Vísir - 25.01.1971, Side 16
ISIR
Mánudagur 25. janúar 1971.
I
LSD-töfl-
urnar voru
bara gabb
Maðurinn, sem handtekinn
var aöfaranótt föstudags fyrir
að hafa boðizt til að útvega LSD
töflur fyrir 30.000, hefur viður-
kennt við yfirhejrrslur að hafa
boðið töflumar til sölu.
Einn gesta í danshúsi, þar
sem maðurinn hafði boðið töfl1'
urnar, haföi vísað fögreglunni á
manninn og sagt henni af til-
boðinu, sem honum hafði ver-
ið gert. Hafði hann mælt sér
stefnumót við LSD-salann um
kl. 2 þessa nótt á Amarhóli.
Eins og sagt var í frétt Vísis,
umkringdi fögreglan stefnumóts
staöinn, en enginn kom. Hins
vegar var hinn grunaði hand-
tekinn, þegar hann kom á fög-
reglustöðina þessa nótt.
Við yf'rhevrslur hefur hann
sagt, að hann hafði aðeins verið
að gabba þennan mann og hann
hafi ekki boðið fleirum. Segir
hann, að sér hafi fundizt mað-
urinn, sem hann bauð að útvega
LSD-töflumar, verið svo ákaf-
ur, að hann hafi séð sér ieik á
borði til þess að láta manninn
fara fýluferð um hánótt upp á
Amarhól. En hann hafi ekki ætl
að sér, né heldur getað staðið
við tilboð sitt
í fórum hans hafði fundizt
lyfjaglas með taugaróandi töfl-
um, sem hann hafði fengið úr
apóteki daginn áður. í glasinu
fundust 14 töflur, en £ því höfðu
verið 50 töflur í upphafi. Eina
töflu, tvisvar á dag átti sjúkl-
ingurinn aö taka, eftir þv£ sem
stóð á glasmiöanum. Pilturinn
gaf þá skýringu á þvf, hve mik-
ið hefði gengið á töflurnar, að
hann hefði verið svo óheppinn
að missa úr glasinu daginn áð-
ur. — GP
I vélsmiðju Óla Olsen í Njarðvíkum liggur við að mikinn vilja styrk þurfi til að halda áfram að reykja, en það gera aðeins
tveir starfsmenn fyrirtækisins Öm Gíslason er annar þeirra, t. h.. T. v. er Gunnar Sigurðsson, formaður bindindisklúbbsins.
Ekki hlaupið að því að
byría að reykja aftur
— Ellefu starfsmenn i Véismibju Ó. Olsen
i Njarðvikum standa uppi með 44 þúsund
krónur i vasanum eftir þriggja mánaða
bindindi — Enginn hefur enn sætt refsireglum
Það er sjálfsagt fyrir unga
menn, sem ekki þoia að
reykja, að hætta því bara,
sagði Örn Gíslason, einn af
fáum starfsmönnum hjá vél-
smiðju Óla Ólsen í Njarðvík-
um, sem hefur „haldið það
út“ að reykja. Sameiginlegt
bindindi starfsmanna fyrir-
tækisins hefur nú staðið hátt
á þriðja mánuð og eliefu
standast enn aiiar tóbaks-
freistingar að sögn formanns
bindindiskiúbbsins, Gunnars
Sigurðssonar.
Sjóðurinn, sem bindindismenn
irnir borga reglulega £ er orðinn
44 þúsund að sögn Gunnars og
sagði hann þó að aðferðir hins
opinbera hefðu ekki verið not-
aðar viö innheimtu. Þvert á móti
hefði verið séð í gegnum fingur
við menn, þegar þeir gátu ekki
borgað sfn framlög vegna heim-
ilisútgjalda og þess háttar. Aft-
ur á móti leyfir tóbaksnautnin
sjaldnast slika undanlátssemi.
— Maður hefur heyrt um þaS,
sagði Gunnar að þaö sé önnur
hver manneskja hér i Njarð-
vikum að hætta að reykja og
viöa virðist vera áhugi fyrir
því hjá fóiki að hætta þessu.
Framtak þeirra vélsmiðju-
manna er orðið landsfrægt, en
þeir hafa þann hátt á að sá
sem kann að svíkjast undan
merkjum, er dæmdur í fjár-
sektir.
Þessari heimild í reglum
klúbbsins hefur ekki veriö beitt
ennþá að sögn Gunnars. Þeir
sem hugsa sér að byrja reyking-
ar aftur verða að tilkynna það
með hálfs mánaðar fyrirvara —
og halda bindindiö þann hálfa
mánuð. Svo að segja má að ekki
sé hlaupið aö þvi að byrja aftur
að reykja fyrir eliefumenning-
ana.
Tveir af þeim sem stofnuðu
klúbbinn hafa byrjað að reykja.
