Vísir - 03.02.1971, Blaðsíða 7
Y l S I R . Miövikudagur 3. febrúar ÍML
cTMenningarmál
Stanley Kubrick
og Napóleon
|7inna aíhyglisverðastur banda-
riskra kvikmyndaleikstjóra
nú { svipinn er Stanley Kubrick
en á síðasta áratug fór vegur
hans vaxandi meö hverri kvik
mynd, sem hann gerði.
Árið 1960 stjórnaði hann
,,Spartacus“, stórmynd um
skylmingaþrael, sem gerðist upp
reisnarforingi meðal ánauðugra
manna i Rómaborg hinni fomu.
Sú mynd heppnaðist að vísu ekki
betur en svo, að hún er eina
myndin, sem Kubrick hefur
stjómað og jafnframt harðneitað
að bera nokkra ábyrgð á.
Næst, árið 1962, kom sú fraega
mynd „Lolíta“, sem gerð var
eftir skáldsögu Vladimirs Nabo-
kovs, og 1964 kom myndin ,,Dr.
Strangelove", sem varð gifurlega
vinsæl og vakti mikla athygli.
Þó var það ekki fyrr en árið
1968 að Kubrick tólcst raunveru
lega að slá i gegn með mynd
sinni „2001 : A Space Odyssey“.
>að tók um það bil þrjú ár fyrir
Kubrick að gera þá mynd en
þeim tíma var vel varið, þvi að
fáar myndir hafa upp á síðkast
ið vakið meiri athygli eða verið
meira umræddar. Rúmlega tíu
milljónir dollara kostaöi að gera
„2001“, en þeir peningar ávöxt-
uðu sig á skömmum tíma.
TTm þessar mundir er Kubrick
að leggja síðustu hönd á
annað stórverk. þar sem er kvik
myndin „NAPÓLEON11. Til að
gera þá mynd hefur ekkert verið
til sparað. og sjaldan eða aldrei
í sögu k'vikmyndanna hefur ann
ar eins mannfiöldi komið við
sögu þvi að heilir herir eigast
við í þeim atriðum. þar sem lýst
er frægustu orustum, sem Nap-
óleon háði.
Kubrick lagði mikla áherzlu
á að gera orustuatriðin sem raun
verulegust úr garði, og í mynd-
inni er allt gert, sem hugsast
getur tfl að áhorfendur geti
skilið hernaðartækni Napóleons,
og geti þannig fenaið einhverja
nasásjón af herstiórnarlist.
Eða eins og Kubrick s-egir
sjálfur: „Ég lit svo á, að það
sé ákaflega mikils vert að geta
l'átið áhorfandann skilja „kjarn
ann” í þessum orustum, vegna
þess að frá fagurfræðilegu sjón-
armiði búa þær yfir glæsileik,
sem fleiri kunna að meta, en
þeir, sem menntaðir eru í her-
stjóm. I þeim er fólgin viss feg
urð, næstum eins og í mögnuðu
tónverki, eða í óbrotinnj fegurð
stærðfræðireglu. Það er þessi
fegurð, sem ég vil sýna fólki,
um leið og ég sýni því hinn ó-
glæsilega raunveruleika sjálfrar
orustunnar. Það er óhugnanleg-
ur og þverstæðukenndur jirunur
á skipulagsfegurð orustu, er háð
var fyrir mátulega löngu, og af-
leiðingum hennar fyrir þá, sem
hlut áttu að máli. Það er kannskj
eitthvað svipað, og að horfa úr
fjarlægð á tvo gullna erni steypa
sér niður í skýjunum, það kann
að vera, að þeir séu að slíta í
sundur smáfugl, en sé maður
nógu langt í burtu er þetta samt
fagurt á að Mtá.“
Tjegar Kuörick var spurður,
hvers vegna hann hefði val
ið sér það verkefni að gera kvik
mynd um Napóleon, svaraði
hann: ,. .. í fvrsta lagi vegna
þess að mér finnst hann hríf-
andi. Ævi hans hefur verið lýst
sem episku ljóði um athöfnina ..
Hann var einn þeirra fágætu
manna sem móta örlög síns eigin
tíma og örlög komandi kynslóða
— að ákveönu marki er Napóle
on orsökin að því, hvernig heim
ur okkar er í dag eins og síö
ari heimsstyrjöldin er orsök þess
hvernig Evrópti er skipt i dag,
EFTIR
ÞRÁIN
BERTELSSON
s t j ó m m áta lýg at.og Jan df ræði 1 e g a.
