Vísir - 29.12.1970, Blaðsíða 1
VICTD
W liJ A M%
SIGLDU BURT
Á AÐFANGADAG
Ekki var hægt oð gefa skipverjum jólafri
H Löngum hefur það verið
venja íslenzkra útgerðar-
manna og skipafélaga, að láta
hau skip sín, sem í heimahöfn
eru rétt fyrir jól, vera í höfn
vfir hátíðamar. Mönnum fannst
hví allt í einu skjóta skökku við
á aðfangadag, er Helgafell Sam-
handsins kom inn á ytri höfn-
’na, setti einn mann í land og
hélt síðan til hafs. Þótti ýmsum
hetta súrt í broti sem vonlegt
var.
Hjá Skipadeild SÍS fékk Vísir
bær upplýsingar, að Helgafel'lið
hefði komið til Reykjavfikur á
aðfangadag frá Borgarnesi og var
'kipið hér aðeins að setja á land
___________________________
Enn ©r ort
! um maurnsýrunn
j Deilurnar í Þingeyjarsýslum,
svo harðvftugar sem þær hafa
verið hafa ekki farið fram hjá
hagyrðingum, eins og að líkum
lætur. — Fyrir nokkru birti
Vísir húsgang, sem hafði skotiö
upp kollinum á Húsavík, en vís
an, sem eignuð er Páli H. Jóns-
syni, kennara að Laugum hljóð
ar svo:
Nú er dimmt um Norðurver.
Næturhrafnar þinga.
Maurasýrumenguð er
menning Þingeyinga.
Nú hefur „bóndi“ sent Vísi eft-
irfarandi svar til Páls:
Auðnu flýr í orðum sá.
Eyðir skýru máli.
Menning rýr er montnum hjá
Maurasýru-Páli.
—VJ
hafnsögumann. Frá Reykjavík hélt
það síðan til Norður-Noregs að
lesta sfldarmjöl sem það fer með
til Finnlands. Helgafellið er haft f
almennum flutningum og að því er
o-kkur var tjáð hjá skipadeildinni
þá hefur skipið stranga ferðaáætlun
og átti það að vera komið á ákveðn
um degi til Noregs. Var af þeim sök
um ekki hægt að hafa það heima
yfir hátíðarnar, væri það enda al-
gengt að Sambandsskip væru ekki
heima yfir jól og alls engin regla
að þau lægju inni. Skipverjar á
Helgafelli fengu því bara að horfa
á Reykjavík i jólabúningi sínum,
síðan var siglt til hafs og aðfanga-
dagskvöldið haldið hátíðlegt undan
suðurströnd landsins. —GG
!•••••••«•••••••••••• •••••••••
Hunn guf sýstur sinni unnuð nýru sitt
■ Fyrir nokkru fór fram skurft-
aðgerð á tveim systkinum
úr Reykjavík á Hammersmiths-
sjúkrahúsinu í London. Bróöir
gaf systur sinni annað nýra
sitt. Nokkuð er það orðið al-
gengt að nýrnaskipti séu gerö,
en sjaldgæf eins og hér var,
þ. e. aö flutt sé úr lifandi manni.
Nýmaskiptin gengu mjög vel og
sögöu Iæknar, að sjaldan heföu
þeir séð eins fallegt nýra og
það, sem gefið var. Nú á dögun-
um bárust svo þær gleðifregnir
að nýrað hefði tekið vel við sér,
það gerðist á 70 ára afmæli
föður þeirra systkinanna, Guð-
mundar Aibertssonar póstfuM-
trúa. Betri afmælisgjöf gat hann
og fjölskyldan naumast fengið.
Á myndinni er Jóhann Öm Guð-
mundsson á sjúkráhúsinu i
London ásamt ungri stúlku, ís~
lenzkri, sem gekkst undir upp-
skurö þar. ■ Sjá viðtal bls. 9.
Blossar sjússastríi upp ú ný:
?
Sigmar i Sigtúni vann söluskattsmól, sem
samband veitingamanna hafði gefizt upp á
□ Sigmar Pétursson,
veitingamaður í Sig-
túni, fagnaði um jólin
sigri í söluskattsmáli,
sem höfðað var gegn
honum fyrr á þessu ári.
Var það sprottið út af ktjönwn
framreiðslumanna, en þeir hafa
hingað til þegið laun í formi
lð% þjónustugjalds. 1965 tóku
þjónar skyndilega upp hjá sér,
að ótoreyttum kjarasamningum,
að leggja 16 prósentin ofan á
söluskattinn — líka varð af
þessu það fræga sjússastrfð.
Munu laun þjóna þannig hafa
hækkað sjálfkrafa eftir hverja
söluskattshækkun. Samband
veitinga- og gistihúsaeigenda
(SVG) fór svo í mál við Félag
framreiðslumanna, og stóð þaö
mál I nokkur ár, eða þar til
SVG feTldi málið niður. Þeim
málalokum vildu sumir veitinga
menn ekki una, og þeirra á með
al var Sigmar í Sigtúni. Hann
hélt því fram að samkvæmt lög-
um bæri að leggja söluskatt á
siðast. Greip Sigmar svo tæki-
færið, þegar einn þjóna hans
fór úr hans þjónustu, og gerði
upp við hann með kvittun fyrir
ofteknu þjónustugjaldi. Fór þá
þjónninn í mál við Sigmar og
var það mél um lögmæti þess
að leggja þjónustugjaldið ofan
á söluskattinn. Niðurstaðan var
svo sú að Sigmar taldist hafa
rétt fyrir séx.
