Vísir - 18.01.1971, Síða 16
1
Skagfirðingctr
gefa 15 þúsund
kr. til byggingar
Hallgrímskirkju
Sýslusjóöur Skagafjaröarsýslu hef-
ur sent 15 þúsund krónur að gjöf
til Hallgrímsldrkju. Var þetta sam-
bykkt á síðasta fundi sýshmefndar.
„Sýslusjóðir og bæjarsjóðir hafa í
mörg hom að líta, þiví að ærin eru
verkefnin f öíllum landshlutum",
segir séra Jakob Jónsson. „En HaTl-
grimskirkja er fyrirtaeki allrar þjóð
arinnar í heild, og mundi muna mik
ið um, ef það yrði almennt að bæj-
ar, sýslu- og hreppsfélög hefðu nafn
hennar á sinni fjárhagsáætlun“,
segir séra Jakob. —JBP
Skýrslurnar, sem Einar Olgeirsson vildi láta brenna:
Borgardómur vísaði málinu
út af SlA-skýrslunum frú
Dómur hefur verið kveð
inn upp í Borgardómi
Reykjavíkur í máli, sem
reis upp af höfundarrétti
á svo nefndum „SÍA-
skýrslum“ og vegna út-
gáfu „Rauðu bókarinn-
ar“, sem Heimdallur
stóð að. — Var málinu
vísað frá dómi og máls-
kostnaður felldur niður.
Þar með er þó ekki lolkið
þessu máli, sem hófst reyndar
fyrir 8 árum, þegar birtusit i
blöðum bréf og skýrslur, sem
eignuð voru íslenzkum ung-
kommúnistum, er dvalizt höfðu
austan jámtjalds við nám. —
-------------------------!
Stefnendur málsins, þrir höf-
undar bréfa, sem birtir höfðu
verið kafiar úr í „Rauðu bók-
inni“, undu ekki þessari niður-
stöðu borgardóms og kærðu
hana tiil hæstaréttar.
Eins og menn muna var mik-
ið pólitískt veður gert út af
„SÍA-s'kýrslunum“, sem voru
bréf nokkurra félagsmanna úr
„Sósi'alista'félagi IsTendinga aust-
antjalds". Urðu um þau mikil
blaðaskrif, en í kjölfar þeirra
gaf Heimdallur, Péilag ungra
Sjálfstæðismanna, út „Rauðu
bókina — Leyniskýrslur SÍA —
Skýrslurnar, sem Einar Olgeins-
son krafðist að yrðu brenndar".
Ári eftir útkomu bókarinnar
höfðuöu 3 höfundar brélfanna
mál á hendur útgefanda bókar-
innar og kröfðust kr. 150 þús.
í höfundarlaun og kr. 50 þús.
í miskabætur — auk vaxta frá
1. júní 1963. Auk þess krölfðust
þeir þess, að hann yrði dæmdur
ti'l þyngstu refsingar fyrir brot
á lögum, sem fjalla um útgáfu
rita án leyfis höfunda, og um
hnýsni í bréf, skjöl og dagbæk-
ur, sem geyma einkamál manna
og fyrir ærumeiðingar með
móðgunum. Ennlfremur kröfðust
þeir þess, að útgáfan yrði gerð
upptæk og útgefandi yrði
dæmdur til þess aö greiða bæði
málskostnað og kostnað af birt-
ingu dómsins x öllum dagblöð-
unum.
Miálareksturinn stóð lengi
yfir eða frá 28. maí 1964 þar
til gagnasöfnun lauk f byrjun
nóv. s'l. og dómur féill í lok nóv.,
en þá var — eins og fyrr segir
— miálinu vísað frá.
í forsendum dómsins er sagt,
„aö stefnendur hafi eigi tii-
greint nákvæmloga og afmarkað
það efni bökarinnar, sem þeir
telija tiil höfundarréttar yfir“.
Slík afmörkun sé réttarfarsileg
nauðsyn og hefði þurft að liggja
ljó's fyrir þegar í upphafi máls-
ins. Þetta eitt sér leiði til frá-
vfsxmar málsins í heild sinni.
Einnig er það reifað, að ein-
stökum kröfuliöum sé álfátt, og
að líkur bendi til, að fleiri séu
semjendur efnisins, sem bókin
hafi að geyma, og hefði verið
eðlilegra að gefa þeim líka kost
á að gæta réttar síns í málinu.
