Vísir - 03.02.1971, Qupperneq 5
V 1 S 1 R . Miðvikudagur 3. febrúar 1971. .\
Stórkostleg auðæfí
££
segir Sverrir Runólfsson um Þorskafjörð
„Hér í Þorskafirði hef ég séð
þvílik auðæfi, að það er ekk-
ert vafamál, að það muni borga
sig að beizla fjörðinn — ef
bændumir hér, landeigendurn-
ir, sjá sér ekki fært að kaupa
alla hluti'na í væntanlegu hluta
félagi, þá mun ég kaupa sjálfur
þá sem eftir verða. Þetta er
stórkostlegt hér“, sagði Sverrir
Runólfsson í samtali við Vísi
í gær.
Var Sverrir yfir sig hrifinn af
því sem hann hefur séð þar
vestra undanfarna daga, en þar
er hann á ferð með Magnúsi Ól-
afssyni, fyrrverandi verkstjóra
hjá Vegagerðinni, en Magnús er
ættaður frá Botni í Patreksfirði
og sagði Sverrir Runólfsson, að
Magnús væri upphafsmaður
þeirrar hugmyndar, að gera garð
fvrir mynni Þorskafjarðar og
hefja þar fiskirækt.
„Hann Magnús hefur þraut-
hugsað þetta mál siðast'.iðin 4
ár. Hann er kunnugur öttum að-
stæöum, og veit vel hvað hann
er að segja. Við höfum nú geng
ið á ís yfir Þorskafjöröinn, og
hér eru aWar aðstæður eins og
bezt verður á kosið. Jarðhiti er
hér á tveimur stööum, þ. e. í
Djúpadal fyrir norðan fjörðinn
og að Laugalandi fyrir sunnan
hann.“
Sagði Sverrir að kæmi tH
mála að girða af nyrzta fjörðinn
eða víkina, inn úr hinum eigin-
lega Þorskafirði, eða þá að
byggja garðinn þvert fyrir alfan
fjörðinn.
Sverrir hafði fyririiugað að
fara vestur til Bandaríkjanna að
kaupa vegagerðarvól, slika sem
hann hefur hvað mest kynnt hér
á landi, en í gær sagði hann,
að vestur færi hann ekiki fyrr en
eftir vi'ku — „ekki fyrr en geng
ið er frá þessum málum hér,
bændurnir verða að fá 100%
tryggingu fvrir þvi að þeir
standj ekki höllum fætj vegna
þessara framkvæmda“, sagðist
Sverrir síöan ætla að safna und
irskriftum bænda á skjal, þar
sem skorað væri á Alþingi að
sýna fiskiræktarmálinu velvilja
og veita þvi stuðning. Sverrir
mun annars ætla sér að hjáipa
til með fjármagnsútvegun vest-
ur í Bandarikjunum. — GG
wvw
Hringprjónavél fil sölu
margir munsturmöguieikar. Einnig töluvert mag« at
stretch-garni 2/70—26.
Tilboð sendist augl. Visis merkt „1269“ fyrir 6. febr.
Ford station árg. 7965
(Country Squire) til sölu ef viðunandi tiiboö fæst. —
8 cyi. sjálfskiptur, powerstýri og powerbremsur. Bili-
inn er allur sem nýr, í sérflokki, htið ekinn. —• Uppl.
í shna 85040 og 35051 á kvöldin.
Laus staða
Utanríkisráðuneytið óskar eftir stúlku til véi-
ritunar, bókhalds og afgreiðslustarfa. Æski-
legt er, að umsækjandi hafi verzlunarskðla-
próf eða sambærilegt próf erlendis frá. Góð
tungumálakunnátta og lei'kni í vélritun nauð-
synleg. Laun samkvæmt launakerfi ríkis-
starfsmanna. Skriflegar umsóknir, er greini
menntun og fyrri störf, sendist utanríkisráðu
neytinu fyrir 7* þ.m.
Utanríkisráðuneytið.
Þ.Þ0RGRÍMSS0N&C0
hefur lykilinn að
betri afkomu
fyrirtœkisins. ...
. . . . og viS munum
aSstoSa þig viS
aS opna dyrnar
aS auknum
viSskiptum.
vtsim
Auglýsingadeild
AUGLÝSING
um somkeppni vegna 1100 óru afmælis íslnndsbyggðor
Hátíðarljóð
Þjóðhátiöarnefnd 1974 efnir til samkeppni um há-
tíðarljóð eöa ljóðaflokk til söngs og flutnings við há-
tíðarhöld á 1100 ára afmæli íslandsbyggðar. Skila þarf
handritum til Þjóðhátíðarnefndar 1974, Skrifstofu Al-
þingis, fyrir 1. marz 1973.
Ganga skal frá handriti í lokuðu umslagi merktu kjörorði
en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu ógagnsæju
umslagi, merktu sama kjörorði og handrit.
Ein verölaun verða veitt fyir bezta ljóðiö að mati
dómnefndar að upphæð
150 þúsund krónur
Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun höfund-
ar, en Þjóðhátíðarnefnd áskilur sér umráðarétt yfir
verðlaunuöu efni gegn greiðslu.
