Vísir - 29.01.1971, Side 5

Vísir - 29.01.1971, Side 5
 sý'rf'Á-’t. Reykjavík og Hafnarfjörftur keppa bæjakeppni í handknatt- leik á sunnudaginn i Laugardals- hölKnni. VerSur leikurinn háftur þegar aft Ioknum leik Fram og ung- versku stúlknanna úr Ferencvaros, en það verftur síðari leikur liftanna í Evrópubikarkeppninni. Þá munu unglingaliö Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar leika bæjarkeppni. Lið Reykjavíkur hefur verift val- ið, en lið Hafnarfjarðar verður valift á morgun. Reykjavíkurliðið er þannig skipað: Ólafur Benediktsson, Val, Emil Karlsson, KR, Sigurbergur Sig- teinsson, Fram. Biarni Jónsson, Val, Sigfús Jónsson, Víking, Sigurður Einarsson. Fram. Ólafur Jónsson. Val, Guðión Mawússon, Víking, Brynjólfur Markússon, ÍR. Jón Karlsson, Val, Ágúst Svavarsson ÍR, Georg Gunnarsson Víking. Reykjavíkurmóf í innanhússknattspyrnu Pdenia v'^&kacs er bér brögðum sé faeitt etns iiui á Knu, lágvaxin en sterk og vel þjálfuð. Jafnvel þótt belli- sést, kom ekkert í veg fyrir mark. A morgun, laugardag, verðui haldiö Reykjavíkurmót i innanhúss- knattspymu í Laugardalshöllinni. Mótift hefst kl. 15.00. Keppt verður i meistaraflokki og senda Ármann, Fram, K.R., Valur, Víkingur og Þróttur eitt lið hvert. Verður leikið 2x7 mín. og leikið einföld stigakeppni alls 15 leikir. Mótinu lýkur sama dag. Verður keppt1 um bikar. sem K.R.R. hefur gefið ti! mótsins, en þetta er í annað sinn, sem Reykja- víkurmót f innanhússknattspyrnu er háð. Fyrsta mótið var haldið í Hálogalandsn ' in. 1955 uy leikió i 4 aldursflokkum Bar K.R. sigur úr býtum 1 öllum flokkum. Sic transit gloria mundi Röð leikianna verður: 1. um Vikinour-Valur, Þróttui" Ármann K R 'Fram 2 umf,- Viki“'"”"t>rðttur, Valur- Fram. Ármann:K.R 3. umf.: Víkineu>:Fram, Valur: Ármann, Þróttur:K.R. 4. umf.: Fram:Ármann, Valur: Þróttur, Víkingur:K.R. j 5. umf.: Þróttur:Fram, Vfkingur Svona djúpt sokknir erum við þó — eða hvað? Fmmstéíkwnar áttu lélegar ftlraunir gegn þeim ungversku — 5:21 i gærkvöldi SANNAMÆGA var það létt verk fyrir ungversku síúlkumar úr Ferencvaros að sigra ungu Framstúlk- UMKur í fyrri Jeik lrðanna í Evrópafetkarkeppmnni í gærfcviMÖi. Sjaldan hafa ís- ienækir áhorfendur horft á eins mikia yfirburði í út- haldi og Kkamsþjáifun og þann mtm, sem á liðunum var. Það er síæmmst frá að segja, að ungversku stúlk- urnar gjorsigruðu okkar stúlkur, og lengi var engu tíkara en það yrði eina „spennandiM hlið leiksins, hvort Fram tækist yfirleitt að skora mark. Það tókst þó eftir 18 mínútna leik, en þá voru eftir 7 mínútur af fyrri hálfleiknum og staðan var 6:1 fyrir Fer- encvaros. Greinrlegt var að Framstúlkurnar mættu til leiks fullar af vanmáttar- kennd. Þær léku allhratt og nokkuð örugglega — en langt fyrir utan ungversku vörnina, sem átti ákaf- lega náðugan dag, þvf ógnun var varla til í leik íslenzku stúlknanna. Leikur Framstúlknanna var greini- lega til þess fallinn að þreyta liðið, enda virtist sú raunin á. Þegar líða tók á leikinn kom það í ljós, að Framstúlkurnar voru yfir sig þreytt ar, misstu knöttinn t.d. hvað eftir annaö út af vellinum, eða til ung- versku stúlknanna, sem hófu þá þegar gagnsókn. Fyrstu 6 mörk leiksins stkoruðu Ferencvarosstúl'kumar. — sem þegar í byrjun sýndu að þær eru sannarlega valkyrjur, enda þótt þær séu yfirleitt lágvaxnar. Hins vegar er greinilegt að sú þjálfun, sem stúlkurnar hafa fengið, er af allt öðrum toga spunnin, en sú þjálfun, sem íslenzkar stúlkur fá. Þá var það Framliðinu lfka til vandræða að hafa ekki sína beztu stúlku, Amþrúði, með sér í þessum átökum. Það vantaði allan frum- kraft, öll skot, feimnin var of á- berandi, og þær fáu tilraunir, sem stúlkurnar áttu, voru allt of fupi- kenndar og feimnislegar. Það Var rétt eins og Framstúlkumar væru alitaf að biðja þær ungversku af- sökunar á tilveru sinni. Mörkin urðu þó 5 hjá Fram, 3 eða 4 þeirra voru þó sannarlega ekki mjög góð, en aftur á móti var markvarzla Ungverjanna alveg til fyrirmyndar. Markvörðurinn María Berzsenyi var einna líkust akro- batik-listakonu milli stanganna. I hálfleik var staðan oröin 10:2. I seinni hálfleik hélt sama sagan áifram. Ungversku stúlkurnar héldu uppi svipuðum yfirburðum, og greinilegt var á leik liðsins, að þar er varla nokkurn veikan punkt að ræða, enda þótt tvær eða þrjár stúlkur skeri sig óneitanlega nokk- uð úr. Lokastaðan varð 21:5, eitt stærsta tap islenzks kvennaliðs BPlaust munu Framstúlkumar berjast betur á sunnudaginn, — og ekki er ég í efa um aö þær munu gera mun betur. Svona djúpt emm við þó ekki sokkin. Að visu má reikna með tapi, en tölurnar ættu ekki að þurfa að vera verri en t.d. 15:7, eða eitthvað í líkingum við það. Af ungversku stúlkunum bar langmest á Peteme Takacs, Amalía Sterbinsky og Lazzlone Szoke. Sú síðastnefnda skoraði 6 mörk, Takacs var markhæst með 7 mörk, Sterbinsky með 4. Sænsku dómaramir, sem dæmdu þennan leik áttu alveg einstaklega náðugt kvöld. Ekki sem verst vetr- arfríi, sem dönsku dómaramir af- söluðu sér á dögunum. — JBP María hin ungverska var eins og fjölleikalistamaður í markinu Reykjavik — Hafnarfjörður: Bæjakeppni í handknattleik á sunnudaginn

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.