Vísir - 26.01.1971, Blaðsíða 3
V1SIR . Þriðjudagur 26. janúar 1971.
I MORGUN UTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND
■ : : o.
Umsjón: Haukur Helgason:
Gasklefinn eða ævi-
langt fangelsi l
i
Manson og tvær stúlknanna sek um sjö
morÓ — ein stúlkan um tvö morð
Charles Manson og þrjár
stúlkumar úr „fjölskyldu“
hans vöru fundin sek um
morð að yfirlögðu ráði. —
Þau biðu brosleit eftir úr-
skurðinum, en brosið
hvarf, þegar dómarinn til-
kynnti úrskurð kviðdóm-
enda. Manson lauk þessum
hávaðasömu réttarhöldum
með ákæru á dómarann,
sem Manson sagði að hefði
„hindrað hina ákærðu í að
verja sig“.
„Þetta mun alla tíð hvfla á sam
vizku þinni“, kaltaöi hann, þegar
hann og stúlkumar voru leidd út.
Við réttarhöldin, sem stóðu í sjö
mánuði, var því haidið fram, að
Manson væri foringi „fjölskyldu",
sem hann hefði fuMkomið vald yf-
ir. Sum vitnanna fullyrtu, að þau
Manson var reiður vegna „mistaka“ við framkvæmd morðanna
á Sharon Tate og vinum hennar, svo að hann fyrirskipaði tvö
í viðbót. — Kviðdómendur í Los Angeles fundu Manson sekan
um að hafa lagt á ráðin um morðin og fyrirskipað „fjölskyldu“
sinni, sem trúði á hann í blindni að framkvæma þau. Á þessum
forsendum telja kviðdómendur, að Manson sé, ef eitthvað er, sek-
ari en þau, sem morðin framkvæmdu með eigin hendi.
hefðu trúað því statt og stoðugt,
að Manson væri Kristur og ailt,
sem hann mælti, væri sannleikur.
„Fjölskyldan" bjó saman á búgarði
utan viö Los Angelesborg. — Hún
hafOi ofan af fyrir sér með smá-
þjófnaði, tíndi mat úr rusiatunnum,
auk þess, sem þau höfðu haft ein-
hverja peninga áður.
Aðalvitni ákæruvaldsins var
Linda Kasabian 21 árs. Hún haföi
verið í „fjölskyldunni" og farið
með hópnum í moröförina til húss
Sharon Tate, en hún segist ekki
hafa myrt neinn. Henni var lofaö,
að mál yröi ekki höfðað gegn henni,
og þá bar hún vitni gegn Manson
og hinum stúikunum.
Margt benti til dýrslegrar grimmd
ar hinna ákærðu.
Susan Atkins var kölluð blóð-
sugan, því að vitni skýrði frá,
hvernig hún hafði bragðað blóð
Sharon Tate, eftir að Susan hafði
.stungið leikkonuna. Leslie van
Houten átti að hafa sagt, hversu
mjög hún Iiefði skemmt sér viö
morðin í íbúð Sharon Tate.
Linda Kasabian sagði, að Man-
son hefði orðiö ævareiður yfir „mis
tökum" við morðin I íbúð Sharon
Tate, og hefði hann því fyrirskipað,
að kaupmaðurinn La Bianca skvldi
myrtur og kona hans. Linda skýrði
frá eiturlyfjaneyzlu og hópkynlífi
í búðunum hjá Manson.
1 dómunum í gær voru Charles
Manson og tvær stúlkurnar, Susan
Atkins og Patricia Krenwinkel, —
fundin sek um morð aö yfirlögðu
ráði á leikkonuftni Sharon Tate og
sex öðrum í ágústmánuði 1969.
Leslie van Houten var einnig sek
fundin um morð að yfirlögðu ráöi
á kaupmanninum La Bianca og
konu hans nóttina eftir Tatemorð-
in.
Manson var fundinn sekur um
að hafa lagt á ráðin um morðin og
gefið fyrirskipanir um þau.
Þau eiga öll dauðarefsingu á
hættu, og verður síðar úrskurðaö
hvort þau veröi dæmd til dauða
eða í ævilangt fangelsi. Verði þau
dæmd til dauöa, yrðu þau líflátin
í gasklefanum í San Quentinfangels
inu.
Dómur er loks fallinn um morðið á leikkonunni Sharon Tate, sem
var myrt í ágúst 1969.
783 særðum stríðs-
föngum sieppt
© Ríkisstjórn Suöur-Vietnam til-
kynnti í morgun, að látnir yrðu
lausir allir beir 783 stríðsfangar í
Jandinu, sem særðir eru eða sjúkir.