Telji dómnefnd ekkert þeirra verka sem berast verð-
launahæft, fellur verðlaunaveiting niður.
Dómnefnd skipa Andrés Bjömsson útvarpsstjóri, dr.
Einar Ólafur Sveinsson prófessor, Kristján Karleson
bókmenntafræðingur, dr. Steingrímur J. Þorsteinsson
prófessor og Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor.
Þegar úrslit hafa verið kunngjörð, geta keppendur lát-
ið vitja verka sinna hjá Þjóðhátíðamefnd. Verða þá
jafnframt afhent óopnuð umslög meö nafni og heim-
ilisfangi, eins og kjörorð á handriti segtr til im
Hljómsveitarverk
Þjóðhátíðarnefnd 1974 efnir til samkeppni um tónverk
til flutnings við hátíðarhöld á 1100 ára afmæli íslands-
byggðar. Verkið skal vera hljómsveitarverk og taki flutn
ingur þess eigi skemur en hálfa klukkustund. Skila
þarf handriti til Þjóðhátíðarnefndar 1974, Skrifstofu
Alþingis, fyrir 1. marz 1973 í lokuðu umslagi, merktu
kjörorði, en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu
ógagnsæju umslagi, merktu sama kjörorði og handrit.
Ein verölaun veröa veitt fyrir bezta tónverkið að mati
y dómnefndar að upphæð
200 þúsund krónur
Verölaunaupphæöin er ekki hluti af þóknun höfundar,
en Þjóðhátíðarnefnd áskilur sér umráðarétt yfir verð-
launuðu efni gegn greiöslu.
Telji dómnefnd ekkert þeirra verka sem berast verö-
launahæft, fellur verðlaunaveíting niður.
Dömnefnd skipa dr. Pál) isólfsson, Árni Kristjánsson
píanóleikari, Bjöm Ólafsson konsertmeistari, dr. Ró-
bert A. Ottósson og Vladimir Askenazy.
Þegar úrslit hafa verið kunngjörð, geta keppendur lát-
ið vitja verka sinna hjá Þjóiöhátíðarnefnd. Verða þá
jafnframt afhent óopnuð umslög meö nafni og heimilis
fangi, eins og kjörorð á handriti segir til um.
Þjóðhátíðarmerki og veggskildir
Þjóð’hátíðarnefnd 1974 efnir til samkeppni um
A. merki fyrir þjóðhátíð 1974 á 1100 ára afmæli ís-
landsbyggðar. Merkiö skal vera til almennra nota
á prentgögnum, í auglýsingum, sem barmmerki, á
bókakili o.s.frv.
B. þrjár myndskreytingar (teifcningar) tM nota á vegg-
skildi, sem framleiddir verða sem minjagripir og
e.t.v. fleiri nota.
Keppendur skulu gera greio fyrir merkingu og teikning
um í línu og litum, einnig stutta lýsingu á efnisvaíli.
Keppnin er haidin samkvæmt keppnisreghim Félags
ísl. teiknara.
Tillögum að merki í einum lit skal skfta í stærð 10—
15cm í þvermál á pappírsstærð DTN A 4 (21x29,7 cm),
einnig skal skila tdlögum að veggskjötdum í stærðinm
10—15 cm í þvermál á pappírsstærð DIN A 4.
Þátttaka er heimil öllum ísienzkum ríkisborgurum.
Tillögurnar skai einkenna meö sérstöku kjörorði, og
skal nafn höfundar og heimiíisfang fylgja með i lok-
uðu, ógagnsæju umslagi, merktu eins og tillögur.
Tillögum skal skila í pósti eöa til Skrifstofu Alþingis
fyrir kl. 17 mánudaginn 1. nóv. 1971.
Dómnetfnd skal skila niðurstöðum innan eins mánaðar
frá skiladegi, og verður efnt til sýninga á tillögunum
og þær síðan endursendar.
Veitt veröa ein verölaun:
A. fyrir merkið 75 þúsund krónur
B. fyrir myndskreytingar 60 þúsund krónur
Verðlaunaupphæðinni veröur allri úthlutað, en er ekki
hluti af þóknun höfundar, Þjóðhátíöarnefnd hefur
einkarétt á notkun þeirrar tillögu, sem hún kýs sér,
og áskilur sér rétt til að kaupa hvaöa tillögu sem er
samkvæmt verðskrá F. í. T.
Dómnefndin er þannig skipuð:. Birgir Finnsson, for-
seti Sameinaðs Alþingis, Haraldur Hannesson hag-
fræðingur, Helga B. Sveinbjörnsdöttir teiknari, HÖrð-
ur Ágústsson skólastjóri, Steinþór Sigurðsson listmál-
ari.
Trúnaðarmaður nefndarinnar er Indriöi G. Þorsteins-
son, ritari Þjóðhátíðarnefndar 1974, en heimilisfang
hennar er Skrifstofa Álþingis.
Vakin er athygli á þvi, að frjálst er að keppa um hvort
atriði fyrir sig.
ÞJ ÓÐHÁTÍÐ ARNEFND 1974,