Vísir - 25.01.1971, Síða 1
VISIR
61. árg.— Mánudagur 25. janúar 1971. — 19. tbl.
Bíða rólegir á strand-
stað þar til flæðir að
Vélbáturinn Katrín frá Hafnar-1 um borð og ætla aö bíöa rólegir,
firði strandaði i ósnum í Grinda- þar til fellur að. Reiknaö er með
vík í morgun og situr báturinn að báturinn náist út á fióöi, sem
þar enn. Skipverjamir eru enn verður klukkan fimm í dag.
>•••••••••<
Seldi saxað lárviðarlauf
á skemmtistað sem hass
Katrín er 12 tonna bátur, gerð-
ur út frá Grindavík og var að fara
| í róður, þegar óhappið varð í morg-
un. Báturinn er ekki í neinni hættu,
þar sem hann situr þarna í inn-
siglingunni. — JH
— en oðe/ns e/nn vildi verba vibskipta-
vinur hans \
Sautján ára piltur var
handtekinn á laugar-
dagskvöld í einu dans-
húsi borgarinnar, þar
sem hann var að bjóða
mönnum hass til sölu. —
Fann lögreglan í fórum
hans nokkurt magn af
duftinu, sem hann hafði
þegar selt einn skammt
af á kr. 200.
En f Ijós kom, þegar að var
gáð að duftið var ekki hass. Held
ur var þetta LÁRVIÐARLAUF,
hakkaö niður og smásaxað í
duft.
Gaf pilturinn síðan lögregl-
unni þá skýringu á gerðum sín-
um, að hann hefði gripið til
þessa hrekfcjábragðs í peninga-
vandræðum. Hafði hann ferið í
eldhússkáp móður sinnar, fund
ið þar lárviðarlauf, hakkað það í
smátt og síðan far.ið á stúfana
og boðið þetta til sölu sem hass
— viss um að fá einhverja kaup
endur.
Pilturinn var látinn laus aftur,
en mál hans verður athugað nán
ar. —GP
Friðrik
tapaði fyrir
Gligoric
Friðrik Ólafsson tapaði skák
sinni á móti Gligoric í 10. umferð
skákmótsins í Hollandi. Sviinn
Anderson er nú efstur á mótinu
með 7 vinninga. Friðrik, Ivkov og
Korchnoj hafa 6*4 vinning. I gær
höfðu skákmennimir frí, en ellefta
umferðin verður tefld í dag.
Önnur úrsiit i 10. umferð urðu
þau að Ivkov og Korchnoj gerðu
jafntefli. Anderson vann Mecking,
Najdorf og Lengyél gerðu jafntefli.
Orslit fengust ekki úr fleiri skák-
um. — JH
Lögreglurannsókn
hjá 4 minkabúum
/frekuð alvarleg brot
• Minkamálið er nú komið til
Iögreglurannsóknar hjá bæj-
arfógeta Hafnarfjarðar og bein-
ist rannsóknin að fjórum minka-
búum, að Lykkju, Skeggjastöð-
um, Akranesi og Hafnarfirði.
Ætlunin er að gera mjög ýtar-
lega rannsókn, ef það mætti
verða til þess að upplýsa, hvað-
an minkurinn, sem felldur var
að Daismynni á Kjalarnesi,
slapp.
Auk rannsóknarlögreglu Hafnar-
fjarðar rannsakar veiðistjóri,
varða leyfissviptingu
Sveinn Einrsson, þetta mál, en að
því er hann sagöi í viðtali við
Vísi í morgun hefur ekkert komið
fram, sem getur upplýst það. Þó
telur hann, að Fjarðarminkur hf.
í Hafnarfirði, sem keypti minka frá
Lykkju á Kjalaroesi 1 haust bafi
verið iosaöur undan grun. Búið
keypti 300 minka í haust. 294 af
þeim eru enn lifandi, en búið gat
lagt fram hræ hinna 6, sem á
vantaði.
Fyrir brot á öryggiseftirliti hjá
búunum eiga þau að greiða 2—20
þús. kr. sektir, en ítrekuð alvarleg
brot varða leyfissviptingu. — VJ
Landakotsspítali
fói sömu meðferð
og aðrir spítalar
■ Daggjaldanefnd hefur verið
falið mál Landakotsspítala
til meöferðar eftir að rekstr-
arhalli Landakotsspítala
hafði verið til umræðu af
borgarráði.
■ Jón 'Phors formaður Dag-
gjaldanefndar sagöi í viðtali
við blaðið í morgun, að enn
hefði ekki verið tekin á-
fevörðun hvernig spítölunum
verði gneitt og kvað hann
Landakotsspítala vera í sömu
aðstöðu og aðrir spítalar og
fá væntanlega sömu meðferð
og þeir. —SB
Viðurkenndi að hafa selt áfengi
Rannsókn er nánast lokið vegna
næturklúbbsins í Laxnesi, sem lög
reglaHafnarfjarðar gerði húsleit hjá
fyrir viku, og var forstöðumanni
klúbbsins sleppt úr haldi á laugar
daginn eftir að hafa setið í gæzlu
í 6 daga
Viðurkenndi forstöðumaðurinn í
yfirheyrslum að hafa selt áfengi í
klúbbnum, og liggja upplýsingar
fyrir um að allverulegt magn af
áfengi hefur verið selt þar þann
tíma, sem klúbburinn hefur verið
starfræktur frá því í haust.
Nær 40 manns hafa verið yfir-
heyrðir vegna máls þessa.
KLúbburinn var rekinn í húsa-
kynnum, sem ætluð voru sem fé-
Hvað segja
landsmenn um
hundahaldið?
— sjá bls. 9
lagsheimili fyrir golfklúbb og hesta
mannafélag. I ijós hefur þó komið
að golfklúbburinn hefur efeki veriö
stofnaður ennþá, þótt það hafi ver-
ið fyrinhugað. Hestamannafélagið
reyndist vera einkafyrirtæki for-
stöðumannsins rekið undir firma-
heitinu, „Hestamannafélagið
Neisti“.
Gögn málsins verða nú send sak-
sóknara ríkisins til ákvörðunar um,
bvort til mál-shöfðunar kemur. -GP
Gegn mengun
— eða hvað?
Mengun er orð, sem heyrist
nú æ oftar, og eflaust hafa
flestir séð mengunargrímur þær
sem fólk i stórborgum erlendis
þarf að hafa við höndina eftir
nokkur ár, ef ekki verður stór-
felld breyting á mengunarmálun
um.
Pilturinn á forsíðumyndinni
okkar er með grímu, sem er
reyndar ekki ósvipuð, en hins
vegar er þessi gríma ekk-i sett
upp í því skyni að verjast óhrein
indum nútímans. Hanzkamir
voldugu eru heidur ekki ætlaðir
til að verjast geisiavirkum efn
um eins og þeim, sem nú vaða
uppi við ýmsan iðnað.
Þetta er ungur Akureyringur
með sítt bítlahár. Hann og fé-
lagar hans komu til Reykjavíkur
um helgina og unnu bæja-keppn
ina við Reykjavík með taisverð
um m.un Nánar um íþróttir helg
arinnar á bls. 4, 5 og 6.