Og auðvitað er1 önhur Sstaéðán
sú, að aldrei hefur verið gerð
almennileg né nákvæm mynd
um hann. Sömuleiðis vegna þess
að ég álít, að það, sem myndin
fjallar um eigi, einkennilegt en
satt, ákaflega mikið erindi til
okkar, sem erum nú uppi, það er
að segja um ábyrgð þá sem
valdinu fylgir, og misbeitingu
þess, áhriif þjóðfélagslegrar bylt
ingar, tengsl einstaklingsins og
ríkisins, styrjaldir, hemaðar-
stefnu og fi. svo að þetta verð-
ur engan veginn rykfallin
mannkynssöguskrúðfylking,
heldur kvikmynd um grundvafl-
arspurningar okkar tíma, sem
einnig voru grundvallarspuming1
ar á timum Napóleons. En jafn
vel burtséð frá þessum hliðum
sögunnar er hið stórbrotna líf
Napóleons verðugt viðfangsefni
í kvikmyndaævisögu ...“
\ ður en Kubrick hófst handa
um að gera þessa kvikmynd
um Napóleon gerði hann sér attt
far um að fræðast sem mest um
viðfangsefnj sitt, en um hann
hafa sennilega verið ritaðar
fleiri bækur, en flesta aðra
menn. Sömuleiðis hafði Kubrick
sér til trausts og halds. prófess
or Felix Markham frá Oxford,
sem varið hefur ævj sinni til
að rannsaka feril Napóleons og
mun vera viðurkenndur einn
mestj fræðimaður veraldar á
því sviði.
Mikið verk þurfti að leysa af
hendi áður en kvikmvndatakan
hófst. Vopn og klæðnaði frá
Napóleonstímanum þurfti að
fjöldaframleiða, og f einu og
öllu var reynt að líkja sem ná-
kvæmast eftir fyrirmvndunum.
Sömuleiðis var það töluvert
vandamá! að finna staði til að
kvjkmynda á hinar ýmsu orust-
ur, því að víöast hvar standa nú
bæir eða rjúkandi verksmiðjur,
þar sem herir Napóleons unnu
sína frægu sigra.
Kubrick gerði sér að sjálf-
sögðu far um að reyna að sjá
hverja einustu kvikmynd, þar
sem Napóleon kemur við sögu,
og eftir á sagðj hann, að sér
hefði ekki þótt sérlega mikið til
þeirra koma, Hann fór háðu-
iegum orðum um myndina, sem
Abel Gance gerði á sínum tíma
um Napóleon. En undanfarið hef
ur hún, sem og önnur verk eftir
Abel Gance, verið sýnd víða í
kvikmyndaklúbbum við góðar
undirtektir. Um rússnesku stór
myndina „Strið og friður" sagði
Kubrick, að hún væri heldur
skárri en flestar aðrar myndir,
þar sem Napóleons er getið, en
engu að síður hefðj hann orðið
fyrir vonbrigðum með hana, og
þau vonbrigði voru sárari en
ella, vegna þess að öll skilyrði
voru fyrir hendi ti! að mvndin
gæti orðið vel heppnuð.
1/ vikmyndaáhugamenn bíða nú
spenntir eftir að fá tækifæri
til aó. sjá þe?sa nýjustu mynd
Kubricks, ekki sizt þar.sem sá
,.ftábæri. Teikarj, .Ryd Stei^er jevk-
ur titilhlutverkið. Óg meðan beð
ið eftir Napóleon vær; ekki
svo vitlaust fyrir einhvern fram
takssaman bíóstjóra að reyna að
nálgast eintak af „2001: A Space
Stanley Kubrick við töku myndarinnar 2001: A Space
Odyssey.
Odyssev" áöur en örar tækni-
framfarir hafa gert hana gamal
dags og úrelta.
Stanlev Kubrick er nú 42 ára
gamall. Hann er fæddur í New
York en hefur undanfarin ár bú-
ið og starfað í Englandi. Upp-
haflfiga var Kubrick ljósmynd-
ari hjá tímaritinu „LOOK“, en
byrjaði að fást við kvikmynda-
gerð upp á eigin spýtur.
Tvær fyrstu myndir hans voru
heimildarkvikmyndir, en þegar
hann var tuttugu og fimm ára
gerði hann sfna fyrstu leiknu
mynd „Fear and Desire“, fyrir
9000 dollara, en varð svo vegna
fáfræði sinnar aö útvega 30 þús.
dollara f viðbót til að setja
hljóðið við myndina.
Fjórar fyrstu myndir hans
skiluðu engum ágóða, þótt tvær
þeirra „The Killing‘‘ og „Paths
of Glory“ ,,§§u jafnvel taldar
meðal beztu- myndg hans.
Upplýsingarnar hér að framan
eru að mestu leyti fengnar úr
viðtali við Kubrick sem birtist í
bók eftir Joseph Gelmis, „The
Film Director as Superstar“.
Sé hringt fyrir kt. 16,
sœkjum við gegn vœgu
gjaldi, smáauglýsingar
á trmanum 16—18.
Bílar til sölu
VÖRUBÍLAR:
M-Benz 1413 ’65, ’66, ’67, ’69: Bedford ’66 með nýrri
vél, vökvastýri, í toppstandi; Vóivo N-88 árg. ’66 270
hp. mótor.
FÓLKSBÍLAR:
DS 21 Palace ’68; Chevrolet ’65, station; M-Benz 250 S
’68, ekinn 27 000 km; VW-1600 TL fastback árg ’6S;
Ford 20 m (XL) ’68, ekinn 20 þús. km; M-Benz 220 D
’68; M-Benz 190 D ’63; M-Benz 200 D ’67; Ford (LTD)
’65, má greiðast með skuldabréfi; Chevrolet Impala
’67; Opel Rekord (1900) L fastback ’68; Opel Kapitan
’66; VW ’63 og ’66.