Ekki er annað sýnt en
dómsniöurstaöa þessi breyti
miklu fyrir veitingamenn, þrátt
fyrir það aö þeir hafi fallið frá
fyrra málinu f héraðsdómi og
er ekki annað að sjá, en ris-
ið hafi nýr grundvöllur fyrir
stríöi milli þjóna og veitínga-
manna, þar eö naumast sætta
þjónar sig við aö ganga með
skarðan hlut frá borði. Þessu
söluskattsmáli var áfrýjað.
Dómsniöurstaöa þessi getur
komiö til meö að hafa áhiif á
verö veitinga, fer það auðvitað
eftir því hvemig 16% þjónanna
verða í framtíðinni reifcnuð —
hvort þau verða tekin af grunn-
verði eins og áður var — en
enginn þeirra veitingamanna
sem Vísir hafði samband við í
morgun, kvaðst geta geit sér
grein fyrir breytingum þeim
sem dómurinn hefði í för með
sér, þar eð enn hafa menn ekki
fengið í hendur dómsuppkvaðn-
inguna. — GG
55
Stórpólitískt mál44
— segir kaupmaburinn á Akureyri, sem byggingarfulltrúi hefur kært
Hin umdeilda verzlun á Akureyri. Heilbrigðlsnefnd, bæjarráð og
bæjarstjórn sáu ekkert athugavert, en byggingarnefnd kærir.
„Þarf ráðherraúrskurð í málinu,“ segir byggingarfulltrúi.
„Ég opnaði verzlun í bílskúr hér
í Brekkunni á Akureyri laugar-
daginn fyrir jól, — hef í huga
að auka þjónustu við fólkið sem
á Brekkunni býr, en þar er ekk-
ert verzlunarhverfi enn á skipu-
laei, þannig að þessi verzlun,
sem er útibú frá Hafnarbúðinni
h.f., myndi levsa vandann næstu
2—3 árin. Við verzlum með ný-
lenduvörur og ýmiss konar smá-
vörur.“ sagði Ingvi Loftsson,
kaupmaður Vísi í morgun, en
mikið deilumál er nú upni á Ak-
ureyri vegna verzlunar hnns.
Verzlunin er j bílskúr og hefur
byggingarfulltrúi Akureyrar lagt
fram kæru á hendur Ingva fyrir að
reka verzlun í óiöglegu húsnæði.
Ingvi fékk leyfi bæjarráðs og bæjar
stjórnar til að opna verzlunina, en
þurfti einnig leyfi byggingarnefndar
til að gera ýmsar breytingar, svo
sem að setja verzlunarhurð og
glugga á skúrinn I stað bílskúrs-
hurðar. Byggingarnefndin synjaði
um leyfið og krefst lokunar búðar-
innar. Sagði Ingvi Vísi f morgun,
„að þetta mál myndi einsdæmi, þar
sem fjöldi verzlana f bænum er
rekinn i bílskúrum eða hliðstæðum
byggingum. Kaupfélag verkamanna
er t.d. með 3 verzlanir sínar í bíl-
skúrum og sama má segja um
fleiri fyrirtæki, svo sem matvöru-
verzlanir og bankaútibú, Byggingar
fuTltrúi ætti því að kæra veTflest
verzlunarfvrirtæki bæjarins.
„Sannleikurinn er sá“, sagði
Ingvi, ,,að þetta mál er stórpóli-
tfskt og runnið undan rifium kaup
félagsins — éa vil haida pólitík
fvrir utan þetta, enda eru mínir
víðskintamenn úr öllum Uokkum,
eins og gehir að skilja. Nú — heil
brigðisnefnd kom saman á föstu
deainum áður en éa onnaði og sam
þykkti einróma að verzlunin upp-
fvTlH heilbrigðiskröfur.“
„Ég vil ekkert um málið segja
á þessu stigi málsins", sagði Jón
Geir Ágústsson, byggingarfuTltrúi
og form. byggfngarnefndar, „það
er verið að safna gögnum í þessu
máli, og ég vil ekki að blöðin
blandi sér í málið fyrr en lfnumar
haifa S'kýrzt og sannleíkurinn kem
ur allur í Tjós. Ef ósátt verður
milli byggingamefndarinnar og bæj
arstjómar og bæjarráðs, verður úr
skurður ráðherra að koma til“,
sagði Jón Geir, og neitaði að láta
fleira frá sér fara um málið.
„Það er ekkert ákveðið varðandi
betta mál énnþá“, sagði bæjar-
fóeetinn á Akureyri, Ófeigur Ei-
rfksson, „þessi kæra er eiginlega
ekki komin fram. Það stendur tii
að þeir óski eftir að verzluninni
verði lokaö, en það er ekkert klárt
komið fram í málinu ennþá —
eiginlega ekkert um það að segja
ennþá".
Verzlunardeila þessi er nú mál
málanna á Akureyri, og segja þeir
Akureyringar, sem Vísir heifur rætt
við, að þar ræði menn ekki lengur
um hundahald og kTátn, heldur biði
í ofvæni eftir framvindu þessa
máls — GG