Annar þeirra reykir enn. Hinn
sá sig um hönd og sneri frá
sinni tóbaksvillu.
Að sögn Róberts Svavarsson-
ar, verzlunarstjóra £ kaupfélags-
búðinni í Njarðvikum dró veru-
Iega úr tóbakskaupum fólks við
síöustu hækkun á tóbaki, og
öllu meira en gert hefur við
undangengnar verðhækkanir.
Hins vegar taldi hann naumast
meira um bindindishugleiðingar
þar i plássi heldur en víðast
hvar annars staðar.
Andrés Alexandersson, í
tóbaksbúðinni London, sagði
sígarettukáup hafa minkað nokk
uð dálítinn tíma eftir hækkun.
Nú væri þetta komið í sama
farið. Pípusala -hefði hins vegar
aukizt mjög. — JH
n
Lögreglan sá
við öllum inn-
21 T0ÚARI
STÖÐ VABUR
Þingmenn komnir j
úr jólnleyfi
Alþingi kemur saman í dag eft-
r jóialeyfi í um fimm vikur. Á
dagskrá eru aðeins æðarrækt og
varnir gegn sígarettureyking-
um. — HH
: / gönguferð
\ með byssu
j / hendi
* um hánótt
O
<#
® Maður með tvfflileypta hagla-
f byssu í hendi sást á gangi í
\ Sæviðarsundi um hánótt, eða kl.
(c tíu mínútur yfir tvö aðfaranótt
c laugardagsins. Maöur, sem
l mætti honum þarna á gangi,
r sagði lögreglunni, að byssu-
< maðurinn hefði gert sig líklegan
(til þess að miða á sig byssunni.
e Sá hann manninn síðan ganga
r upp i Skipasund, en þar hvarf
4 hann sjónum. Leitaði lögreglan
o mannsins, en fann hann hvergi.
br ot sþ j óíuniim
— Alls sex ungir menn staðnir að verki
við innbrotstilraunir
Varla líður svo helgi, að ekki
séu framin nokkur innbrot hér í
Reykjavík, en svo brá við um
þessa helgi, að lögreglan hand-
samaði þá innbrotsþjófa, sem á
kreiki voru, ýmist áður en þeir
hófu iðju sína eða þá í sömu
mund.
Þannig voru þrír 14 og 15 ára
gamlir piltar handteknir vestur á
Fálkagötu aðfaranótt laugardags,
þar sem lögreglunni hafði verið
vísað á, að þeir væru undir áhrif-
um áfengis. Fundust þá á drengj-
unum innbrotsáhöld og viður-
kenndu þeir að hafa ætlað að
brjótast inn um nóttina. — Síðar
kom í ljós, að þeir höfðu gert til-
raun til þess að brjótast inn í
brauðbúð á Fálkagötu, og hafði þá
sézt til þeirra. Fjórði pilturinn var
með þeim, en hann slapp burtu.
Enn einn piltur var handtekinn
þar sem hann var að brjótast
inn í mjólkurbúðina á Hjarðarhaga
49. Var hann staðinn að verki á
innbrotsstaðnum. Hann var fluttur
á upptökuheimilið' í Kópavogi, þar
sem hann • verður, þar til búið
verður að .fjalla um mál hans.
. Undir morgun á laugardag voru
tveir menn um tvítugt staðnir aö
því að brjótast inn í Söebechs-
verzlun við Háaleitisbraut. Náðust
mennirnir báðir og voru hnepptir
í varðhald. — GP
Sáttafundur ekki boðaður
Nú hefur 21 togari stöðvazt í
verkfalli yfirmanna togaraflotans,
aðeins þrír þeirra eru enn á veið-
um og er reiknað meö aö tveir
þeirra stöðvist innan skamms, Úr-
anus og Egill Skallagrímsson og
verður Narfi þá einn á veiðum, en
hann hefur aðstööu til að frysta
aflann.
Nýr sáttafundur hefur ekki veriö
boðaður, en sá síðasti var haldinn
s.l. fimmtudag. Virðist af þessu,
að mikil samningstregða sé í deil-
unni, en 10 dagar höföu liðið á
^milli fyrri sáttafunda.
Farmanna og fiskimannasam-
bandið hélt almennan félagsfund í
gær til að skýra frá gangi samn-
ingaviðræðnanna. Fundurinn lýsti
yfir trausti við samninganefndina
og samþykkti, aö nefndin héldi sig
við upphaflegar kröfur sem eru
um 50%. — Þess má geta, að yfir-
mennirnir hafa fengið um 52%
hækkun fiskverös á nýliönu ári auk
15 prösent hækkunar á fastakaupi,
þegar almennu kjarasamningarnir
voru geröir í júní s.l. — VJ