlafði faliö í sumarbústaðnum. Og það var að aðrir þjófar stælu frfl honum þýfinu, meðan sltkur „varðhund- ur“ stóð yfir góssinu. Meira hð segja lögregluþjón- arnir voguðu sér ekki nær slöng- unni, þótt þeir tækju með sér það af þýfinu, sem fjærst henni var. Hins vegar komu þeir daginn eftir í björtu og fengu þá yfir bugað slönguna meö teppi, og komið henni fyrir í.ksissa — en þó ekki öðruvisi en með mann tilbúinn með mundlaða byssu, til þess að vemda þá, ef til vand- ræða horfði. Að þessum stuldi stóð heill þjófaflokkur og danska lögreglan hafði uppi á einum þeirda, sem situr um þessar mxmdir f gsseiðu- varðhaldi, meðan féJaga hans er leitað. En slangan sat i „í-'inaelsi“ lögreglunnar aðeins fjóra daga, því þá var henni, komið fyrir hjá dýilasala. En þýfið, sem hún hafði veriö sett til að gæta nam að verðmæt um um 5 milljónum ísl. króna. Gary Grant nálgast sjötugt HANN vakti fyrst á sér athygli í kvikmyndum 1932. HÚN fæddist sex árum síðar 1938. En bilið milli kynslóðanna er nú ekki breiðara samt en svo, að hin 32 ára leikkona, Natalie Wood, virðist skemmta sér hið bezta í félagsskap Gary Grants, þegar þessi mynd var tekin af þeim saman fyrir skemmstu í veizlu í Hollywood. — Gary Grant er nú kominn hátt á sjötugsaldurinn og verður 67 ára f janúar. i r Fulltrúi íorstjóra' Opinbert fyrirtæki hefur í hyggju að ráða mann sem fulltrúa forstjóra. i Undir starfssvið fulltrúans fellur umsjón með starfsmanncihaldi og „almenn- ingstengslum/# (Public relations) i | Háskólamenntun æskileg. 1 Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, óskast sendar augl. Vísis merkar ,146‘. eftir 3000 mílur Ræðarinn á myndinni. sem sést vera að koma í land á kajak sin- um í Maidstone í Kent i Englandi á liangan róður að baki. Þrjú þús und mflna langan. Geoffrey Hunter lagði af stað í róðurinn í maí sl. og þessar 3000 mílur, sem hann hefur róið á siðasta hálfa ári, liggja í kringum Bretlandseyjar. — Að visu hafði hann viðkomu í landi við og við. Hann tók sér þessa ferð á hend ur i fjáröflunarskyni fyrir héraðs samband drengjaklúbba i Kent, sem eru æskulýðssamtök. Eins og við mátti búast, hlaut Hann varmar móttökur, þegar í land kom að leiöarlokum, en um leið biðu hans nokkur vonbrigði. Þeir, sem að ferðinni stóðu, höfðu stefnt að þvi að reyna að afte 1000 sterlingspunda, en á þess- um síöustu og verstu tímum veröa menn ekki svo ýkja upp- næmir, þótt einhver ætli að róa frá Bretlandseyjum ti.1 AiusríSku — hvað bá, ef róðurinn nær að eins 3000 mílur meðfram Bret- landsströnd. Það söfnuðust því aö eins 300 pund.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.