Vísir - 12.01.1971, Side 3

Vísir - 12.01.1971, Side 3
VÍSIR . Þriðjudagur 12. janúar 1971. í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón: Haukur Helgason: Sjötíu fangar Brasilíu- stjómar fluttír til Chile — samkomulog milli mannræningjanna og stjórnarinnar — Bucher sendiherra væntanlega laus / dag 70 pólitískir fangar í Bras- ilíu voru í morgun í Ríó de Janeiro og áttu að fara með flugvél til Chile. Brasilíu- stjórn ákvað að sleppa föngunum í skiptum fyrir sænska sendiherrann Gio- vanni Bucher, sem skæru- liðar í Brasilíu rændu á dögunum. Talsmaður brasilísiku stjórnarinn ar sagði, að fulltrúar ríkisstjómar Chile mundu taka við föngunum. í Chile er nú við völd marxistinn Allende, fyrsti marxistinn, sem kjör inn er forseti suður-amerísks lands. Síðan Allende komst til valda, hafa skæruliðar leitað skjóls í Chile. Mikið þóf hefur verið um Buoh- er sendiherra. Ríkisstjórn Brasilíu Dular- fulla stúlkan Þessi stúilika er nú einna mest í fréttum í Bretlandi, hvort sem er að sekju eöa ósekju. Þetta er hún Jacqueline Rufus-Isaacs, 24 ára, hefðanmær af einihverju „fín asta“ fólki Bretlands. Brezku blöðin segja, aö hún sé ástmær eiginmanns Margrétar prinsessu Tony Snowdons lávarðar. Tony sagði í fyrradag, að þetta væri hreinn uppspuni. — Hefði hann ekikert með ungfrú Ruifus-Isaaes að gera. Blöðin sitja þó við sinn keip, og segja að hjónaband Margrétar og Snowdons sé að fara út um þúf ur. „Hussein og lsraels- menn vmna saman — gegn okkur, segja arabiskir skæruliðar Jórdanska stjómin hefur kallað þingið til aukafund- ar vegna ókyrrðarinnar í landinu undanfarna fimm daga, en þar hafa skæru- liðar og stjórnarhermenn barizt daglega. Skothríð heyrðist annað veifið í Amman í nótt, og skærulið ar halda bví fram, að stór- skotalið stjórnarinnar hafi skotið á stöðvar skærulið- anna um allt landið. Skæruliðar segja, að orrustuflug- vélar frá I’srael hafi í gær ráðizt á stöðvar þeirra við ána Jórdan og hafi stjórnarher Jórdaníu samtímis ráöizt á stöðvar skæruliða. Ríkis- stjórnin í Amman segir, að ekkert sé hæft í þessu. Hins vegar hafi skæruliðar fellt einn lögregluþjón og sært þrjá í Amman í gær. Þá hafi skæruliðar rænt tveimur her- mönnum. Hussein konungur er í sjúkra- húsi í London, og hefur hann sent jórdönsku þjóöinni kveðju í útvarpi. Hann kveðst vilja fullvissa þjóð sína um, að hann muni ekki jiola, ’að erlent veldi fái yfirráð yfir- ráð yfir neinum hlutum jórdansks lands. hafði áður gengið að kröfum skæru liða, sem rænt höfðu erlendum sendimönnum í landinu. Hins vegar var hún í þetta sinn mjög treg til undanláts. Bar hún því meðal ann- ars við, að sumir hinna pólitísku fanga væru venjulegir glæpamenn, en ekki skæruliðar. Þá sagði ríkis- stjórnin, að sumir fanganna vildu ekki fara úr landi. Alsír var lengi taiið mundu verða það land, sem fangarnir yrðu flutt ir til og þeim sieppt þar. Skærulið ar i Brasilíu höfðu áður flutt til Alsiír hóp pólitískra fanga, sem látn ir voru lausir í skiptum fyrir gísi skæruliðanna. I þetta sinn varð Ohiie fyrir valinu. Búizt er við, að Buoher sendi- herra verði látinn laus í dag. Laust fyrir hádegið beiö Brasilíustjórn eft ir ákveðinni tryggingu fyrir því að Bucher yrði sieppt. Bucher Medici forseti Brasilíu undan Hungurverkfall f Lahore í Pakistan • Hungurverkfall f bænum La- hore í Pakistan leiddi til haröra götubardaga í gær. Herinn tók að lokum völdin f þessum öðr- um stærsta bæ landsins. Réðist herinn til atlögu á bæinn, eftir að lögreglunni hafði mistekizt að dreifa mannfjöldanum með táragasi. # Forystumaður hungurverkfalls- ins er fyrrverandi krikkethetja, Abdul Hafeez Kardar. Upphóf- ust síðan kröfugöngur. Mann- fjöldinn hljóp um götur og braut rúður. Hungurverkfalls- menn áttu f samningaviðræðum við stjóm blaðaútgáfu, en þær fóru út um þúfur. Hótuðu verk- fallsmenn þá að hertaka skrif- stofur útgáfufélagsins. Krikketmaðurinn Kardar var kosinn á fylkisþingið í Lahore í desember. Hann er félagi f hin um vinstri sinnaða alþýðuflokki, sem Ali Bhutto stýrir. Formaður arabíslcu vopnahlés- nefndarinnar í Jórdaníu, Túnisbú- inn Bahi Ladgham, fer í dag frá Kaíró til London til viðræðna við Hussein konung. Hann kveðst munu íáta af störfum, ef aðiiar í Jórdaníu haidi ekki í heiðri vopna- hléssamninginn. Málgagn kfnverska kommúnista- flokksins „alþýðudagblaðið" kenn- ir Bandarfkjunum í morgun um á- töikin í Jórdgníu. Segir blaðið, að Bandaríkjamenn veiti jórdönsku stjórninni mikla hernaðaraðstoð og leggi áráðin um það, hvernig b^zt sé að ráða niðurlögum skærurlð- anna. Blaðið heitir skæruliðum i Jórdaníu fuilum „stuðningi kín- versku þjóðarinnar í baráttunni við heimsvaidastefnu Bandaríkjanna." Aukin sænsk aðstoð við þjóð- frelsishreyfingar Sænska stjórnin mun halda á- fram að veita Noröur-Víetnam efnahagsaðstoð og efla stuðning sinn við þjóðfrelsishreyfingar í Afríku. Þetta kemur fram í fjár- lagafrumvarpi stjórnarinnar, er lagt var fram í morgun. Þar er lagt tiil, að aðstoðin við vanþróuöu ríkin verði aukin um 20%, og nemur hún nú ein- um milljarði sænskra króna. — Meira verður lagt að mörkum til Túnis, Kenya, Tanzaníu og Zambíu, en minni aðstoð en í fyrra veitt Eþíópfu, Indlandi og Pakistan. Norður-Víetnam fær sömu fjánhæð og í fyrra eða 75 miiljón sænskar krónur. Þriðj- ungur þeirrar upphæðar er stuðningur vegna hörmunga stríðsins, sem greiddur verður strax en hinn hlutinn á að fara tii uppbyggingar eftir stríðið í Víetnam og verður greiddur síö- ar. Þá er í athugun, hvort auka beri stuðning viö Kúbu., Einu nýju skattamir, sem frumvarpið gerir ráð fvrir, er 10% skattur á auglýsingar f blöðum og • tímaritum. Hiuti þeirrarar fjárhæðar, sem inn kamur af skattinum, á að fara til aö . styrkja sveitablöð, sem ilia standa.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.