Þó er tekið fram, „að það
þyki að vísu sýnt, að höfúndas--
réttur hafi verið brotinn á stefn-
endum málsmis að einlhverju
leyti. Á hi-nn bóginn Ihatfá eigi
nægjanlega verið sýnt fram á
þau sjónarmið, sem siik krafa
þarf að byggjast á og afla hefði
átt frekari gagna um fjáihasð
þeirrar kröfu, eff þvi var að
S'kipta“.
Eins og fyrr segir voru þessi
málaliok fcærð tJl hæstaréttar,
en úrsfcurðar hans er að vænta
nú í vikunni. •— GP
Flugstarfsemin
ótrufluð af verk-
föllum í sumar
Flugumsjónarmenn hafa samið, og hafa allir
flugliðahópar jbó gert samninga
Flugumsjónarmenn hafa samið
við vinnuveitendur sina, Flug-
félag Islands og Loftleiðir, um
kaup og kjör til 2 ára. Verður
samkomulagið, sem náðist fyrir
helgi, borið fyrir féiagsmenn á
fundi f dag.
Fkigumsjónarmenn eru alis milli
20 og 30 taisins og eru þeir nokk-
urs konar framkvæmdaaðili að flug
rekstrinum á jöröu niðri, skipu-
leggja flug og stjóma, en flugum-
ferðarstjórar eru aftur á móti þeir
kallaðir, sem stjóma flugumferð-
inni og eru þeir opinberir starfs-
menn. Er þessum starfsheitum oft
ruglað saman.
A'ilir aði'Iar innan flugfélaganna,
þ. e. fkigmenn, flugfreyjur, vélvirkj
ar og flugumsjónarmenn, hafa nú
samið um kaup og kjör. Ætti þwí
ekkert að geta stöðvað flugstarf-
semina 1 sumar, en flugfélögin sjá
fram á miklar annir í flugi, senni-
lega mun meiri en nokkm sinni
fyrr. — JBP
FRIÐRIK EINN
UM EFSTA SÆTIÐ
Og einn um ab vinna i 5. umferðinni
Friðrik Ólafsson vann þriðja
Hollendlnginn á skákmótinu í Bev-
erwijk í Hollandi í gær. Það var
fimmta umferöin, sem tefld var og
Friðrik var sá eini sem fór með
sigur af hólmi f þeirri yfirferð.
Allar hinar skákimar enduðu með
íafntefli. Friörik heldur því efsta
sætlnu. Hann hefur 4 vinninga. —
Næstur kemur Anderson með 3 >4
Þá Gligoric og Ikov með 3. Friðrik
gerði jafntefli við Ikov í fjórðu um
feröinni, en næst á hann að tefla
við Kortsnoj og Petrosjan, svo að
búast má við að róðurinn fari að
þyngjast. Þessar margreyndu kemp
ur hafa reyndar orðið að láta sér
nægja 7—11 sæti í mótinu til þessa
ásamt öðrum og gefur þaö góða
hugmynd um hörku mótsins. — JH
s
Margir kunnir borgarar, konur og karlar, mætt u í gærdag til að skokka og allir voru ákveðn-
ir í að mæta á æfingarnar í framtíðinni. Frúr á fínum pelsurn og karlar í mokkaúlpum, aliir
lögðust niður og framkvæmdu þær æfingar, sem þjálfarinn fyrirskipaði.
Skokkað í Garðahreppi í gærdag
í gær komu saman í Garða-
hreppi um 200 manns á skokk
æfingu. Tildrög að stofnun fé-
lagsins voru þau að ungmenna
félagið. Stjarnan í Garöahreppi
sá um að dreifa miðum í húsin,
sem hvöttu íbúa hreppsins til
þess að koma á þennan stofn-
fund félagsins. Blaðið hafði sam
band við Jóhann H. Níelss. fram
kvæmdastjóra Hjartaverndar, —
sagðist Jóhann ætla að hjálpa
þeim að koma þessu af stað, einn
ig sagði hann að mörg félög í
Garöahreppi mundu standa að
þessu. Fólk á öllum aldri var
þarna saman komið, en Jóhann
sagði að mikið heföi boriö á
þvi að hjón hafi komið með
börn sín á þessa skokkæfingu.
Lítið var um að eldra fólkiö
tæki þátt i þessu. Fyrst um sinn
munu allir skokka saman en
siðar stendur til að greina i
aldursflokka og kyn. Til þess
að byrja með verður skokkað á
íþróttavellinum. Æfingar verða
á mánudögum kl. 18.30, mið-
vikudögum kl. 18, föstudögum
kl. 18 og sunnudögum kl. 11.
Formaður Stjörnunnar er Ein
ar Guðjónsson, en þjálfari er
Júlíus Árnason íþróttakennari.
— ÁS
t