Verði fangarnir scndir heim til
Norður-Víetnam, þótt stjórn N-Víet
nam mundi ekki gjalda í sömu
mynt.
© Tran van Lam utanríkisráö-
herra sagði á blaöamannafundi
að hann voni. að N-Víetnamar
muni nú láta lausa alla særöa
bandaríska og suöur-víetnamska
stríðsfanga, sem þeir hafa i haldi.
© Ráðherrann sagði, að fangar
S-Víetnama heföu verið látn-
ir lausir fyrr, et stjórn N-Víetnam
heföi sýnt samstarfsvilja. Norður-
Víetnamar hafa ekki viðurkennt op
inberlega, að neinir hermenn frá
þeim berjist í Suöur-Vietnam.
© Saigonstjórnin segir, að þeir
fangar sem ekki vilji fara aftur
ti! N-Víetnam, muni ekki verða
sendir þangað. Segir stjórnin, aö
stríðsfangarnir vilji fá 'tryggingu
fyrir góðri meðferð í Norður-Víet-
nam, ef þeir verði sendir þangaö.
® Síðan janúar 1966 hafa Suður-
Vietnamar sleppt samtais 226
særöum stríðsföngum. 37 N-Víet-
namar voru látnir lausir fyrir
tveimur dögum.
ifVWAAAAAAA/WAAAAAAAAAA/WAA/VSAAA/WSAAAAAAi
Hengingarnar
eins og „kjöt-
kveðjuhátíð“
58 líflátnir í Gineu
58 af þeim 92, sem dæmdir voru til dauða fyrir þátttöku
í misheppnaðri innrásartilraun í Afrikuríkið Gíneu, voru líf-
látnir í gær.
Útvarpið í Gíneu segir, að þeir hafi verið hengdir. Hafi heng-
ingarnar farið hátíðlega fram og verið eins og „kjötkveðju-
hátíð“. Fólk hafi skemmt sér konunglega, hrækt á hina
dæmdu og kastað í þá grjóti.
Þetta voru allt Afríkumenn. Fimm karlar og ein kona með-
al hinna líflátnu, höfðu áður haft starf í ráðuneytum.
70 FÉLLU I OGANDA
HnefaleikamaBur steypti Obote
Að minnsta kosti 70 féllu
í bardögum í Úganda í
gær. Friðsamlegt var í
landinu í morgun, og virt-
ist hin nýja stjórn trygg í
sessi.
Skothríð heyrðist í höfuðborg
Úganda, Kampala, í nótt, en þar
höfðu herforingjar tekið völdin f
gær. Al'lt benti til þess, að almenn-
ingur styddi nýju stjórnina.
Fyrrverandi fal'lhlífarhermaöur,
sem nú í ár var meistari í hnefa-
leikum (þungavigt) varö 1 gær
æðsti maður Úganda, eftir að
Obote forseta haföi verið vikið frá.
Hinn nýi ieiðtogi, Idi Amin,
fæddist árið 1925. Hann var í
þungamiöju átakanna árið 1966,
þegar Mutes konungi var stevpt af
stóli. Þá barðist Amin viö hlið
Obote sem tók öll völd.
Amin er af Kakwa-ættflokki. —
Hann var einn fyrstu innfæddra,
sem hlutu liðsforingjatign í hern-
um. Hann varð höfuðsmaöur árið
1962, sama ár og Úganda varð sjálf
stætt rfki, Á stríðsárunum haföi
hann verið i brezka hernum f
Burma.
Hermenn f her Úganda dýrka
Amin vegna líkamiegs atgervis
hans og vingjarnlegrar og glaðlegr-
ar framkomu
Milton Obote sem nú hefur vik-
ið úr sessi. var f nótt í „luxus-
hóteli“ f Nairobi i Kenfa. Hann og
ráðunautar hans fhuguðu, hvað ti'
bragðs skyldi taka. Sagt er, að
Obote muni fara til Zambíu og
setjast þar að fvrst um sinn. Hann
kom í gær til Kenfa frá Singapore.
bar sem hann hafði setið brezku
samveldisráðstefnuna.
Fagnandi mannfiöildi hljóp um
götur Kampala f Úganda í gær og
eföddust menn vegna stjórnarskipt
anna.
Valdataka herforingja var yfir-
lýst f útvarpi. eftir tólf klukku-
stunda skothríð f Kampata í gær.
Bardagar urðu milli ýmissa her-
deilda.
WVWSAA^/S/SAA/WNA/WVWWSA/V/WVNAA/WWWVW